Víkurfréttir - 08.12.2005, Page 20
VÍKURFRÉTTIR SPORT
DAGLEGT SPORT A NETINU WWW.
Arnar Freyr Jónsson og félagar hans I Keflavíkurliöinu
mæta portúgalska liðinu CAB Madeira í 16-liða úrslitum
áskorendabikars Evrópu i kvöld.
Liðin hafa mæst í sömu keppni síðustu 2 ár og hafa
Keflvíkingar unnið heimaleiki sína bæði árin.
Nú eru Madeira-menn með mun sterkara lið en áður
þannig að stuðningur áhorfenda skiptir lykilmáli.
Leikurinn hefst kl. 20.30 og eru allir hvattir til að mæta
og styðja Keflvíkinga til dáða.
.
T
JVesprýði
Digranesi
Meistarflokkur kvenna
Laugardaginn. 10.des. 2005
kl. 14.00
Keflavík - Haukar
vr» Tæ
16 liða úrlsit
íþróttahúsið við Sunnubraut
Sunnudaginn 11. des. 2005
kl. 19.15
Keflavík - Fjölnir
JVesprýði
Langbestt^þ
Suðurnesjasigrar í
síðustu viku
Suðumesjaliðin sigruðu öll sínar viðureignir fimmtudag-
inn 1. desember s.l í Iceland Express deild karla.
Keflavík sigraði Þór frá Akureyri í Sláturhúsinu, 83-61,
og gerði A.J. Moye 30 stig í leiknum. Njarðvíkingar áttu ekki í
vandræðum með botnliðið á Egilsstöðum en lokatölur leiksins
voru 66-102 Njarðvík í vil þar sem Jóhann Ólafsson gerði 26
stig fyrir þá grænu. Grindvíkingar lögðu Fjölni 98-83 í Röstinni
þar sem hinn eldsnöggi Jeremiali Johnson gerði 36 stig.
Hlaut bions á NMU
Sundkonan Helena Ósk
ívarsdóttir vann til brons-
verðlauna í 200m bringu-
sundi á Norðurlandameistara-
móti unglinga sem fram fór í
Laugardalslaug um síðastliðna
helgi.
Guðni Emilsson náði einnig
góðum árangri í 200m bringu-
sundi þegar hann hafnaði í 4.
sæti aðeins 5/100 frá verðlauna-
sæti. Sundmenn ÍRB, Marín
Hrund Jónsdóttir, Guðni Emils-
son, Hafdís Ósk Pétursdóttir og
Helena Ósk Ivarsdóttir stóðu sig
vel á mótinu og voru að synda
við sína bestu tíma eða að bæta
sig.
íslenska landsliðið vann til
þrennra verðlauna á mótinu og
ein af þeim féllu í skaut sund-
manns ÍRB. Líkt og undanfarin
ár hafa sundmenn ÍRB ávallt
verið fremst í flokki í baráttu
um verðlaun á þessu móti.
FIBfl
....... %
Evrópukeppnin
íþróttahúsið við Sunnubraut
Fimmtudaginn 8. des. 2005
kl. 20.30
Keflavík - CAB Madeira
LanebestSí^i
molar
Haraldur til Metalurg?
Úkra ínska
knattspyrnu-
liðið Metalurg
Donetsk hefur
óskað eftir því
að fá Harald
Frey Guðmundsson til æf-
inga hjá félaginu og herma
fréttir að félagið sé þegar
búið að bjóða ótilgreinda
fjárhæð í Harald. Umboðs-
maður Haralds, Guðlaugur
Tómasson, hefur staðfest
að Haraldur sé áhugasamur
um að skoða aðstæður hjá
Metalurg en hann er samn-
ingsbundinn norska liðinu
Aalesund næstu tvö árin.
Sex frá Suðurnesjum í
æfingahóp U16
Sex knattspyrnumenn af
Suðurnesjum hafa verið
valdir til þess að taka þátt í
úrtaksæfingum fyrir U 16
ára landslið karla en þær
fara fram um næstkomandi
helgi, 10. og 11. desember.
Þjálfari U 16 ára landsliðsins
er Freyr Sverrisson, þeir leik-
menn ffá Suðurnesjum sem
valdir voru í þennan tæplega
40 manna æfingahóp eru:
Viktor B. Brynjarsson
Grindavík, Ingimar Ómars-
son, Keflavík, Haukur Örn
Harðarson og Kristjón Freyr
Hjaltested Njarðvík, Hannes
Kristinsson, Reyni og Viktor
Gíslason frá Víði.
íslandsmeistarar inn-
anhúss
Keflvíkingar urðu íslands-
meistarar í innanhúsknatt-
spyrnu karla um helgina
eftir 1-0 sigur gegn KR í
úrslitaleik mótsins. Hörður
Sveinsson gerði eina mark
leiksins með hælspyrnu.
Kvennalið Keflavíkur komst
í undanúrslit innanhús-
mótsins en laut þar í lægra
haldi gegn Breiðablik, 2-1,
en Blikakonur héldu síðan
áfram og tóku titilinn.
Reynir tapaði stórt
Reynismenn töpuðu stórt
gegn Þór Þorlákshöfn í
1. deild karla í körfuknatt-
leik s.l. föstudag þegar liðin
mættust í Þorlákshöfn. Loka-
tölur leiksins voru 99-53
Þórsurum í vil sem trjóna á
toppi deildarinnar um þessar
mundir. Sigurður Gunnars-
son gerði 16 stig fyrir Reyni
en fyrrum leikmaður Kefla-
víkur og Njarðvíkur, Svein-
björn Skúlason, gerði 5 stig
fyrir Þór.
20
VlKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!