Fréttablaðið - 08.08.2017, Síða 34
Þrír fyrrverandi yfirmenn Fiat Chrysler bílasamstæðunnar hafa verið ákærðir fyrir að
stela milljónum dollara úr sjóði
fyrirtækisins sem ætlaður var til
að standa straum af kostnaði við
þjálfun starfsmanna. Einn þessara
yfirmanna, Alphons Iacobelli, bar
varaforstjóratitil. Hin tvö heita
Monica Morgan, ekkja annars vara-
forstjóra Fiat Chrysler, og Jerome
Durden sem gegndi starfi fjármála-
ráðgjafa, en hann var ákærður fyrir
yfirhylmingu. Rannsókn hefur
leitt í ljós að Monica Morgan og
þálifandi eiginmaður hennar og
varaforstjóri, General Holiefield,
notuðu 1,2 milljónir dollara úr
starfsþjálfunarsjóðnum í föt, skart-
gripi, hús og ferðalög. Til dæmis
keyptu þau ferð með einkaflugvél
sem kostaði 30.000 dollara. Iaco-
belli tók um eina milljón dollara úr
sjóðnum til einkanota og gaf þetta
fé auk þess ekki upp til skatts, svo
hann þarf einnig að svara til saka
fyri skattayfirvöldum. Hann keypti
til að mynda forláta Ferrari 458
Spider bíl fyrir fjármunina, leigði
sér einkaflugvélar, lagfærði hús sitt
og eyddi fé í margs konar annan
munað. Öllum hefur þessum starfs-
mönnum verið vikið frá störfum
hjá Fiat Chrysler. Öll verða þau
ákærð fyrir athæfið.
Fyrrverandi
yfirmenn Fiat
Chrysler kærðir
fyrir fjárdrátt
Hjá Mercedes Benz kemur til greina að smíða hreint magn-aða torfæruútgáfu E-Class
bílsins með drifrás ættaða úr G-Class
herjeppanum. Mercedes Benz hefur
þegar smíðað tilraunaeintak af slík-
um bíl og var það verkfræðingurinn
Jürgen Eberle hjá Mercedes Benz sem
fór fyrir því verkefni með fulltingi 24
annarra starfsmanna. Var þessi smíði
í upphafi eins konar gæluverkefni
en nú er svo komið að vel kemur til
greina að fjöldaframleiða bílinn. Eins
og á myndinni af bílnum má sjá þá er
hann æði hár frá vegi og þar sem drif-
búnaðurinn er tekinn upp í grindina
þá er enginn öxull að þvælast fyrir
ef farið er í vænar torfærur. Eberle
segir að hægur vandi sé að framleiða
þennan bíl og engin tæknileg vanda-
mál í veginum. Öll tækni til þess sé
til staðar hjá Mercedes Benz. Þar sem
bíllinn hefur fengið svo mörg jákvæð
ummæli bæði innan Mercedes Benz
og utan fyrirtækisins þá á bara eftir
að sannfæra helstu yfirmenn um
ágæti þess að fjöldaframleiða þessa
óvenjulegu gerð E-Class.
Verður E-Class All-Terrain 4x4 að veruleika?
Það hljómar kannski undar-lega að forstjóri eins stærsta olíufélags heims, Shell hafi
nýlega látið hafa eftir sér að næsti
bíll sem hann hyggist kaupa sé
tengiltvinnbíll. Með slíkum yfir-
lýsingum er nánast eins og hann
sé að lýsa yfir endalokum eigin
fyrirtækis og allrar olíuframleiðslu.
Það er þó líklega orðum aukið
því forstjórinn, Ben Van Beurden,
hefur pantað sér Mercedes Benz
S500e bíl með rafmótorum, en
einnig mjög öflugri brunavél. Bíll-
inn er samtals 436 hestöfl og það
afl kemur bæði frá rafmótorum og
brunavél. Ben Van Beurden lýsti
því reyndar einnig yfir að fjármála-
stjóri Shell, Jessica Uhl, æki um á
BMW i3, en hann gengur eingöngu
fyrir rafmagni. Það eru því ekki
bara yfirlýstir umhverfissinnar sem
kaupa sér rafmagnsbíla og tengil-
tvinnbíla, heldur einnig yfirmenn
olíufélaganna. Ben Van Beurden er
einn þeirra sem telja að mann-
skepnan stuðli nú að hlýnun jarðar
með bruna jarðefnaeldsneytis, þó
svo hann vinni sem forstjóri olíu-
fyrirtækis og að framtíðin liggi í
því að leggja af bruna jarðefnaelds-
neytis og snúa sér að umhverfis-
vænum og endurnýtanlegum
orkugjöfum. Hann telur að mestu
notkun í bruna jarðefnaeldsneytis
sé brátt náð og hún minnki svo
hratt í kjölfarið.
Næsti bíll
forstjóra
Shell verður
tengiltvinnbíll
JEEP® GRAND CHEROKEE VERÐ FRÁ KR. 8.990.000
*
*Jeep Grand Cherokee Laredo dísel 250hö, 8 gíra sjálfskiptur, Quatratrac II fjórhjóladrif með lágu drifi , 18” álfelgur, Led+Xenon framljós, 8,4”
snertiskjár með bakkmyndavél, fjarlægðarskynjarar framan og aftan, hiti í sætum, lykillaust aðgengi og ræsing, rafdrifi n framsæti, stillanleg
aftursæti, tölvustýrð sjálfvirk miðstöð með loftkælingu, regnskynjari, aðgerðarstýri, raddstýrt útvarp o.mfl .
ALVÖRU JEPPI MEÐ HÁU OG LÁGU DRIFI
250 HÖ DÍSEL 8 GÍRA SJÁLFSKIPTING
GERÐU VERÐSAMANBURÐ
jeep.is
JEEP® CHEROKEE VERÐ FRÁ KR. 6.690.000
*
*Jeep Cherokee Longitude 2.2 dísel 185 hö (Limited 200 hö) 9 gíra sjálfskiptur, Select Terrain drif með fjórum
stillingum og Jeep Active drive (Limited útgáfan með lágu drifi ), 17” álfelgur, Led dagljós og afturljós, aftursæti
á sleða til að stækka farangursrými, tölvustýrð sjálfvirk miðstöð með loftkælingu, fjarlægðarskynjarar framan
og aftan, leðurstýri og gírhnúður, aðgerðarstýri, hraðastillir o.m.fl . Longitude Luxury aukalega með rafdrifnum
upphituðum leðursætum og bakkmyndavél, kr. 6.990.000.
ALVÖRU JEPPI
DÍSEL 9 GÍRA SJÁLFSKIPTUR
KOMDU OG REYNSLUAKTU
ÍSLENSK-BANDARÍSKA EHF UMBOÐSAÐILI JEEP® Á ÍSLANDI
ÞVERHOLT 6 · 270 MOSFELLSBÆR · SÍMI: 534 4433 · WWW.ISBAND.IS
8 . á g ú S T 2 0 1 7 Þ R I Ð J U D A g U R12 B í l A R ∙ F R É T T A B l A Ð I Ð
Bílar
0
8
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:2
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
6
F
-1
0
5
4
1
D
6
F
-0
F
1
8
1
D
6
F
-0
D
D
C
1
D
6
F
-0
C
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
7
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K