Fréttablaðið - 17.08.2017, Qupperneq 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —1 9 2 . t ö l u b l a ð 1 7 . á r g a n g u r F i M M t u d a g u r 1 7 . á g ú s t 2 0 1 7
FrÍtt
Fréttablaðið í dag
skoðun Lilja Dögg Alfreðsdóttir
skrifar um fjármálakerfið. 22
sport Níu forverar
Gylfa Þórs sem dýr-
asta knattspyrnu-
manns Íslands eru
langt frá því að ná
samanlagt upp í
kaupverð Everton á
Gylfa. 40
Menning Sigríður Jónsdóttir
leiklistargagnrýnandi skrifar um
Act Alone, einleikjahátíðina á
Suðureyri. 26
lÍFið Futuregrapher og Stereo
Hypnosis skelltu í plötu á
afskekktum stað á Grænlandi. 60
plús sérblað l Fólk
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
Þú ferð lengra með
SAGAPRO
Vinsæl vara við tíðum þvaglátum
Þýski götulistamaðurinn Jakob Wagner fékk óvæntan félagsskap þegar hann endurgerði listaverk sitt á brot úr Berlínarmúrnum í blíðunni í gær. Óblíð veðrátta skemmdi verkið en það
hefur nú verið endurgert þannig að það þolir íslenskt veðurfar. Brotinu var stillt upp við Höfða í október 2015, þegar 25 ár voru frá sameiningu Þýskalands. Fréttablaðið/Ernir
lögregluMál „Í okkar störfum
verðum við vör við að það er meira
af kókaíni í umferð en áður,“ segir
Grímur Grímsson, yfirlögreglu-
þjónn hjá lögreglunni á höfuð-
borgarsvæðinu, en á fyrstu sjö
mánuðum ársins hefur tollgæslan á
Keflavíkurflugvelli lagt hald á tæp-
lega 21 kíló af kókaíni. Eftirspurnin
virðist vera til staðar og haldast í
hendur við efnahagslegan upp-
gang í þjóðfélaginu. Það sem af
er ári hefur verið lagt hald á næst-
um jafnmikið magn af kókaíni og
árin fjögur þar undan til samans.
Götuvirði efnanna sem tekin
hafa verið í flugstöðinni í ár
nemur allt að 370 millj-
ónum króna.
Yfirlögregluþjónn hjá
lögreglunni á Suðurnesjum
segir dópsmygl í ár hafa
verið einsleitt og í raun sér-
stakt að því leytinu til að nú
sé nánast bara kókaín sem
leynist í ferðatöskum
eða líkömum burð-
ardýranna. Efnin hafa öll fundist við
tollleit á erlendum einstaklingum.
Ekki hefur verið lagt hald á við-
líka magn af kókaíni og í ár á einu
ári í fjórtán ár, miðað við afbrota-
tölfræði Ríkislögreglustjóra sem
Fréttablaðið skoðaði aftur til ársins
2003.
Tölurnar gefa, líkt og Grímur
vill meina, vísbendingar um að
kókaíninnflutningur sé ákveðinn
góðærismælikvarði. Þó sveiflur
hafi verið í haldlögðu magni milli
ára þá var lagt hald á töluvert magn
ár hvert frá 2006-2008 eins og sjá
má nánar í blaðinu í dag. Heldur
dró síðan úr magni kókaíns árin
eftir hrun en augljósa uppsveiflu
má síðan greina á síðstu tveimur
árum. – smj / sjá síðu 4
Kókaínflóðið á við síðustu fjögur ár
Stefnir í algjört metár í kókaíninnflutningi. Hald lagt á tæp 21 kíló á Keflavíkurflugvelli á fyrstu sjö mánuðum ársins sem er á við fjögur
ár þar á undan til samans á landinu. Lögregla segir kókaínið fylgja góðæri. Götuvirði efnanna nemur allt að 370 milljónum króna.
Grímur Grímsson,
yfirlögregluþjónn.
Markaðurinn Ný sameinað félag
Iceland Travel og Gray Line hefur
tekið stefnuna á hlutabréfamarkað
og vonast eftir skráningu á næstu
árum. Samanlögð velta félaganna
tveggja var um fimmtán milljarðar
króna í fyrra og er búist við að hún
verði átján milljarðar í ár. Lítið
hefur verið um nýskráningar á
markaðinn undan-
farin ár en aðeins
eitt félag, Skelj-
ungur, var skráð
í Kauphöllina í
fyrra en útlit er
fyrir að eitt félag
komi inn á hluta-
bréfamarkaðinn
í ár, leigufélagið
Heimavellir.
– kri/sjá síðu 18
Sameinast og
stefna á markað
Þórir Garðarsson
1
7
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:2
9
F
B
0
8
8
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
7
F
-6
6
6
4
1
D
7
F
-6
5
2
8
1
D
7
F
-6
3
E
C
1
D
7
F
-6
2
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
8
8
s
_
1
6
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K