Fréttablaðið - 18.09.2017, Síða 10
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kjartan Hreinn Njálssson kjaranh@frettabladid.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili
á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105
reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Halldór
Þorbjörn
Þórðarson
thorbjorn@frettabladid.is
Finndu okkur
á facebook
Flísabúðin kynnir hágæða
Ítalska HELIOSA rafmagnshitara
HELIOSA hitarar henta
bæði innan- og utandyra.
Hitna strax, vindur hefur
ekki áhrif, vatnsheldir og
menga ekki.
Margar gerðir til á lager.
Flísabúðin
Stórhöfða 21 | s: 545 5500 | flis.is
Mannauður er fallegt orð, geðþekkara en sambæri-legt hugtak á ensku: „human resources“, sem gefur í skyn að meðbræður okkar séu auðlind til að nýta.
„Maður er manns gaman“ sagði óþekkt skáld Hávamála og í
því felst að samferðafólkið auðgar tilveru okkar. Sú auðlegð
sem býr í getu manna, þekkingu og hæfileikum hefur gert
mannfólkinu kleift að treysta afkomu sína, lengja líf, bæta
heilsu og byggja upp siðmenningu sem stundum er býsna
fögur.
Í heimi tuttugustu og fyrstu aldar, með öllum sínum tæki-
færum og áskorunum, skiptir mannauður ekki síður máli
en í veröld fornskáldsins. Tækifærin eru mikilfengleg með
tækninýjungum, hnattvæðingu og síauknum skilningi á
náttúrunni og okkur sjálfum. Áskoranirnar eru gríðarlegar
með fólksfjölgun, náttúruvá af margvíslegu tagi, að ónefndri
vaxandi misskiptingu auðs með fylgifiskum hennar: óréttlæti
og ófriði. Til að nýta tækifærin og takast á við áskoranirnar
er þörf fyrir fólk sem hefur verið þjálfað í skipulagðri þekk-
ingarleit og í hugsun sem er í senn gagnrýnin og skapandi.
Það er með öflugu menntakerfi sem þjóðfélög skapa
mannauð af þessu tagi, frá leikskóla upp í háskóla. Leik-
og grunnskólar búa börnum umhverfi þar sem þau öðlast
grunnfærni og eiga að eflast af sjálfstrausti og vinnugleði.
Framhaldsskólarnir byggja á þessu starfi, hlúa að almennri
menntun ungmenna um leið og þeim er leiðbeint á fyrstu
stigum sérhæfingar. Svo tekur æðri menntunin við ýmist sem
starfs-, tækni- eða háskólanám þar sem fyrrnefnd þjálfun fer
fram. Alls staðar í samfélaginu er mannauður mikilvægur
en háskólar hafa sérstöðu því þar er hugað að tækifærum
og áskorunum nútíðar og framtíðar með rannsóknum og
nýsköpun. Í frumvarpi því til fjárlaga sem liggur fyrir þinginu
eru framlög til háskólastigsins enn töluvert lægri en í þeim
löndum sem við berum okkur saman við. Ljóst er að mann-
auður okkar Íslendinga muni rýrna nema stjórnvöld hætti
að svelta háskólastigið.
Alþingi verður að taka fjárlagafrumvarpið til umfjöllunar
en hefur nú óbundnar hendur í ljósi þess að stjórn Bjarna
Benediktssonar er fallin. Rík ástæða er til þess að hvetja hið
ágæta mannval sem situr á þingi til að taka höndum saman
og hækka framlög til háskóla í fjárlögum næsta árs og efla
með því móti mannauð okkar.
Mannauður
Torfi H.
Tulinius
prófessor í
íslenskum
miðaldafræð-
um við HÍ
Ljóst er að
mannauður
okkar
Íslendinga
muni rýrna
nema
stjórnvöld
hætti að
svelta
háskóla-
stigið.
Kosningar
eiga ekki að
vera léttvægt
fyrirbæri í
lýðræðis-
ríkjum
Á meðan vantraust á stjórnmálunum á Íslandi er jafn mikið og raun ber vitni er pólitískt burðarþol gagnvart hneykslis-málum lítið. Það var í þessu andrúmslofti van-traustsins sem forystufólk Bjartrar
framtíðar sá sæng sína upp reidda og sleit ríkisstjórn-
arsamstarfinu. Það getur ekki verið að samstarfið hafi
staðið traustum fótum ef sú ástæða sem gefin hefur
verið fyrir stjórnarslitunum er sönn.
Fyrir þá sem hafa skoðað málið ofan í kjölinn og
kynnt sér skýringar forsætisráðherra er erfitt að
velkjast í vafa um að það hafi verið áfall fyrir hann að
komast að því að faðir hans hafi veitt dæmdum kyn-
ferðisbrotamanni umsögn til að öðlast uppreist æru.
Hér var um að ræða upplýsingar sem forsætisráðherra
virðist hafa fengið óvænt í óspurðum fréttum.
Það voru mistök hjá forsætisráðherra að greina ekki
frá málinu í ríkisstjórn strax í sumar. Það breytir því
hins vegar ekki að ákvörðun Bjartrar framtíðar um
stjórnarslit einkennist af óðagoti. Sérstaklega í ljósi
þess að lögð hafa verið drög að vinnu til að breyta
úreltum lagaákvæðum um uppreist æru. Fyrir Bjarta
framtíð verður trúnaðarbrestur hjá forsætisráðherra
gagnvart meðráðherrum vegna meðmæla sem pabbi
hans skrifaði undir (vegna máls sem var ekki á borði
ríkisstjórnarinnar á neinum tímapunkti) fyrir kyn-
ferðisbrotamann sem er málkunnugur pabbanum.
Forsætisráðherra braut trúnað því skylt mál, ekki
þetta tiltekna mál þegar hér var komið sögu, hafði
samtímis verið í fjölmiðlum. Björt framtíð lætur ríkis-
stjórnarsamstarfið steyta á skeri á þessum forsendum
og slítur því í flýti með rafrænni kosningu án þess að
hafa heyrt skýringar forsætisráðherra. Það verður
að teljast ábyrgðarleysi hjá forystumönnum Bjartrar
framtíðar. Sama hvernig á málin er litið. Er nema
furða að reyndir fréttamenn treysti sér ekki til þess að
útskýra það sem er að gerast í íslenskum stjórnmálum
fyrir erlendum kollegum? Það er ekki hlaupið að því
að setja þennan sirkus í vitrænt samhengi.
Því fylgir ábyrgð að starfa í stjórnmálaflokkum og
enn ríkari ábyrgð fylgir því að gefa kost á sér til þings og
starfa þar sem kjörinn fulltrúi í umboði þjóðarinnar.
Minna en tíu mánuðir eru frá síðustu alþingiskosning-
um og nú stefnir í að kosið verði í þriðja sinn til þings á
fjórum árum. Leita þarf til vanþróaðra ríkja sem búa við
óstöðugt stjórnarfar til að finna eitthvað sambærilegt.
Kosningar eiga ekki að vera léttvægt fyrirbæri í
lýðræðisríkjum. Stjórnmálaumræðan á Íslandi er í
grunnum farvegi. Það eru engin átök um hugmynda-
stefnur heldur er hin pólitíska umræða einhvers konar
refskák hneykslismála þar sem minnihlutinn á inter-
netinu hefur tekið völdin.
Smáflokkar eins og Björt framtíð og Viðreisn verða
aldrei langlífir í stjórnmálum ef þeir ætla að láta vind-
átt í netheimum eða þjóðmálaumræðu dagsins hrikta
í stoðum sínum. Ef stjórnmálaflokkar leyfa innviðum
sínum að mótast alfarið af háværum samkundum
internetsins dæma þeir sig til áhrifaleysis.
Ábyrgðarleysi
Fjölskyldan
Líkt og alkunna er þá er ríkisstjórn
Bjarna Benediktssonar fallin og
eru kosningar fyrirhugaðar á
næstu vikum. Á þeim tíma sem
Bjarni hefur verið þingmaður og
í ríkisstjórn hafa reglulega komið
upp mál sem hafa reynst honum
óþægileg. Eitt slíkt, undirritun
föður hans á meðmælabréf fyrir
uppreist æru dæmds níðings, varð
stjórn hans að falli. Einnig má rifja
upp mál kennt við Borgun. Það
er óneitanlega nokkuð skondið
að erfiðasta stjórnarandstaða
sem Bjarni hefur mætt virðist
ávallt hafa verið í formi Benedikts
Sveinssonar, föður hans.
Röggsemin
Ríkisstjórnarsamstarfinu var
slitið eftir stuttan fund og tveggja
tíma rafræna kosningu hjá stjórn
Bjartrar framtíðar. Var þar gengið
hreint og beint til verks líkt og
engan tíma mætti missa. Þing-
mönnum og ráðherrum Sjálf-
stæðisflokksins þótti það sæta
furðu hve snögglega ákvörðunin
var tekin. Rétt hefði verið að anda
rólega og ræða stöðuna sem upp
var komin. Ekki verður kveðinn
upp dómur um hvað var rétt og
hvað rangt í stöðunni. Það er hins
vegar víst að framganga Bjartrar
framtíðar kom fleirum á óvart
enda flokkurinn hingað til ekki
haft það orð á sér að láta verkin
tala. Kjósendur Bjartrar framtíðar
bölva því eflaust að ráðherrar
flokksins hafi ekki verið jafn
röskir til annara verka. joli@365.is
1 8 . s e p t e m b e r 2 0 1 7 m Á N U D A G U r10 s k o ð U N ∙ F r É t t A b L A ð i ð
SKOÐUN
1
8
-0
9
-2
0
1
7
0
5
:1
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
C
1
-3
1
7
0
1
D
C
1
-3
0
3
4
1
D
C
1
-2
E
F
8
1
D
C
1
-2
D
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
1
7
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K