Fréttablaðið - 18.09.2017, Blaðsíða 34
Strákarnir á bak við veitinga-staðinn Brikk – brauð og eldhús í Hafnarfirði eru miklir
matmenn sem láta sér ekki næga að
framreiða ljúffengan mat á veitinga-
staðnum sínum sem þeir opnuðu
saman snemma í sumar. Félagarnir
heita Davíð Magnússon, sem er bak-
ari, Oddur Smári Rafnsson, sem er
kokkur og Einar Benediktsson sem
er titlaður fjármálagúrú í samstarfi
þeirra. „Ég er algjör „sökker“ fyrir
svínakjöti,“ segir Oddur. „Heima
fyrir leik ég mér mikið með alls
konar útfærslur af t.d. svína snitseli
en sá réttur er í miklu uppáhaldi
hjá mér.“ Davíð og Einar segjast fara
klassískari leiðir í eldhúsinu heima
fyrir. „Við erum meira fyrir gott
nautakjöt og bearnaise-sósu, sem
er eldað saman á fullkominn hátt.“
Þeir eru þó sammála um að þegar
þeir vilji gera sérstaklega vel við sig
heima verði grillaður humar oft fyrir
valinu. „Það er alltaf klassískur réttur
og ekki er verra að hafa einn kaldan
með.“
Úrvals hráefni
Þeir segjast einungis vinna með
úrvals hráefni á Brikk og stytti sér
aldrei leið í eldamennskunni. „Við
notum til dæmis aðeins íslenskt
smjör í smjördeigið okkar og lögum
allar sultur, krem og ganache á
staðnum. Engir innfluttir kleinu-
hringir eru í boði hér á bæ.“
Veitingastaðurinn Brikk var
opnaður um miðjan júní og hafa
viðtökur verið framar vonum
þeirra. „Við bjóðum m.a. upp á
margar tegundir af snúðum, bæði
úr smjör- og gerdeigi, súrdeigs-
brauð og einnig súrdeigsbrauð-
sneiðar með salati. Svo bjóðum við
einnig upp á samlokur og súpu alla
daga sem eru lagaðar eftir pönt-
unum en matseðillinn hjá okkur
breytist reglulega.“
Nýjungar fram undan
Félagarnir eru alltaf að prófa sig
áfram með ýmsar nýjungar. „Núna
erum við að vinna í ýmsum nýjum
vörum fyrir veturinn, eins og paté,
jólasnúðum og fullt af smákökum,
smørrebrød og heitt súkkulaði í
kuldanum. Einnig stefnum við á að
bjóða upp á súrdeigspitsudeig sem
fólk getur kippt með sér heim.“
Hér gefa þeir lesendum Frétta-
blaðsins tvær einfaldar og ljúf-
fengar uppskriftir. „Við völdum
þessar uppskriftir af því að þær
eru auðveldar, gómsætar og algjör-
lega nauðsynlegar á veisluborðið
ætli maður að fara alla leið.“
Pavlova
280 g eggjahvítur
500 g sykur
1 ½ tsk. edik
½ tsk. sítrónusafi
½ tsk. salt
Eggjahvíturnar eru þeyttar og sykr-
inum bætt út í í nokkrum skömmt-
um. Þeyttar þar til hvíturnar hafa
myndað mjúka áferð og leka ekki
af þeytaranum. Ediki, sítrónu-
safa og salti er blandað varlega í
með sleikju. Sett í sprautupoka
og sprautað í þá stærð sem hver
og einn vill. Bakað við 100 gráður
í 45 mín. eða þar til pavlovan er
stökk að utan en mjúk að innan
( fer eftir ofnum). Toppað með til
dæmis þeyttum rjóma, berjum og
súkkulaði.
Súkkulaðitrufflur
560 g dökkt súkkulaði
500 g rjómi
100 g mjúkt smjör
90 g hunang
Hitið rjóma og hunang að suðu.
Hellið honum næst yfir súkkulaðið
og blandað saman. Smjörinu er
bætt út í í nokkrum skömmtum.
Kælið yfir nótt og sprautið
daginn eftir í litlar kúlur og kælið.
Hjúpað með dökku súkkulaði og
setjið kakóduft á kúlurnar áður
en súkkulaðið storknar. Geymist
í kæli.
Stytta sér ekki
leið í eldhúsinu
Félagarnir á bak við Brikk – brauð og eldhús í Hafnarfirði
eru miklir matmenn. Hér gefa þeir lesendum tvær ein-
faldar uppskriftir sem eru nauðsynlegar á veisluborðið.
Tveir af eigendum Brikk – brauð og eldhús. Davíð Magnússon (t.v.) er bakari og Oddur Smári Rafnsson er kokkur. Á
myndina vantar Einar Benediktsson. MYNDIR/VILHELM
Pavlovurnar eru toppaðar með þeyttum rjóma, súkkulaði og berjum.
Súkkulaðitrufflurnar eru þaktar kakódufti.
Heitar, hollar og bragðgóðar súpur tilheyra haustinu og vetrinum og þá er upplagt
að reyna við nýtt hráefni og jafn-
vel óvenjulegar súpur. Sjálfsagt
hafa fáir smakkað súpu úr rófum
en rófur og rauðrófur eru fyrir-
taks hráefni til súpugerðar. Rófan
er mjög auðug af C-vítamínum
og hefur fyrir vikið verið kölluð
appelsína norðursins. Hér er kraft-
mikil súpa úr smiðju Sigurveigar
Káradóttur sem tilvalið er að prófa
á næstunni.
Fyrir 3-4
900 g rófur
4-5 msk. ólífuolía
150 g laukur
100 g sellerí
1 lítri kjúklingakraftur/grænmetis-
kraftur
2 tsk. kúminfræ
1-2 tsk. turmerik
¼ -½ tsk. cayennepipar
Hvítur pipar
Sjávarsalt
200 ml. rjómi ef vill – þeyttur
Laukurinn og selleríið skorið smátt
og sett í pott ásamt ólífuolíunni og
örlitlu sjávarsalti. Látið glærast við
meðalhita en þá er smátt söxuðum
hvítlauk og kúminfræjum bætt
saman við ásamt smátt skornum
rófunum. Kraftinum er bætt í
pottinn ásamt lárviðarlaufum og
kryddum. Látið malla þar til allt er
orðið meyrt. Þá eru láviðarlaufin
veidd upp úr, súpan maukuð og
smökkuð til. Kryddið meira ef
þarf og bætið þeyttum rjómanum
saman við rétt áður en súpan er
borin fram.
Áhugasamir rófuunnendur geta
einnig sótt uppskriftir á vef Félags
gulrófnabænda (www.rofa.is) þar
sem má finna fjölmargar bragð-
góðar uppskriftir úr rófum.
Heimild: www.islenskt.is.
Kraftmikil rófusúpa
365.is Sími 1817
Tryggðu þér áskrift á aðeins 333 kr. á dag*9.990 kr. á mánuði
*9.990.- á mánuði.
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 8 . S E P T E M B E R 2 0 1 7 M Á N U DAG U R
1
8
-0
9
-2
0
1
7
0
5
:1
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
C
1
-3
B
5
0
1
D
C
1
-3
A
1
4
1
D
C
1
-3
8
D
8
1
D
C
1
-3
7
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
1
7
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K