Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.01.2004, Blaðsíða 20

Víkurfréttir - 22.01.2004, Blaðsíða 20
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem auðsýndu okkur samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Huldu Agnarsdóttur frá ísafirði, áður til heimilis að Kirkjuteigi 7, Keflavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilisins Víðihlíðarí Grindavík fyrirgóða umönnun. Oddur Gunnarsson, Erna Bergmann, Agnes Margrét Gunnarsdóttir, Tómas Henkel, Gunnhildur Gunnarsdóttir, Guðmundur Sigurbergsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Óskar Gíslason, Ásabraut 13, Grindavík, Jóhanna Dagbjartsdóttir, Sævar Óskarsson, Khamnuan Óskarsson, Dagbjört Óskarsdóttir, Þorlákur Bernhard, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Friðrik Björnsson, Suðurgötu 22, Sandgerði, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja laugardaginn 17. janúar. Útförin fer fram frá Safnaðarheimilinu í Sandgerði laugardaginn 24. janúar kl. 14.00. Þórhildur Sigurðardóttir, Steinunn F. Friðriksdóttir, Sigurður S.F. Friðriksson, Þorbjörg E.F. Friðriksdóttir, Jón F. Friðriksson, Friðrik Þór Friðriksson, Fanney Friðriksdóttir, Heiður Huld Friðriksdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Guhnlaugur Sigmarsson, Sólrún Bragadóttir, Rúnar Þórarinsson, Alma Jónsdóttir, Marta Eiríksdóttir, Eiður Þórarinsson, VIKURFRETTIR A NETINU 14. MEST SÓTTIVEFUR LANDSINS >- MÁLEFNI LEIKSKÓLANNA ■ Steinbjörn Logason, faðir í Reykjanesbæ, skrifar: víkurfmttir ánetinuvoru FYRSTARMEÐ þessagreini „Hér á ég ekki heima“ að verður að segjast að blessaður „Master" bæj- arstjóri náði ekki að sannfæra mig um réttmæti hækkana á leikskólagjöldum á borgarafundinum þann 19. janúar. Þvert á móti hefur hann styrkt þá skoðun mína hversu gífurleg svívirða þessi hækkun er fyrir barnafólk og ekki síst ímynd Reykjanesbæj- ar. Fyrri hluti af þeim glæruljóma sem bæjarstjórinn færði okkur um íjölskylduvænan Reykjanes- bæ náði engan veginn að skila þeim markmiðum sem fundurinn var að fjalla um. Ami reyndi að kasta ryki i augun á fundarmönn- um og sannfæra þá um að það væri nú þess virði að borga þessa upphæð með upptalningu á þjón- ustu sem snertu ekki fundinn beint. þó að „sumir“ fundar- manna létu augljóslega blekkjast og voru jafnvel tilbúnir að borga enn meira, þá held ég að flestir geti ekki sætt sig við þær aðdrótt- anir bæjarstjóra að það sé allt í lagi að borga svona mikið. Enda er þjónustan og fjölskyldustefnan svo frábær á öllum öðrum skóla- stigum barnsins. Málið er ekki svona einfalt að bíða og sætta sig við að greiða himinhá leikskóla- gjöld af því þú færð þjónustu seinna. Það verður alltaf erfitt að fá hljómgrann fyrir þessari fjöl- skyldustefnu þegar litla barnið þitt er strax sparkað niður á fyrstu skrefum þess inn í skóla- kerfið af þeim mönnum sem standa fyrir henni bænum okkar. Hvað kemur næst og á hvað stig- um munu þeir seilast ofan í vasa okkar aftur? Ekki hafa Reykjavíkurrökin stað- ist fyllilegan samanburð og hvað þá „kannski-glærurnar" hans Ama. Er það virkilegt að þeir fé- lagar héldu að við værurn ein- hverjir vitleysingar í upphafi þessarar umræðu og myndum kaupa rökin með Reykjavík? þeir byijuðu þetta allt með einni lág- kúrulegustu auglýsingu sem ég hef á ævinni litið í Víkurfréttum þann 30. desember 2003 (nýárs- gjöfinni). Með yfirskriftinni „GJALDSKRÁ REYKJANES- BÆJAR 2004“ er tilkynnt um hækkanir á gjöldum bæjarfélags- ins og í tvídálki, er innrammaður grár kassi með samanburð á Reykjavík og Reykjanesbæ. Hví- lík fásinna, þvílíkur brandari að vera eyða plássi í að auglýsa Reykjavík. þeim hefur greinilega ekki liðið mjög vel með þetta allt saman og til að reyna að losna við óbragðið átti að nota höfuð- borgina sem ópal með einni lág- kúraauglýsingu, sem átti að rétt- læta þessar hækkanir. En við vitum að systkinaafsláttur er hærri í henni Reykjavík, námsmannafsláttur líka og systk- inaafsláttur er veittur með dag- mæðrum. Afslættir sem myndu spara sumum fundarmanna allt upp í 20 þúsund á mánuði. Þessi samanburður var alltaf móðgun við okkur og ekki síst lítillækkun á Reykjanesbæ - sem missir trú- verðugleika á að geta boðið hag- stæðari þjónustu en önnur sveita- félög. Verið bæjarfélag með gott fordæmið, það sterka og sjálf- stæða sem aðrir ættu að bera sig saman við. NEI segja þessir fjöl- skylduvænu menn - við viljum vera eins og Reykjavík. Verðurn og það skuluð þið sætta ykkur við. BORGA, BORGA!. Ami var alls ekki hættur og ekki bættu nú „kannski-glærurnar" með töluleiknum 40% á búverð- ugleika bæjarfélagsins né hans manna. Leikandi sér að einhveij- urn súluritum hægri vinstri til að ná Reykjanesbæ af hættusvæð- inu sem eitt dýrasta bæjarfélag landsins fyrir námsmenn með kornabörn eða barnafólk með tvö eða fleiri krili. Óþarfa ryk og sorglegur samanburður. Einnig er það augljóst að Reykja- nesbær er á láglaunasvæði. Það er staðreynd að það eru fá há- launastörf á Suðumesjum. Því er það svo að háskólamenntað fólk sér fá eða engin tækifæri hér vegna launamismunar og skort á tækifærum í nýsköpun. Fyrir mig með mína menntun þá munar hátt i 100 þúsund krónum í laun á mánuði á Reykjanesbæ og Reykjavík. Hér eru horfurnar slæmar í atvinnumálum vegna uppsagna og atvinnuleysi er hæst hér á landinu. Ekki nær þessi hækkun að blása lífi og orku í samfélag sem er í járnum og hvað þá að vera réttlætanleg. Það er einnig vani í pólitík að kasta fram tölum og prósentum til þess að réttlæta heildarmynd ina. Sjaldan eru þessar tölur krufnar til mergjar og verða því aðeins 23% hækkun á 1/3. Þessi 1/3 er síðan 35% af 2/3, sem er rosalega gott því hún gæti verið eða var 50%. Svona er þráttað og nýjum tölum hent á loft og aldrei fær maður á hreint eða sundurlið- að i hvað 27.000 krónurnar fara í á mánuði. Er ekki réttast að segja 1/3 (foreldrar) = 27 þús. + 2/3 (bæjarfélagið) = 54 þús eða sam- tals 3/3, 81.000 kr (miðað við 8 tíma). Kostar virkilega svona mikið að hafa eitt barn á leik- skóla? Við foreldrar eigum rétt á að fá sundurliðun á okkar reikn- ingi, eða er ekki svo? Þannig að ég skora á alla foreldra að fá reikninginn sinn sundurliðaðann hér eftir þannig að þessi talna- súpa þurfi ekki að vefjast svona fyrir manni í fínum súluritum og þess háttar pólitík. Þessi hækkun hefur líka orðið til þess að fólk er farið að velta því fyrir sér að slíta sambúð á papp- írum til þess að geta náð endum saman, fjölskylduvænt? Pör sjá sér hag í því að annaðhvort þeir- ra verði heima og gæti bamanna, flölskylduvænt? Fólk reynir að bæta við sig vinnu, fjölskyldu- vænt? Leikskólakennarar gætu gripið til fjöldauppsagna vegna skerðinga á yfirvinnu því þær hafa ekki efni á að vinna, fjöl- skylduvænt? Sama hvemig litið er á þetta allt saman þá mun þetta fyrst og fremst bitna á bömunum okkar og hæfileikum þeirra. Þetta er staðreynd um sorglega forgangsröðun. Ég var ekki sáttur þegar ég dus- taði af mér rykið að fundi lokn- urn með „kannski-loforð" um leiðréttingar á systkinaafslætti. Það er bara ekki nóg! Þessi hækkun átti aldrei _að koma og er ekki réttlætanleg. Ég gekk þung- um skrefum út í nóttina ásamt fleirum fundarmönnum og ég hugsaði „hér á ég ekki heima." Virðingafyllst Steinbjörn Logason faðir 20 VfKURFRÉTTIRÁ NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.