Fréttablaðið


Fréttablaðið - 18.09.2017, Qupperneq 34

Fréttablaðið - 18.09.2017, Qupperneq 34
Strákarnir á bak við veitinga-staðinn Brikk – brauð og eldhús í Hafnarfirði eru miklir matmenn sem láta sér ekki næga að framreiða ljúffengan mat á veitinga- staðnum sínum sem þeir opnuðu saman snemma í sumar. Félagarnir heita Davíð Magnússon, sem er bak- ari, Oddur Smári Rafnsson, sem er kokkur og Einar Benediktsson sem er titlaður fjármálagúrú í samstarfi þeirra. „Ég er algjör „sökker“ fyrir svínakjöti,“ segir Oddur. „Heima fyrir leik ég mér mikið með alls konar útfærslur af t.d. svína snitseli en sá réttur er í miklu uppáhaldi hjá mér.“ Davíð og Einar segjast fara klassískari leiðir í eldhúsinu heima fyrir. „Við erum meira fyrir gott nautakjöt og bearnaise-sósu, sem er eldað saman á fullkominn hátt.“ Þeir eru þó sammála um að þegar þeir vilji gera sérstaklega vel við sig heima verði grillaður humar oft fyrir valinu. „Það er alltaf klassískur réttur og ekki er verra að hafa einn kaldan með.“ Úrvals hráefni Þeir segjast einungis vinna með úrvals hráefni á Brikk og stytti sér aldrei leið í eldamennskunni. „Við notum til dæmis aðeins íslenskt smjör í smjördeigið okkar og lögum allar sultur, krem og ganache á staðnum. Engir innfluttir kleinu- hringir eru í boði hér á bæ.“ Veitingastaðurinn Brikk var opnaður um miðjan júní og hafa viðtökur verið framar vonum þeirra. „Við bjóðum m.a. upp á margar tegundir af snúðum, bæði úr smjör- og gerdeigi, súrdeigs- brauð og einnig súrdeigsbrauð- sneiðar með salati. Svo bjóðum við einnig upp á samlokur og súpu alla daga sem eru lagaðar eftir pönt- unum en matseðillinn hjá okkur breytist reglulega.“ Nýjungar fram undan Félagarnir eru alltaf að prófa sig áfram með ýmsar nýjungar. „Núna erum við að vinna í ýmsum nýjum vörum fyrir veturinn, eins og paté, jólasnúðum og fullt af smákökum, smørrebrød og heitt súkkulaði í kuldanum. Einnig stefnum við á að bjóða upp á súrdeigspitsudeig sem fólk getur kippt með sér heim.“ Hér gefa þeir lesendum Frétta- blaðsins tvær einfaldar og ljúf- fengar uppskriftir. „Við völdum þessar uppskriftir af því að þær eru auðveldar, gómsætar og algjör- lega nauðsynlegar á veisluborðið ætli maður að fara alla leið.“ Pavlova 280 g eggjahvítur 500 g sykur 1 ½ tsk. edik ½ tsk. sítrónusafi ½ tsk. salt Eggjahvíturnar eru þeyttar og sykr- inum bætt út í í nokkrum skömmt- um. Þeyttar þar til hvíturnar hafa myndað mjúka áferð og leka ekki af þeytaranum. Ediki, sítrónu- safa og salti er blandað varlega í með sleikju. Sett í sprautupoka og sprautað í þá stærð sem hver og einn vill. Bakað við 100 gráður í 45 mín. eða þar til pavlovan er stökk að utan en mjúk að innan ( fer eftir ofnum). Toppað með til dæmis þeyttum rjóma, berjum og súkkulaði. Súkkulaðitrufflur 560 g dökkt súkkulaði 500 g rjómi 100 g mjúkt smjör 90 g hunang Hitið rjóma og hunang að suðu. Hellið honum næst yfir súkkulaðið og blandað saman. Smjörinu er bætt út í í nokkrum skömmtum. Kælið yfir nótt og sprautið daginn eftir í litlar kúlur og kælið. Hjúpað með dökku súkkulaði og setjið kakóduft á kúlurnar áður en súkkulaðið storknar. Geymist í kæli. Stytta sér ekki leið í eldhúsinu Félagarnir á bak við Brikk – brauð og eldhús í Hafnarfirði eru miklir matmenn. Hér gefa þeir lesendum tvær ein- faldar uppskriftir sem eru nauðsynlegar á veisluborðið. Tveir af eigendum Brikk – brauð og eldhús. Davíð Magnússon (t.v.) er bakari og Oddur Smári Rafnsson er kokkur. Á myndina vantar Einar Benediktsson. MYNDIR/VILHELM Pavlovurnar eru toppaðar með þeyttum rjóma, súkkulaði og berjum. Súkkulaðitrufflurnar eru þaktar kakódufti. Heitar, hollar og bragðgóðar súpur tilheyra haustinu og vetrinum og þá er upplagt að reyna við nýtt hráefni og jafn- vel óvenjulegar súpur. Sjálfsagt hafa fáir smakkað súpu úr rófum en rófur og rauðrófur eru fyrir- taks hráefni til súpugerðar. Rófan er mjög auðug af C-vítamínum og hefur fyrir vikið verið kölluð appelsína norðursins. Hér er kraft- mikil súpa úr smiðju Sigurveigar Káradóttur sem tilvalið er að prófa á næstunni. Fyrir 3-4 900 g rófur 4-5 msk. ólífuolía 150 g laukur 100 g sellerí 1 lítri kjúklingakraftur/grænmetis- kraftur 2 tsk. kúminfræ 1-2 tsk. turmerik ¼ -½ tsk. cayennepipar Hvítur pipar Sjávarsalt 200 ml. rjómi ef vill – þeyttur Laukurinn og selleríið skorið smátt og sett í pott ásamt ólífuolíunni og örlitlu sjávarsalti. Látið glærast við meðalhita en þá er smátt söxuðum hvítlauk og kúminfræjum bætt saman við ásamt smátt skornum rófunum. Kraftinum er bætt í pottinn ásamt lárviðarlaufum og kryddum. Látið malla þar til allt er orðið meyrt. Þá eru láviðarlaufin veidd upp úr, súpan maukuð og smökkuð til. Kryddið meira ef þarf og bætið þeyttum rjómanum saman við rétt áður en súpan er borin fram. Áhugasamir rófuunnendur geta einnig sótt uppskriftir á vef Félags gulrófnabænda (www.rofa.is) þar sem má finna fjölmargar bragð- góðar uppskriftir úr rófum. Heimild: www.islenskt.is. Kraftmikil rófusúpa 365.is Sími 1817 Tryggðu þér áskrift á aðeins 333 kr. á dag*9.990 kr. á mánuði *9.990.- á mánuði. 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 8 . S E P T E M B E R 2 0 1 7 M Á N U DAG U R 1 8 -0 9 -2 0 1 7 0 5 :1 6 F B 0 4 8 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D C 1 -3 B 5 0 1 D C 1 -3 A 1 4 1 D C 1 -3 8 D 8 1 D C 1 -3 7 9 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 8 s _ 1 7 _ 9 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.