Víkurfréttir - 22.01.2004, Síða 22
Það er komin hláka á Suðurnesjum. Snjórinn sem kyngdi niður um helgina var far-
inn að blotna á mánudaginn og vatn víða farið að flæða ofan í niðurföll og ræsi.
Þar sem gert var ráð fyrir rigningu þá um nóttina og þá er vissara að vera búinn
að tryggja það að vatnið flæði örugglega niður um niðurföll en ekki inn í hús eða
annað þar sem það geti valdið tjóni. Myndin er tekin við Hringbrautina í Keflavík
nú eftir hádegið á mánudag þar sem stórvirkar vinnuvélar unnu að snjómokstri.
HLJÓMSVEITIN MÁT
Frítt inn
Aldurstakmark 20 ár.
VF-MYND: HILMAR BRACIBÁRÐARSON
us 01
STAÐURINN ÞINN - ALVÖRU ÚTSÝNI!
Mokað frá ræsum við Hringbrautina
Þökkum eftirtöldum aðilum stuðning
við áramótabrennu
í Innri-Njarðvík:
Hitaveita Suðurnesju
Toyota
Sanikaup
GB Trésmíði
Bílur og Sport
Alex Bílaliús
Smurslöð Björns og Þórðar
Sparisjóðurinn í Kel'lavík
Húsasmiðjan
KafTitár
Byko
iiignarhaldsfélagið Afangar
Nesprýði
Trésmíðaverkstæði Ragnars
Halldórsson
Olís
Reykjanesbær
Hekla
Rörvirki
Víkurfréttir
Islandsbanki
Vélaleiga AÞ
Toppurinn
Esso
Verslunin Töff
Ibúur Innri-Njarðvíkur
Hótel Keflavík
íbúar í Innri-Njarðvík
> FJÁRIVIÁL REYKJANESBÆJAR / UMRÆÐAN
■ Konráð K. Björgólfsson skrifar:
Velkomin í ríki mitt, Reykjanesbæ!
egar ég var að fletta
nýjasta tölublaði Víkur-
frétta dags. 15. janúar
2004 rak ég augun í að enn
frekari endurbætur á Hafnar-
götu væru byrjaðar. Lengi lifi
endurbætur við Hafnargötu,
verkefni sem sífellt fer í endur-
nýjun Iífdaga sinna.
Á blaðsíðu 14 og 15 þjarka bæj-
arstjóri og bæjarfulltrúi Fram-
sóknarflokksins um afsökunar-
beiðni og í grein bæjarstjóra seg-
ir:
„Staðreyndin er sú að í lok nýlið-
ins árs numu eignir Reykjanes-
bæjar tæplega ellefu þúsund
milljónum kr.“
Þessi talnaleikur sem er að ryðja
sér til rúms í dag virðist vera af
þeirri rót að leiðbeina fólki sem
þekkir ekki mun á milljón og
heilurn milljarði. Þó ég hafi
aldrei handleikið milljarð í pen-
ingum er ég samt steinhættur að
fara út í búð og kaupa fyrir tíu
hundruð krónur í matinn. Ég
kaupi bara fyrir þúsundkall og
læt það gott heita.
Framkvæmdirnar í Helguvík
halda áíram, mulið niður bergið,
vömbílar bmna um götur bæjar-
ins og sturta á haf út meðfram
standlengjunni því eina felli eða
fjalli sem Reykjanesbær getur
státað af. Þetta kostar sitt það
máttu bóka. Þetta kostar sitt! „Af
hveiju fylla þeir ekki á haf út í
Helguvík í stað þess að grafa sig
svona inn í landið" spurði mig
einhver sem að var ekki alveg
viss um hvort hann skyldi allt rétt
en lítið varð um svör.
Á blaðsíðu 20 má lesa um mál-
efni leikskólanna. Þar segir í
grein Hafdísar Helgu Þorvalds-
dóttur að hækkun á leikskóla-
gjöldum sé á bilinu 23-26%. En
Böðvar Jónsson á lika sína skýr-
ingu „hlutfall foreldra hefur
lækkað úr 50% í 35%.“ Sam-
kvæmt ofanrituðu geta gjöld
lækkað á sama tíma og þau em
hækkuð og átt sér ósköp skiljan-
legar ástæður. En fólkið hefur
auðvitað þessum aurunum minna
til ráðstöfúnar þar á eftir. Ég er
þannig innréttaður, að vísu ódýrt
á efri hæðinni, að hver hækkun
kostnaðar á almenning vekur
með mér kenndir til þeirra sem
verst em settir. Atvinnuleysi og
kostnaðarauki fer illa saman, að
mínu viti. Það er þekkt stað-
reynd. En það er ekki bæði hægt
að halda og sleppa. Það verður
að forgangsraða! Ef við viljum
munað og glys þá kostar það
peninga og einhver verður að
borga, þú eða ég. Því má líkja
stjóm byggðarlags við ijármál og
stjóm heimilis:
Þó sjónvarpstækið sé í tíma og
ótíma að slökkva á sér, látum við
endumýjun þess bíða ef baminu
okkar vantar peysu til að klæðast
gegn kuldanum hér úti. Svo ein-
falt er það.
Sú ffétt sem vakti hvað mesta at-
hygii mína og ég var viss um að
væri í Víkurfréttum, reyndist
vera í Morgunblaðinu, hálfsíðu
umfjöllun: „Hollywood-stafir
settir á Vogastapa." í fréttinni
segir að um sé að ræða rúmlega
mannhæðarháa stafi og á ljós-
myndunum má sjá að hver stafúr
er á annan metra á breidd. Sam-
an mynda þeir orðið „Reykjanes-
bær“. Þessi risavöxnu herlegheit
eiga auðvitað að vera upplýst,
hvað annað? Hér á því hvorki að
vera hægt að finna volæði, pen-
ingaþröng eða atvinnuleysi, þeg-
ar komið er inn fyrir bæjannörk-
in, meira en nóg til af öllu fyrir
alla skyldi maður ætla.
Þvi datt mér í hug, í ljósi þessarar
velmegunar sem mér var annars
ókunnugt um, hvort meirihlutinn
í stjóm bæjarins ætli ekki að láta
útbúa annað svona skilti og sett
niður á sama stað, því oft má gott
bæta. Á 90 km. hraða eftir
Reykjanesbrautinni rynnu þá
skiltin í eitt og mörkuðu ekki að-
eins upphafið af Ijósadýrðinni og
fagursláeytingunum inn í bæinn
heldur og segðu það sem menn
vildu meina: „Velkomin í ríki
mitt, Reykjanesbæ!"
Konráð K. Björgólfsson
Reykjanesbæ.
■ Baldvin Nielsen skrifar um fjármál Reykjanesbæjar:
Ymislegt vakti athygli
mína eftir að hafa lesið
greinar hr. Árna Sigfús-
sonar bæjarstjóra Reykjanes-
bæjar og hr. Kjartans Más
Kjartanssonar bæjarfulltrúa
vegna deilu þeirra um fjármál
bæjarins í Víkurfréttum í s.l.
viku.
Það er ljóst að ekki er allt með
feldu og nú eru teikn á lofti um
að komið sé að ögurstundu er
varðar hagsmuni bæjarbúa til
framtíðar. Þetta má heyra á tali
manna hér í bæ. Bæjarbúar þurfa
ekki að leggja það á sig að
geyma þessar greinar sem ofan-
greindir aðilar hafa skrifað vegna
þessa máls, því viska og dóm-
greind almennings og langlund-
argeð er með þeim hætti að telja
má fúllvíst að þessum meirihluta
Sjálfstæðismanna verði kastað
fyrir róða í næstu bæjarstjómar-
kosningum.
Þar sem ég hef ekki nægilega
haldgóð gögn undir höndum er
varða þessi skrif þeirra félaga er
samt ljóst að Kjartan Már hefúr
vinninginn enda þarf ekki mikið
innsæi til að sjá að sjónarspil
bæjarstjórans er til þess fallið að
villa um fyrir fólki um hina raun-
verulegu fjárhagsstöðu bæjarins.
Ein er sú leið sem farin hefur
verið í þessum tilgangi er að selja
fasteignir þess til að ijármagna
hallareksturinn.
Hér verða bæjarbúar að vera á
varðbergi að ekki sé seldur eign-
arhluti bæjarfélagsins t.d. í Hita-
veitunni, óskabami Suðumesja-
manna, því ef það ferli færi í
gang, einkavinavæðingin, mætti
búast við að Hitaveitan stór-
hækkaði orkugjöldin þ.e.a.s. hita
og rafmagn á almenning, því.. jú
... „hluthafarnir gera kröfu um
arðsemi" yrði svar stjórnar-
manna.
Já, velferðarkerfið heldur áfram
að hnigna eins og nýjasta dæmið
sannar með stórhækkun á leik-
skólagjöldum sem munu valda
bamafjölskyldum miklum búsifj-
um því þar á meðal er fólkið sem
er að koma sér þaki yfir höfúðið
í fyrsta skipti. Síðan væri það al-
veg eftir öðru að hækka fast-
eignagjöldin til að kóróna þessa
„fjölskyldustefhu" ems og það er
kallað hjá bæjaryfirvöldum.
Til að tryggja bæjarbúum raun-
hæfan kost í næstu sveitastjóm-
arkosningum, hefúr hópur manna
hafið undirbúning að stofnun nýs
bæjarmálafélags undir merkjum
Fijálslynda flokksms. Þar verður
leitast við að fá fólk sem vill
breytingar til starfa.
Stofnfundur félagsins verður
auglýstur þegar þar að kemur.
Kær kveðja,
Baldvin Nielsen
22
VÍKURFRÉTTIRÁ NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DACLEGA!