Víkurfréttir - 29.01.2004, Síða 2
stuttar
f r é t t i r
Tveggja ára
sleðaeigandi
saknar Stiga
sleðans síns
Um síðustu helgi var
nýjum Stiga sleða
með stýri stolið fyrir
utan Hringbraut 69 og
saknar eigandinn, 2 ára
gamall strákur sleðans
síns.
Þeir sem geta gefið upplýs-
ingar um málið eru hvattir til
að hringja í síma 896-5531.
Sleðaeigandinn ungi vonar
að sleðanum verði skilað og
að málin verði útkljáð í
mesta bróðerni og að engir
eftirmálar verði. Ungi sleða-
eigandinn telur að einhver
hafi tekið sleðann í misgrip-
um.
Innheimtumenn trygginga-
félaga að störfum í nótt
Einn eigandi einnar bifreiðar
varð aðfaramótt mánudags fyrir
því að lögreglan klippti númera-
spjöldin af bifreiðinni þar sem
hann hafði ekki viðhaldið lög-
boðnum ábyrgðartryggingum
biffeiðarinnar.
Hiuta af trommusetti stolið
Tilkynnt var til lögreglu um
þremur diskum úr trommusetti
hafi verið stolið úr bílskúr við
Lyngholt í Keflavík á sunnudags-
morgun. Ekki er vitað hver þar
var að verki.
Eignaspjöll í Sandgerði
Á sunnudagsmorgun var tilkynnt
til lögreglu eignaspjöll hjá elli-
heimilinu Miðhúsum við Suður-
götu í Sandgerði. Þar höfðu
fimm útiljós verið skemmd og
fimm gluggalistar losaðir úr
falsi. Ekki er vitað hveijir voru
þarna að verki.
>AUKIN SAMKEPPNI I VEITINGAREKSTRI
Helgi Vilhjálmsson athafnamaður í Góu og KFC á þeim stað þar sem nýr veitingastaður KFC mun væntanlega rísa á næstu mánuðum.
VF-MYND: HILMAR BRAGIBÁRÐARSON
Helgi skoðar byggingalóð fyrir KFC
Helgi Vilhjálmsson, athafnamaður oft
kenndur við Góu, var í Reykjanesbæ
fyrir helgi að skoða framtíðarbygginga-
land fyrir nýjasta KFC kjúklingastaðinn. Lóðin
er á gömlu bæjarmörkum Keflavíkur og Njarð-
víkur gegnt bílastæðinu við Samkaup. Stórvirk-
ar vinnuvélar eru þegar byrjaðar að vinna á
svæðinu, en að sögn Helga eru þær ekki á hans
vegum.
„Eg bíð ennþá eftir endanlegu grænu ljósi á að ég
fái að byggja á þessari lóð. Ég vonast eftir að fá
svarið á næstu dögum og vonandi verður hægt að
steypa sökkul í næsta mánuði," sagði Helgi Vil-
hjálmsson í samtali við Víkurfréttir þar sem hann
gekk um lóðina. Helgi vonaðist til að nýi veitinga-
staðurinn yrði tilbúinn í sumar. „Eru iðnaðarmenn á
Suðumesjum ekki röskir", sagði hann og brosti og
bætti við að honum litist vel á það að vera að koma
með starfsemi til Reykjanesbæjar. „Hér er svo kraft-
mikið fólk“.
Veitingastaður KFC í Reykjanesbæ verður flagg-
skip kjúklingastaða Helga, um 50 metra langt hús
með ævintýralandi fyrir böm og fl.
Hundur olli umferðaróhappi á Reykjanesbraut
Lögreglan í Keflavík hef-
ur til rannsóknar um-
ferðaróhapp sem varð á
Reykjanesbraut skammt frá
Kúagerði skömmu fyrir kl.
fjögur á laugardag. Þar varð
ökumaður fyrir því að missa
stjórn á bifreið sinni er stór
svartur hundur hljóp í veg
fyrir bifreiðina.
Klukkan fimmtán mínútum fyr-
ir fjögur á laugardag var lög-
reglunni í Keflavík tilkynnt um
útafakstur á Reykjanesbraut rétt
við Kúagerði. 1 ljós kom að
ökumaðurinn hafði misst stjóm
á bifreið sinni er stór svartur
hundur hljóp í veg fyrir bifreið
hans. Talið er að hundurinn sé
blandaður Irishsetter/labrador.
Bifreiðin var Ijarlægð af vett-
vangi með dráttarbifreið. Lög-
reglan þarf að ná tali af hunda-
eigandanum. Nokkru frá þeim
stað þar sem bifreiðin fór útaf sá
ökumaðurinn til manns og konu
þar sem þau voru með annan
hund. Hundurinn sem hafði
hlaupið í veg fyrir bifreiðina
hafði hlaupið í áttina til þeirra.
Fasteignamarkaður Suðurnesja - inn á öll heimili á Suðurnesjum!
Sjáið fasteignaauglýsingar á blaðsíðum 29-31 í Víkurfréttum í dag
Fasteignasalan Ásberg,
sími 421 1420
Kirkjuteigur 5, Keflavík.
Góð 3ja herb. 67m’ risíbúð í
góðu ástandi, tölvert endumýjuð.
Hagstæð lán áhvílandi.
6.300.000,-
Fasteignasala G.Ó.
sími 421 8111
Sólvallagata, 12 Keflavík.
Mjög mikið endumýjuð 4 -5 herb.
114m3 n.h. í tvíbýli, bílskúr 29m2.
Flest öll gólfefhi em ný, eldliúsin-
nrétting ný. Eignin var öll tekin í
gegn að utan fyrir 3 ámm.
11.800.000,-
Fasteignasalan Stuðlaberg
sími 420 4000
Smáratún 26, Keflavík.
Um 102nv n.h. í tvíbýli með sérinng.
Ibúðin nýlega endumýjuð, nýjar
innréttinar, ný gólfefni, nýjar hurðar
og skápar. Glæsileg eign. Hagst.
áhv. Skipti á ód. 11.200.000.-
Eignamiðlun Suðurnesja
Sími 421 1700
Fífumói 1-a, Njarðvík.
Mjög falleg 2ja herbergja íbúð á
2. h. Nýlegt parket á stofu. Snyrtileg
sameign. Laus fljótlega. 6.500.000,-
stuttar
f r é t t i r
Tillaga um
lækkuntíma-
gjalds á leik-
skólum felld í
bæjarráði
Jóhann Geirdal og
Ólafur Thordersen,
fulltrúar Samfylking-
arinnar í bæjarráði Reykja-
nesbæjar lögðu fram tUIögu
um að lækka tímagjald á
leikskólum um 9,1% frá
þeirri hækkun sem nýlega
tók gildi. Til-
laga fulltrúa
Samfylkingar-
innar var
felld af meiri-
hlutanum.
I tillögu
Samfylking-
arinnar sem
var felld var
lagt til að
greiðsla foreldra í kostn-
aði yrði sem næst 35% af
rekstrarkostnaði leikskóla án
húsaleigu, enda hafi ekki ver-
ið gert ráð fyrir henni í út-
reikningum á rekstrarkostnaði
til þessa. í greinargerð með
tillögunni segir: „Við teljum
að ef rekstrarkostnaður leik-
skóla er reiknaður á sambæri-
legan hátt og gert hefúr verið
til þessa, þ.e. húsnæðiskostn-
aður ekki tekinn með í rekst-
urinn eins og gert er með
leigu nú, eftir að Fasteign hf.
kom til sögunnar, þá sé ásætt-
anlegt að miðað sé við að for-
eldrar greiði 35% af rekstrar-
kostnaði leikskólans. Þessi
breyting felur í sér um 9,1%
lækkun á tímagjaldi frá því
sem fulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins hafa lagt til.“
I bókun frá fulltrúum Sjálf-
stæðisflokksins í bæjarráði
segir að með hækkun á
grunngjaldi sé miðað við að
ffamvegis greiði foreldrar um
35% af kostnaði við vistun
fyrsta bams á ieikskóla en að
systkinaafsláttur hafi verið
aukinn.
„I heildarkostnaði við rekstur
telst að sjálfsögðu einnig hús-
næðiskostnaður. Öllum sveit-
arfélögum er gert skylt að
gera grein fyrir þeim kostnaði
og innheimta hann, ýmist í
gegnum sérstakan eignasjóð,
eða sem útfærslu í fasteigna-
félag eins og Reykjanesbær
hefúr gert. Niðurstaðan er sú
sama: Húsnæðiskostnaður er
raunverulegur kostnaður, eins
og öll heimili þekkja," segir í
bókun fulltrúa Sjálfstæði-
flokksins sem lögð var ffarn í
bæjarráði fyrir síðustu helgi.
2
VfKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!