Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.01.2004, Side 14

Víkurfréttir - 22.01.2004, Side 14
> MÁLEFNI LEIKSKÓLANNA Hver verður næsta Fegurð- ardrottning Suðurnesja? Leitin að Fegurðardrottningu Suðumesja 2004 er hafin. Þeir sem hafa ábendingar um stúlkur til þátttöku í keppninni geta haft samband við verslunina Persónu í síma 421 5099. Ennþá liggur ekki fyrir hvenær eða hvar keppnin verður haldin að þessu sinni. Víkurfréttir munu hins vegar kynna þátttakendur í aðdraganda keppninnar eins og undanfarin ár. rlSKKAUPE Fiskverkendur og fiskkaupendur Látið okkur sjá um fiskflutninginn! Erum í fiskflutningum frá Höfn í Hornafirði Flytjum fiskinn frá skipshlið heim í hús „ Gerum föst verðtilboð. . STEINEY ehf Fiskf lutningar S. 848 8229 & 421 7878. & VINNUEFTIRLITIÐ Bíldshöfða 16-110 Reykjavík - Simi 550 4600 - Fax 550 4610 Netfanfl: vinnueftlrlit@ver.ls - Heimasíða: www.ver.is Fmmnámskeið Haldið verður Frum-námskeið fyrir lyftara og minni jarðvinnuvélar 5. og 10. janúar (eitt námskeið) ef næg þátttaka fæst. Skráning er í síma 421 1002 og á skrifstofunni Grófinni 17a, milli kl. 8:15 og 12:00. Skráningu lýkur 3. febrúar. Ályktun frá Suðurnesjadeild Félags leikskólakennara Stjórn 10. svaeðadeildar Félags leikskólakennara hefur sent frá sér álykt- un þar sem ummæli bæjar- stjóra Reykjanesbæjar í viðtali í Víkurfréttum frá 15. janúar er mótmælt harðlega. I álykt- uninni segir að í viötalinu sé það borið á borð fyrir foreldra og almenning að launahækk- anir ieikskóiakennara séu meg- inástæða fyrir hækkunum leik- skólagjalda. I álvktnninni segir einnig að það sé með öliu óþol- andi að sveitarstjórnarmenn rökstyðji hækkanir leikskóla- gjalda mcð þeim hætti er bæj- arstjóri gerði í viðtalinu. Ályktun: Stjórn 10. svæðadeildar Félags leikskólakennara mótmælir harð- lega, málflutningi bæjarstjóra Reykjanesbæjar og formanni Fræðsluráðs, sem birtist í viðtali í Víkurfréttum 15. janúar s.l. Þar er borið á borð fyrir foreldra og almenning að launahækkanir leikskólakennara séu meginá- stæða fyrir hækkunum leikskóla- gjalda. I viðtalinu vísar Ami Sig- fusson í miklar hækkanir á laun- um leikskólakennara sem sveitar- félagið þurfi að taka á sig en til upplýsingar má geta þess að gengið var frá samningi um kaup og kjör leikskólakennara 24. jan- úar 2001 þannig að bæjarstjóri hefur haft rúman tíma til að gera ráðstafanir. Það er óþolandi með öllu að sveitastjórnarmenn rök- styðji hækkanir leikskólagjalda með ofangreindum hætti fyrir foreldrum í hvert sinn sem lág laun leikskólakennara hækka. Bent er á að slíkt er ekki gert þegar aðrar stéttir eiga í hlut. Stjórn 10. svœðadeildar Félags leikskólakenitara. Risaskip sem hvolfdi við- Noreg hafði viðkomu í Helguvík Risavaxið fiutningaskip sem hvolfdi við Noregsstrendur síðdegis á mánudag hefur a.m.k. einu sinni haft viðkomu í höfn á Suðurnesjum. Það var í maí 2002 þegar skipið flutti hingað til lands um 25.000 tonn af malbik- unarefni fyrir Islenska aðaiverktaka. Skipið sem þá var rétt eins árs kom til Helguvíkur með farminn og þaðan var honum ekið upp á Kefla- víkurflugvöll. Þá hét skipið Kvitnes. Skipinu var breytt á síðasta ári og jafnframt skipt um nafn á skipinu. Það heitir nú Rocknes. Skipið var svo- kallað beltisskip, þ.e. það var búið öflugum færi- böndum og dælum sem fluttu efni til um borð í skipinu, hvort sem það var í iestun eða losun. Meðfylgjandi ljósmynd tók Hilmar Bragi ljósmynd- ari Vikurffétta við Helguvík í maí 2002 þegar unnið var að því að koma skipinu að landi í Helguvík. Þar komu hafnsögubátarnir Auðunn frá Keflavík og Hamar úr Hafharfírði að góðum notum. Eðaltré byggja íÁsahverfi: Byggja kubbahús með frábæru útsýni til Bláfjalla -Fíntað vinna úti þrátt fyrirkuldaog frost. „Vinnum okkurtil hita". s hinu nýja Asahverfi í Reykjanesbæ eru smiðir í óða önn að negla og mæla í húsum sem þar eru í byggingu. Víkurfréttir litu við í hádeginu si. föstudag og tóku hús á þeim Rúnari Bjarnasyni og Sigur- geiri Svanssyni hjá fyrirtækinu Eðaltré sem reisa hús í nýja hvcrflnu. „Mér líst vel á byggingasvæðið, enda er hér mjög gott útsýni," segir Rúnar en húsið sem Eðaltré reisa er svokallað kubbahús sem byggist á því að steypu- og ein- angrunarvinna fléttast saman. „Þetta er innlend Suðurnesja- framleiðsla því kubbarnir koma frá fyrirtækinu Varmamótum hér i Keflavík.“ Byijað var á grunninum að hús- inu í október og búast þeir félag- ar við að byggingu hússins ljúki í febrúar. „Við unnum ekkert við þetta hús í desember, en verkið hefur gengið ágætlega," segir Sigurgeir smiður, en hjá Eðaltré eru þrjú verkefhi í gangi. Þegar Rúnar er spurður að þvi hvert næsta verkefni sé segist hann ekkert gefa uppi. „Það er ekkert öruggt fyrr en skrifað hefur verið undir,“ segir hann kíminn á svip. En er ekkert kalt að vinna við húsbyggingar í veðrum sem þessum? „Það er fint að vera að vinna svona úti. Maður verður bara að vinna sér til hita,“ segir Sigurgeir og tekur um hamarinn i beltinu sem smiðir ganga iðulega með. „En komdu og líttu á útsýnið héma,“ sagði Rúnar og benti til Bláfíalla en sökum snjóa hafa Biáfjöllin lýst upp himininn í fjarlægð þar sem ánægðir skíða- iðkendur renna sér með bros á vör eftir nokkurra ára hlé sökum snjóleysis. Og án efa eiga íbúar í þessu glæsilega húsi eftir að fylgjast vel með hvort opið sé í Bláfjöllum. 14 VfKURFRÉTTIRÁ NETINU I www.vf.is I LE5TU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.