Víkurfréttir


Víkurfréttir - 29.01.2004, Qupperneq 6

Víkurfréttir - 29.01.2004, Qupperneq 6
VF-MYND: HILMAR BRAGI BARÐARSON m Kiina í Kaul ján Guðrún Reynisdóttir, oft kennd við Mangó í Keflavík, er orðuð við verslunarstjóra- stöðu í nýrri verslun Sautján sem ætlunin er að opna í Keflavík á þessu ári. Sam- kvæmt heimildum S&S leitar verslunin að hentugu húsnæði á besta stað í Keflavík. 'ffiR.:œrrrei ItíltiA í Iti'wpann? Heyrst hefur að Afengis- og tó- baksverslunin í Keflavík sé að huga að flutn- ingum. Verslunin var í eina tíð þar sem unglingamiðstöðin 88- húsið hefur nú hreiðrað um sig. Þaðan var flutt í Hólm- garðinn þar sem innréttað var á framúrstefnulegan hátt með beygluðum stálplötum, ómál- uðum steini og tréverki. Heim- ildir S&S herma að þaö hús- næði losni bráðlega, því ríkið sé á förum. Sagan segir að búsnæöiö að Hafnargötu 90, þar sem Teppa- land var síðast til húsa og þar áður Dropinn verði næsti við- komustaður ÁTVR. Menn fara því í gamla Dropann til að kaupasopann! ICíii'állan iini Italla ICjaiiia lialln Barátta sveitarfélaganna um eignarrétt sinn á Kalla Bjarna Idol-stjörnu er hafin. Karl B. Guðmundsson sigraði í Idol- stjörnuleit á dögunum. Blaðiö Skessuhorn á Vesturlandi greinir frá þvi í útsíðufrétt að Kalli Bjarni sé að upplagi Grundfirðingur, þar sé hann fæddur og ^ hafi alist upp og að sönghæfileik- Sem kunnugt er af fréttum hefur því verið haldið fram að Kalli Bjarni sé úr Grindavík, enda kappinn búsettur þar. urJaust Sjálfur hefur Kalli Bjarni ekki dregið úr tengingu sinni við Grindavík, bæjarstjórinn hefur hampað honum í sjónvarpinu og lengi mætti telja. Nú er Kalli Bjarni að fara að ganga i gegnum það sama og Leifur l leppni Eiríksson forðum. Er hann Grundfirðingur eða Grindvíkingur. Hann er a.m.k. Islendingur, þó svo faðir hans sé i Noregi... liCyniriinilui' mrA kwsniiigasljwi’ái? Síminn hjá Víkurfréttum ætl- aði vart að til bifreiðar Forseta ís- Wm'nF>'~Zi við hús á Suðurgötunni í Kcflavík. Þar var Ólafur Ragnar Grímsson í heimsókn hjá Eyjólfi Ey- steinssyni, oft nefndum Rikis- stjóra, vegna starfa síns sem verslunarstjóra í ÁTVR í Keflavík. Hvort Ólafur Ragnar var að tryggja sér kosninga- stjóra fyrir komandi forseta- kosningar skal ósagt látiö. Þeir Ólafur og Eyjólfur eru félagar til margra ára úr Alþýðubanda- lagspólitíkinni. Dorrit mun hafa verið tjarri góðu gamni á Suðurgötunni fyrir helgina. I*riiis<‘ssulms í Sáinil- íítTlIÍ til SWlll .. TMMrililB ísprinses en hún hyggst flytjast erlendis um leið og húsið selst. Lconcic hefur sagt í fjölmiölum að hún hyggi á frama erlendis og sé viss um að tónlist hennar eigi eftir að seljast vel þar ytra, líkt og hún hefur selst hér. Að sjálfsögðu óska Víkurfréttir henni gæfu á tónlistarbrautinni erlendis, en það er svo sannarlega prinsessuhús til sölu í Sand- geröi. UMSJÓN: BLAÐAMENN VÍKURFRÉTTA Brúarfoss í Helguvík Brúarfoss, flaggskip Eimskipa, hafði viðkomu í Helguvík á þriðjudag á leið sinni frá Reykjavík og vestur um haf. Skipið tók tólf gáma frá Varnarliðinu og markar það upphaf svokallaðra Varnar- liðsflutninga, sem verða fram- vegis um höfnina í Helguvík. Myndin var tekin þegar skipið sigldi inn í höfhina. > ÁHUGAVERT NÁMSKEIÐ Alfa-námskeið haldið í Garði m: iðvikudaginn 4. febrú- ar kl. 19 verður Alfa- námskeið haldið í safnaðarheimilinu Sæborgu í Garði. Námskeiðinu verður framhaldið á miðvikudags- kvöldum og stendur í tíu vikur. Hver kvöldstund hefst kl. 19 með kvöldmat og lýkur kl. 22. Alfa eru skemmtileg og lifandi námskeið um kristna trú. Nám- skeiðin byggjast upp á sameigin- legri máltíð, fyrirlestri, umræðu og stuttri samveru. Þau henta vel fyrir þá sem vilja kynna sér krist- indóminn og heilaga ritningu á einfaldan og auðskiljanlegan hátt. Spumingar eins og - á krist- in trú erindi við samtíð okkar? er Guð veruleiki? hvert er innhald kristindómsins? hvað segir krist- in trú um þjáningu og dauða? og fleiri tilvistarspumingar sem við öll glímum við eru meðal þess sem lagt er til grundvallar á Alfa námskeiðunum. Alfa er fyrsti stafiirinn í gríska stafrófinu og er námskeiðið um undirstöðuatriði kristinnar trúar. Reynt er að hafa námskeiðið í notalegu og afslöppuðu umhverfi og er kennslan sett fram á einfaldan og aðgengilegan hátt. Alfa námskeið eru nú haldin í flestum kristnum kirkjudeildum í yfir 130 löndum um allan heim. Alfa hefur vakið gífurlega at- hygli enda hafa yfir fjórar millj- ónir sótt námskeiðið. Alfa nám- skeið hafa verið haldin á Islandi í nokkur ár og hefúr þátttaka auk- ist á hverju ári. Það er ástæða til að hvetja alla þá semkost eiga á til þátttöku. Björn Sveinn Björnsson sóknarprestur Útskálum. 50 manns mættu í prufur vegna söngleiks um sögu Hljóma Um 50 manns komu í prufur vegna söng- leiks um sögu Hljóma sem settur verður upp nú á vorönninni. Óhætt er að segja að ósvikið hæfileikafólk hafi komið fram í sviðsljósið í prufunum á föstudag og ljóst að aðstandendur uppsetningarinnar eiga vanda- samt verk fyrir höndum við að velja í hlut- verkin. Framundan eru svo æflngar en áætlað er að frumsýna í lok mars. > ÆVINTÝRAHÚSIÐ í SANDGERÐI Opið hús í Púlsinum 1. febrúar Púlsinn ævintýrahús í Sandgerði verður 1 árs sunnudaginn I. febrúar. í tilefni þess verður opið hús fyrir gesti frá klukkan 13-16 þennan dag, þar sem fólk getur kynnt sér starfsemi hússins og m.a. skráð sig á námskeið sem hefjast í febrúar. Á aðeins einu ári hefúr Púlsinn markað sér spor hjá mörgum íbú- um Suðumesja. Jógatímamir eru afar vinsælir, jógatímum hefur verið fjölgað og starfa nú tveir jógakennarar í Púlsinum. Full- bókað er í byrjendajóga og að- eins örfá pláss laus í kripalu- og kraftjóga. Enn eru nokkur laus pláss í meðgöngujóga. Byijendur jógaiðkunar, sem ekki hafa komist í byijendajóga, hafa líka verið að skrá sig í kripalu- jóga og einhvetjir í kraftjóga. Vinsælu bama- og unglingaleik- listamámskeiðin heljast i næstu viku og nefnast þau núna leiksmiðjur því unnið verður bæði með leiklist og hljóðnema- söng. Yngstu bömin í 1.-3. bekk njóta þess einnig að hverfa inn i ævintýraheim söngs, sagna og spuna. ... 1V W Dansnámskeið ýmiskonar eru einnig að hefjast. Vegna mikilla vinsælda hefúr tímum í afródansi verið fjölgað. Einnig er hægt að kotna í byijendatíma í linudansi en ef fólk kann einhver spor í línudansi þá er tilvalið að skella sér i framhaldshópinn. Orkudans er alveg nýtt form á danstimum sem gefúr skemmti- lega útrás en þar er einnig leitast við að næra anda og sál. Fólk hefúr verið mjög hrifið af áhrif- um orkudansins. Lífsgleði er námskeið fyrir konur sem byggir upp jákvæða sjálfs- mynd og sjálfstraust. Söngsmiðja fer nú i fyrsta sinn af stað fyrir þá sem vilja m.a. þjálfast í dægurlagaflutningi og hljóðnemasöng. Þetta er t.d. frá- bær undirbúningur fyrir þá sem vilja skella sér í Idol keppnina í sumar eða bara syngja sér til ánægju. Námskeið í vinnukonugripi hefúr verið mjög vinsælt og færri komust að en vildu fyrir jól. Skráning gengur einnig vel núna og er nýtt námskeið óðum að fyllast. Nú verður einnig hægt að læra að spila skemmtilega trumbutakta á afrótrommur. Sláttur á afrótrommur þjálfar mjög vel einbeitingu og tilfinn- ingu fyrir rythma. Hægt er að lesa nánar um öll þessi námskeið á heimasíðunni www.pulsinn.is og skrá sig þar eða í síma 848-5366. Fyrsta fræðslukvöld Púlsins verður einnig að kvöldi 1. febrú- ar klukkan 20.00 en þá kemur Gaui litli í heimsókn, hann fjallar um megrun sem virkar og kennir leiðir til léttara lífs. Allir eru hjartanlega velkomnir og er að- gangseyrir 1.000 krónur. 6 VfKURFRÉTTlR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.