Víkurfréttir - 08.12.2005, Side 21
F.IS/SPORT
Kastaði stól inn á völlinn
Haukar sigruðu Grinda-
vík í Iceland Ex-
press deild kvenna
í körfuknattleik á sunnudag,
83-72, en þjálfari Hauka, Ágúst
Björgvinsson, var rekinn út úr
húsi.
Varð Ágúst æfur þegar um 5
mínútur voru til leiksloka og
svo fór að dómarar leiksins
ráku hann út, við það kastaði
hann stól, aftur fyrir sig, inn á
leikvöllinn og hafnaði hann í
einum leikmanni Grindavíkur.
Leikmanninum varð ekki meint
af en hlaut þó smávægilegan
áverka, hegðun af þessu tagi á
ekkert skylt við íþróttir og er
ekki til eftirbreytni. „Það er
hlutverk dómaranna að kæra
atvikið og við munum styðja
dómarana í því máli,” sagði Unn-
dór Sigurðsson, þjálfari Grinda-
víkur, um atvikið. Ágúst var í
framhaldinu dæmdur í tveggja
leikja bann.
Varðandi leikinn sjálfan sagði
Unndór að einbeitningarleysi
hefði verið sökin.
Jerica Watson gerði 30 stig fyrir
Grindavík og tók 19 fráköst.
Kesha Tardy gerði 36 stig fyrir
Hauka og tók 19 fráköst.
Knattspyrnumaðurinn
Hólmar Örn Rúnarsson
úr Keflavik er á förum
frá félaginu og mun ganga til
liðs við sænska fyrstudeildar-
liðið Trelleborg.
Samkomulag hefur náðst um fé-
lagsskiptin og búið er að ganga
frá kaupverðinu, en Hólmar á
sjálfur eftir að semja við Trell-
borg. Hann er nú staddur ytra
í þeim erindagjörðum og í sam-
tali við Víkurfréttir, sagði hann
að honum litist nokkuð vel á
aðstæður. „Ég er búinn að vera
á æfingu hjá þeim og þetta lítur
allt vel út. Við förum svo út í að
semja og þau mál ættu að skýr-
ast á næstu dögum.”
Þegar Hólmar er spurður út í
frekari landvinninga í atvinnu-
mennskunni sagði hann að fyrst
væri að sanna sig hjá Trelleborg.
„Ég verð fyrst að komast að hér,
en svo sjáum við hvað setur.
Þetta er mun betri stökkpallur
út í eitthvað stærra í framtíð-
inni.”
Hólmar Örn sem er 24 ára lék
fyrst með meistaraflokki Kefla-
víkur árið 2000. Síðan hefur
hann leikið 89 deildarleiki fyrir
félagið og skorað í þeim 15
mörk. Hann hefur einnig leikið
15 bikarleiki og skorað þar 4
mörk auk fjögurra Evrópuleikja
í sumar.
Hellulagnir og jarðvinna
Áralöng reynsla -Vönduð vinna - Góð þjónusta
Tökum að okkur hellulagnir og jarðvinnu
Áralöng reynsla, vönduð vinnubrögð
og góð þjónusta
Gerum verðtilboð
Óskar: s. 820 7098 - Trausti: s. 820 7090
Helluprýði - Brekkustíg 42 - Njarðvík
Grindvíkingar urðu fyrstir liða til að
stöðva sigurgöngu Njarðvikinga í
Iceland Express deildinni á sunnudag-
inn var. Framlengja þurfti leikinn sem var jafn
og spennandi allt þar til lokaflautan gall.
Páll Axel Vilbergsson fór hamförum í leiknum og
gerði 38 stig en hann hitti úr 8 af 11 þriggja stiga
skotum sínum. Hjá Njarðvíkingum var Jeb Ivey
með 37 stig og Brenton Birmingham með 34.
Helgi Jónas Guðfinnsson var á nýjan leik í röðum
Grindvíkinga og liðsfélagi hans Þorleifur Ólafsson
átti prýðisleik með 14 stig. Framlengja þurfti leik
liðanna en lokatölur eftir venjulegan leiktíma
voru 94-94 þar sem Guðlaugi Eyjólfssyni tókst
ekki að gera út um leikinn með 3ja stiga skoti fyrir
Grindavík. Njarðvíkingar áttu frumkvæðið í fram-
lengingunni en Grindvíkingar lönduðu sigri með
ótrúlegum lokaspretti og tveimur 3ja stiga körfum
frá Páli Axeli sem breyttu stöðunni úr 102-98
Njarðvík í vil í 102-104 fýrir Grindavík. Fyrrum
leikmaður Njarðvíkur, Páll Kristinsson, gerði svo
lokastig Grindavíkur 102-106. Brenton minnkaði
muninn í 105-106 með langskoti næstum frá
miðju en þar við sat í sannkölluðum ævintýraleik
í Ljónagryfjunni.
Kiwanisklúbbsins Keilis í Duushúsum
Opnum sunnudaginn 11. desember
VÍKURFRÉTTIR I 49. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 8. DESEMBER 2005 121