Víkurfréttir - 29.01.2004, Blaðsíða 20
ATVINNA
Óskum eftir starfsmanni í ræstingarvinnu,
vaktavinna 2-3-2, hlutastarf.
Upplýsingar í síma 899 0514.
Hilmar R. Sölvason.
Ræstingar.
Fjölbrautaskóli
Suðurnesja
VIRÐING - SAMVINNA - ARANGUR
Framhaldsskólakennarar
Vegna forfalla vantar okkur kennara í hálfa stöðu
í líffræði við Fjölbrautaskóla Suðumesja sem fyrst.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum
framhaldsskólakennara. Ekki er nauðsynlegt að
skila inn umsóknum á sérstöku eyðublaði. Frekari
upplýsingar veita skólameistari Ólafur Jón
Arnbjörnsson og aðstoðarskólameistari Kristján
Ásmundsson í sima 421 3100.
Skólameistari.
Vatnsleysuströnd
Atvinna
Starfsmaður óskast á
Eggjabúið Nesbú ehf. Vatnsleysuströnd.
Starfið feilst í umhirðu og eftirliti á alifuglum,
ásamt öðrum þeim verkum sem til falla.
Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu
og eða þekkingu á landbúnaði.
Reglusemi og stundvísi er skilyrði.
Áhugasamir hafi samband við
framkvæmdastjóra í síma 892 3042.
-•
■ Sturlaugur Ólafsson skrifar:
Eru Suðurnesin metin fjórðungur af
Akureyri við fjárveitingar alþingis?
Fyrir röskum hundraö
árum bjuggu flestir ís-
lendingar í torfbæjum
með moldargólf-
um. Við áttum
nokkra mennt-
aða embættis-
menn en verk-
kunnátta var lít-
il. Nú er öldin
önnur en hvert
stefnir í framhaldsmenntun?
Því miður hefur ekki tekist að
fá ungt fólk sem lokið hefur
grunnskóla til að stunda fjöl-
breytt nám.
Á Suðumesjum hefur verið starf-
andi Fjölbrautaskóli frá 1976. I
fyrstu var góð aðsókn í iðn-og
verknám sem eflaust tengdist því
að hér var ágætur iðnskóli. Áð-
sókn að tréiðnaðardeild hefur
verið þokkaleg að undanfornu,
góð í raf og hársnyrtigreinum en
málmiðnaðardeild hefur legið að
mestu niðri í nokkurn tíma og
dræm aðsókn hefur verið að vél-
stjómardeild. Við lifum í tækni-
væddu samfélagi og mikill skort-
ur er á vel tæknimenntuðu fólki.
Gera verður átak til að laða ungt
fólk til að læra málmiðn-og vél-
stjórn. Nú þegar er mikið um
innflutt vinnuafl vegna skorts á
málmiðnaðarmönnum og ef þetta
ástand varir lengi glatast niður
verkþekking í þessum greinum.
Foreldrar, skólayfirvöld og kenn-
arar gegna hér miklu ábyrgðar-
hlutverki. Tækniskólar kalla eftir
verkmenntuðu fólki til fram-
haldsnáms en þess misskilnings
hefúr gætt að iðn-og verkmennt-
un leiði til blindgötu í mennta-
kerfinu en svo er alls ekki.
Danskur tækniskóli hefur t.d. í
mörg ár sóst eftir verkmenntuð-
um nemum frá FS. Nokkrir nem-
endur hafa nýtt sér þetta og geng-
ið vel. Atvinnuleysi er nær
óþekkt í þessum starfsgreinum.
Hér þarf hugarfarsbreytingu ef
ekki á illa að fara. Menntun er til
góðs fyrir einstaklinginn og sam-
félagið en varast ber einhæfhi, 70
- 80% framhaldskólanema
stefha að akademísku námi. Það
lætur nærri að jafn margir séu að
læra að teikna og hanna bygging-
ar og þeir sem eru að læra að
byggja, allir sjá að þetta gengur
illa upp. Eða er þetta ef til vill allt
í lagi? Við flytjum vinnuafl inn
eftir þörfum og eflum atvinnu-
leysistryggingar? Verkmenntun
er mun kostnaðarsamari en bók-
nám en dýrast verður að glata
henni niður. Verkmenntun hefur
mætt velvilja í pólitískri umræðu
en það dugar skammt ef fjár-
magni er ekki veitt í þau verkefni
sem þarfhast úrlausnar. Þá verður
að gæta þess að þegar fjármun-
um er veitt í iðn-og verkmenntun
aðþeirséu notaðirþar.
Viðbyggingastefna FS.
Nú í haust á að ljúka 4. viðbygg-
ingu við FS. Þriðja útlitið lítur
dagsins ljós því ekki er skipt við
sömu hönnuði. Höfundarréttur
að teikningum gengur kaupum
og sölum, allt er falt fyrir rétta
verðið. Gera á miklar breytingar
á elsta hluta byggingarinnar. Já,
það ætlar lengi að loða við þetta
svæði að hugsa smátt. Skyldi
þetta vera frá beitninga-skúra-
tímabiiinu? Þetta bjargast fyrir
hom í nokkur ár. Innan fárra ára
þarf meira húsnæði. Húsnæðið er
þegar mjög óhentugt eins og
nærri má geta með sífelldum við-
byggingum og dýrum breyting-
um sem ekki hafa alltaf verið
hugsaðar til enda eins og sést á
því t.d. að byggingadeildin flutti
úr 300 ferm. í 240 ferm. árið
1992 og er það nokkuð spaugi-
legt.
Ljóst er að mynda verður skýra
stefnu í byggingamálum fram-
haldsskóla á Suðumesjum. Búið
er að þröngva FS byggingunni
upp að íþróttahúsinu, þarna er
öllu farið að ægja saman og bíla-
stæði jafn mörg og fýlgdu fýrstu
byggingu 1972 svo eitthvað hlýt-
ur að láta undan. Eitthvað hefur
þurft að hagræða bygginga-og
brunamálareglugerð til að koma
þessu heim og saman.
Ég hef fiilla samúð með húseig-
endum i nágrenni við FS enda
eiga þeir í erfiðleikum með að
komast leiðar sinnar. Nemendur
eru sektaðir þegar gert er átak í
ringulreiðinni.
Meistarakerfið víkur...
Nú í haust á að hefjast nýtt
grunnnám fýrir byggingagreinar.
Samkvæmt skipun frá Mennta-
málaráðuneyti átti þetta að byija í
fýrra en FS fékk frest til að byrja
nú í haust.
Mun þetta lengja viðveru nema
um nokkrar annir í FS og tveir til
þrir hópar þurfa að vera samtímis
í byggingadeildinni. Þeir sem til
þekkja gera sér grein fýrir því að
það rými sem nú er til umráða er
allt of lítið til að mæta þessari
breytingu.
Þannig er að nemi sem innritast í
byggingagrein tekur fýrstu önn í
blönduðu námi sem samanstend-
ur af trésmíði, múrverki, málun,
pípulögn, dúklögn og veggfóðr-
un. Síðan velur nemi sér grein
eftir fyrstu önn. Þá verður sú
breyting að nemendur læra iðn-
greinina að mestu í skóla með
starfsþjálfun hjá fýrirtæki í grein-
inni. Húsasmiði er nokkuð fjöl-
menn og ljóst að nægur nem-
endafjöldi er til að ljúka sveins-
prófi frá FS í þeirri grein. I fá-
mennari greinum munu nemar
sækja skóla á höfuðborgarsvæð-
inu. Til að verða við þessari ný-
skipan þarf rými og húsnæðið
þarf að vera samfellt til að nýta
tíma og mannafla. Hér duga eng-
ar hókus pókus aðferðir því betra
er að sleppa þessu námi en
standa illa að því. Ég mæli með
skoðunarferð til Akureyrar ef
menn vilja kynna sér hvemig vel
er staðið að framhaldsskólanum.
Sem dæmi er aðstaðan sem
byggingadeild FS býr við 1/4 af
aðstöðu Verkmenntaskóla Akur-
eyrar og okkur er ætlað að kenna
eftir sömu námsskrá á álíka ijöl-
mennu svæði. Þeir standa sig vel
fýrir norðan og þvi ber að fagna.
Já, það hefur verið okkur dýr-
keypt í gegnum tíðina að hafa
hvorki átt ráðherra hér á Suður-
nesjum né harðsnúna þingmenn
sem vinna vel saman. Kannski
eru ráðamenn á Suðurnesjum
fjórðungsdrættingar á við Norð-
anmenn enda fór enginn til að
taka peninga úr banka hér þegar
mikil kvóti fór í einu lagi norður
á Akureyri.
Sturlaugur Ólafsson
20
VÍKURFRÉTTIRÁ NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!