Fréttablaðið - 04.09.2017, Síða 38
Í næstu ferð Með fróðleik í fararnesti verður Laugarnesið í Reykjavík kannað. Ekki eru
allir sem vita að ein frægasta og
umdeildasta kona Íslandssög-
unnar, Hallgerður Langbrók, bjó í
Laugarnesinu í miðri Reykjavík.
Í göngunni verður reynt að svara
því hver þessi kona var og hvort
virkilega sé hægt að búa til boga-
streng úr mannshári. Gunnar
Karlsson, prófessor emeritus við
Háskóla Íslands, leiðir göngu um
Laugarnesið og segir þessar sögur
og fleiri.
Yfirskrift göngunnar er Holds-
veiki og Hallgerður Langbrók, en
gangan fer fram laugardaginn 9.
september næstkomandi. Brottför
verður frá bílastæðinu við Lista-
safn Sigurjóns Ólafssonar í Laugar-
nesi klukkan 11. Gangan tekur um
tvo tíma.
Langbrók í
Laugarnesinu
Laugarnesið geymir ýmsar sögur.
Mynd/Eyþór
Í upphafi vikunnar er tilvalið að breyta út af venjunni og fá sér eitthvað nýtt í morgunmat eða
millimál. Þar sem berjatíminn er
í hámarki er líka sniðugt að nota
berin í matargerð og þá ekki síst í
þeytinga sem auðvelt og fljótlegt
er að útbúa. Þennan þeyting má
gera þunnan eða þykkan, allt eftir
smekk og einnig er gott að setja
múslí út á hann svo hann verði enn
matarmeiri.
1 banani, vel þroskaður
150 g blanda af bláberjum, hind-
berjum og jarðarberjum
Eplasafi eða sódavatn að smekk
Hungang, ef vill
Skerið bananann í bita og setjið í
blandara eða matvinnsluvél. Bætið
berjunum saman við og maukið
vel saman. Blandið safanum eða
sódavatninu saman við eftir smekk
og njótið hollustunnar.
Gott er að nota melónu í staðinn
fyrir banana. Setja má 2-3 msk. af
jógúrt saman við þeytinginn og fá
þannig mýkri áferð á hann.
Magnaður
mánudags-
þeytingur
Hollur og góður berjaþeytingur.
Það er vel þekkt að ólíkur matur verkar mismunandi á líkamann. Sumt er til þess
fallið að hressa en annað er gott
fyrir svefninn. Ef þú átt erfitt með
svefn gætu eftirfarandi fæðuteg-
undir hjálpað.
Lárperur
Lárperur innihalda mikið af
ómettuðum fitusýrum sem geta
aukið magn boðefnisins serótón-
íns í heilanum, en það getur haft
góð áhrif á svefn. Þær innihalda
líka magnesíum sem hjálpar til við
slökun.
Kjúklingabaunir
Þær innihalda amínósýruna
tryptófan sem hjálpar
fólki að sofna. Þær eru
sömuleiðis ríkar af fólín-
sýru sem hjálpar til við að
koma reglu á svefninn og B6 sem
er gott fyrir líkamsklukkuna. Þær
innihalda líka slakandi magn-
esíum.
Bananar
Þeir innihalda kalíum og magn-
esíum en hvort tveggja hjálpar
líkamanum að slaka og gerir fólk
syfjað. Þeir innihalda líka fyrr-
nefnt tryptófan og B6 víta-
mín sem hefur verið tengt við
betri nætursvefn.
Kirsuber
Þau innihalda svefnhormónið
melatónín í það miklu magni að
þau eru gjarnan notuð sem svefn-
meðal.
Hnetur
Margar hnetutegundir innihalda
kalsíum og ómettaðar fitusýrur
sem hjálpa til við að bæta magn
serótóníns í heilanum. Þær inni-
halda líka slakandi magnesíum.
Matur sem bætir svefninn
Frá
morgni
líkama
og sál
fyrir alla
fjölskylduna
í þínu
hverfi t i l kvölds
Sími: 411 5000 • www.itr.is
Fyrir
líkama
Laugarnar í Reykjavík
6 KynnInGArBLAÐ FóLK 4 . s E p t E M B E r 2 0 1 7 M Á N U DAG U R
0
4
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:3
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
A
6
-B
1
5
0
1
D
A
6
-B
0
1
4
1
D
A
6
-A
E
D
8
1
D
A
6
-A
D
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
5
6
s
_
3
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K