Fréttablaðið - 03.07.2017, Blaðsíða 38
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Aðeins 71.940 kr.
CLASSIC
3ja sæta sófi
Þriggja sæta sófi. Litir: Turkis, dökk- og
ljósgrár, brúnn, rauður eða svartur.
Stærð: 200 x 90 x 100 cm
Fullt verð: 119.900
40%
AFSLÁTTUR
ÚTSALA
Aðeins 59.940 kr.
SILKEBORG
hægindastóll
með skemli
Stillanlegur hægindastóll.
með skemli. Dökkbrúnt
eða svart leður.
Fullt verð: 99.900 kr.
40%
AFSLÁTTUR
ÚTSALA
Afgreiðslutími Rvk
Mánudaga til föstudaga kl. 10–18
Laugardaga kl. 11–17
Sunnudaga kl. 13–17 (Smáratorgi)
www.dorma.is
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
Sumar
útsalan
ALLT AÐ
60%
AFSLÁTTUR
Nature’s SUPREME
160 x 200 cm
Fullt verð: 134.900 kr.
• Svæðaskipt
pokagormakerfi
• Burstaðir stálfætur
• Sterkur botn
• 320 gormar pr. m2
• Vandaðar kantstyrkingar
Fullt verð: 149.900 kr.
Aðeins 104.930 kr.
Nature’s SUPREME
180 x 200 cm
NATURE’S SUPREME
heilsurúm m/Cassic botni
Val um svart eða hvítt PU leður
eða grátt áklæði á Classic botni.
Aðeins 94.430 kr.
30%
AFSLÁTTUR
ÚTSALA
af 160 x 200 og
180 x 200 cm
Ef þú pantar nýju plöt-una mína, sem ég er að taka upp núna, í gegnum Heimkaup.is fyrir 14. júlí, þá mæti ég persónulega með
hana heim til þín – þó að það verði
pantað eitt eintak í Drangey þá
mun ég bara fljúga þangað,“ segir
Páll Óskar Hjálmtýsson, en hann er
núna perlusveittur að klára nýjustu
plötuna sína sem hann ætlar að
keyra heim að dyrum hjá aðdáend-
um sínum, hvorki meira né minna.
„Þetta er þjónusta sem ég ætla að
veita í samstarfi við Heimkaup. Þeir
eru að verða Amazon.com Íslands
og sérhæfa sig í heimsendingar-
þjónustu og netverslun. Þetta tilboð
gildir bara fyrir þá sem panta plöt-
una fyrirfram. Hvort sem þú pantar
á vínyl eða geisladisk, þá birtist ég
við dyrastafinn heima hjá þér með
plötuna, eins og Pósturinn Páll.“
Er þetta hugmynd sem þú hefur
gengið lengi með í kollinum? „Þetta
er búið að blunda í mér lengi vegna
þess að markaðurinn hefur breyst
svo gríðarlega. Ég man þá tíð þegar
sumar plötur seldust á föstu formi í
20 þúsund eintökum – ég get alveg
staðfest það að þeir dagar eru liðnir.
Fólk notar streymisþjónustur eins
og Spotify núna – og það er hið
besta mál, en aðdáendur og fólk sem
er í liði með listamanninum kaupir
plötur hans á föstu formi. Nú er svo
komið að vínylplatan kemur sterk
inn og selst meira en geisladiskur-
inn. Auðvitað læt ég stafrænan kóða
fylgja með hverju eintaki svo þú
getur spilað þetta hvar sem þú vilt.
Hafandi sagt það get ég sagt að
það er gjörsamlega galið að prenta
stórt upplag af vínyl og geislaplöt-
um sem sitja síðan óseldar á lager
heima hjá þér. Því er mikið sniðugra
að leyfa fólki að panta fyrirfram og
þegar það er ljóst hversu stórt upp-
lagið þarf að vera, hvers vegna ekki
að þjónusta aðdáandann með því
að bara mæta heim til hans og gera
eitthvað skemmtilegt úr þessu?“
Útgáfudagur plötunnar er
16. sept ember, það er sami dagur
og Palli heldur risatónleika í Laugar-
dalshöllinni, en eftir það er hann
kominn í „frí“ sem hann ætlar að
nýta í að keyra með plötuna sína til
aðdáenda sinna. Vínylplatan sjálf
mun vera með glæsilegra móti og
endurspegla innihaldið vel.
„Ég hef aldrei gefið út á vínyl.
Fyrsta sólóplatan mín kom út 1993
og þá var almennt hætt að gefa út
vínylplötur á Íslandi. Þessi fyrsta
vínylplata mín verður algjörlega
gegnsæ; glær kristals-vínylplata og
plötuumslagið er prentað á plexi-
gler.
Þetta er dansskotin poppplata svo
að diskóið mun gneista af henni,
bókstaflega. Úr því að fólk er tilbúið
að kaupa svona vandaðar vínylút-
gáfur þá ákvað ég að ganga alla leið
í þessari hönnun svo að hún verður
bara eins og húsgagn.
Ég átti hugmyndina að þessu
plötuumslagi, en Ólöf Erla hjá Ólöf
Erla Design útfærði hana fyrir mig.
Umslagið verður allt handunnið hér
á Íslandi, en platan pressuð erlendis.
Það tekur átta vikur að pressa vínyl-
plötur, þannig að ég verð að loka
fyrir pantanir á Heimkaup 14. júlí.
Það er hægt að panta núna.“
stefanthor@frettabladid.is
Páll Óskar pantaður
heim að dyrum
Páll Óskar gefur út sína nýjustu plötu þann 16. september. Hann
ætlar að gefa plötuna út á vínyl og geisladisk, ásamt því að hún
kemur inn á streymisveitur. Palli mun skutla plötunni til aðdáenda.
Páll Óskar keyrir stórglæsilega vínylplötu og geisladisk heim til fólks hvar sem er á landinu í fríinu sínu í haust.
FRÉTTABLAÐIÐ/EyÞÓR
Á laugardaginn fór þáttur númer
500 af Sjáðu í loftið, hvorki meira né
minna. Þátturinn er sem sagt búinn
að vera á dagskrá á Stöð 2 í tæp 10 ár
en hann er sýndur á hverjum laugar-
degi. Ásgeir Kolbeinsson þátta-
stjórnandi hefur því haft nóg að gera
en þátturinn hefur aldrei farið í frí.
„Það hefur aldrei verið tekin pása yfir
sumarið eða á öðrum tímum. Það er
búið að vera ferlega gaman að fara í
gegnum þessa 500 þætti, enda erum
við að tala um rúmlega níu og hálft
ár. Á þeim tíma hef ég kynnt rétt um
4.000 bíómyndir á 11.500 mínútum.
Það er líka gaman að segja frá því að
Sjáðu er sá þáttur sem hefur verið
hvað lengst á dagskrá Stöðvar 2 sam-
fellt,“ segir Ásgeir sem er að vonum
ánægður með velgengni þáttarins.
„Eitt af því skemmtilegasta við
Sjáðu er að hann höfðar vel til allra
aldurshópa og jafnt til beggja kynja.
Það hafa meira og minna allir gaman
af kvikmyndum og því er áhorfið á
þáttinn gott í hverri einustu viku.
Það er auðvitað frábært að fá að vera
með þátt þar sem áhugamál manns
er í brennidepli.“ – gha
Þáttur númer 500 fór í loftið
Ásgeir Kolbeins,
fjölmiðla- og út-
varpsmaður
3 . j ú l í 2 0 1 7 M Á N U D A G U R22 l í f i ð ∙ f R É T T A B l A ð i ð
0
3
-0
7
-2
0
1
7
0
4
:1
1
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
3
C
-A
B
E
0
1
D
3
C
-A
A
A
4
1
D
3
C
-A
9
6
8
1
D
3
C
-A
8
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
0
s
_
2
_
7
_
2
0
1
7
C
M
Y
K