Víkurfréttir - 08.12.2005, Qupperneq 16
dömuskór, herraskór, barnaskór,stígvél, kuldaskór,inniskór, o.fl.
VÍKURFRÉTTIR T
Frábær verö
eld
Nýi
ar og
ri vorur
STEINAR WAAGE
y()ppskórl
SKÖBUÐIN
Dollarinn dularfulli
Það er hreint með ólíkindum hvað dollari hins
drápsglaða bandaríkjaforseta hefur rokkað að
undanförnu. Gjaldmiðillinn hefur tekið því-
líkar dýfur á árinu að menn hafa vart undan að
ákveða í hvað skuli eytt á fslandinu góða. Amer-
íkuferðir hafa verið uppseldar svo til hvern dag
ársins. Fljúgðu til vesturs og draumaóskirnar
rætast. Buxur á tuttugu dollara og peysur á tíu.
f raun bara klink fyrir okkur víkinga. Að vísu
hefur tollurinn x flugstöðinni tekið á nokkrum
húsmæðrum sem hafa mætt með töskur fyrir
fjórtán. Jafnvel þótt þær hafi verið búnar að rífa
verðmiðana af fatatuskunum, þannig að það
leit út fyrir að þær hefðu komið með garmana
að heiman. Nei, það trikk virkar ekki lengur. Og
meira að segja er FL grúppan farin að vigta tösk-
urnar öðruvísi og heimta yfirvigt af herlegheit-
unum. Ekkert má nú orðið!
En nú er kominn tími til að heimta verðlækkun
hérna heima. FJvernig má það vera að verð á
nauðsynjavörum lækkar lítið sem ekki neitt.
Nú hafa einnig aðrir gjaldmiðlar lækkað gagn-
vart krónunni og því ættum við að sjá allsherjar
lækkun á vöruverði. Væntanlega fitna einhverjir
milliliðir eða heildsalar ef ekkert er að gert. Við
heimtum að sjá hér almenna verðlækkun á nauð-
þurftum þannig að ekki þurfi að
gera auma samninga um 26 þúsund
króna eingreiðslu til að láta almenn-
ing ropa á öxlinni. Verðbólgan í
verðbréfabraskinu vefur okkur um
fingur sér og leyfir öðrum hvorum
manni að bæta við sig einni jóla-
seríu utan á húskofann. Djöfulli er
þetta ástand orðið lýjandi. Hvenær
eru eiginlega kosningar?
Bensínverðið hækkaði jafnvel á
meðan dollarinn lækkaði. Auðvitað
allt Bússaranum að kenna sem heldur alheim-
inum í gíslingu á meðan hann pumpar olíunni
úr iðrum jarðar í frak. Hækkar í raun olíufatið
með því að pumpa svart og framhjá markaðnum.
Helvítis auminginn! Hvar eru vinstri grænir á
Suðurnesjum? Verst hvað þetta fer illa með leigu-
bílstjórana á Miðnesheiðinni, þeir hafa vart tii
hnífs og skeiðar eftir að nýji taxtinn var settur á
og höfuðborgarlýðnum hleypt að flugstöðinni.
Allt samverkandi þættir. Kafaranum varð ekkert
ágengt og því fór sem fór. Niðurskurður á leig-
urum í kjölfarið. Andskotinn sjálfur!
Þoturnar á „beisnum” hafa verið óvenju hljóð-
látar enda lítið til af þotuvökva í geymum setu-
liðsins. Það er rétt svo að það heyrist í þeim á
góðviðrisdögum eða þegar Arni bæjó heimtar að
fá aðgang að olíugeymunum, þá eru Tom, Jack,
Larry og hvað þeir heita nú allir, sendir í loftið til
að sýnast. Það glymur í tómri tunnu tindátanna
og hænan er löngu hætt að verpa gulleggjum.
Baunagrasið hefur verið hoggið og eggin hafa öll
verið spæld í Sparibankanum eða í „Group-um”
í Lúxemborg. En hvað gerurn við þá. Er ekíd best
að fara að undirbúa endanlegan brottflutning
dátanna grænklæddu og kveðja dollaradjásnið í
heiðinni?
dömuskór, herraskór, barnaskór,stígvél, kuldaskór,inniskór, o.l
dömuskór, herraskór, barnaskór,stígvél, kuldaskór,inniskór, o.fl.
VIKURFREJTIR A NETINU I www.vf.is I LESTU NVJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
dömuskór, herraskór, barnaskó^stígvél, kuldaskórjnniskór, o.fl.
dömuskór, herraskór, barnaskór,stígvél, kuldaskórjnniskór, o.fl.
Hólmgarði 2 (áður ríkið)
Opnar Föstudaginn 9 Des kl 12:00
Allt að 80% afsláttur
Opiö
12-18 Mán Föstudaga
10-16 laugardaga
Frá 19-23 des frá kl 1 2-19
dömuskór, herraskór, barnaskór,stígvél, kuldaskór,inniskói