Fréttablaðið - 03.10.2017, Page 2
Veður
Veður verður stillt fyrri hluta dags
í dag og rigna mun öðru hverju
norðanlands, en annars staðar
verður yfirleitt þurrt. Það mun
hvessa í kvöld og þá bætir í úr-
komuna fyrir norðan. sjá síðu 16
Fjölmenni var viðstatt útför rithöfundarins Sigurðar Pálssonar sem fór fram frá Hallgrímskirkju í Reykjavík síðdegis í gær. Fjölskylda og vinir
kvöddu þar listamanninn sem lést 19. september eftir erfið veikindi. Séra Hjálmar Jónsson jarðsöng og í hópi kistubera voru meðal annars þau
Kristín Helga Gunnarsdóttir, Einar Kárason, Jóhann Páll Valdimarsson, Þórarinn Eldjárn og Guðrún Sigfúsdóttir. Fréttablaðið/Ernir
skipulagsmál Það ræðst í dag
hvort fimm manna fjölskylda, sem
þurfti að yfirgefa heimili sitt vegna
veggjatítlna og myglu í miðbæ
Hafnarfjarðar í vor, fær að byggja
nýtt draumahús í stað þess sem
úrskurðað hefur verið ónýtt.
Anna Gyða Pétursdóttir og Ing-
var Ari Arason, sem búa nú með
börnum sínum þremur í leiguhús-
næði eftir martröðina í vor, vilja
fá að reisa nýtt og stærra steinhús í
gömlum byggingarstíl. Þau bíða nú
niðurstöðu skipulags- og byggingar-
ráðs Hafnarfjarðar um breytt deili-
skipulag fyrir lóðina við Austurgötu
36. Anna segir baráttuna við óliðlegt
og ósveigjanlegt kerfið hafa tekið
verulega á og framlengt óþarflega
martröðina sem málið hefur verið.
„Okkur finnst við vera með raun-
hæfar kröfur um hvað við viljum fá
í staðinn á lóðina. Við viljum byggja
steinhús í gömlum stíl, sem passar
vel í virðulega götu. Okkur hefur
fundist að menn vilji bara annað
lítið bárujárnshús þarna sem væri
galið. Að neyða fólk sem missti hús
í veggjatítlur að byggja annað báru-
járnshús.“
Líkt og fram kom í fjölmiðlum
höfðu Anna og Ingvar farið í minni-
háttar viðhald á húsinu um páskana
þegar versti ótti húsnæðiseigenda
var staðfestur. Veggjatítlur fundust í
húsinu, mygla í þakinu og húsið var
úrskurðað ónýtt. Þau höfðu búið í
húsinu frá árinu 2012 og var þriðja
barn þeirra nokkurra vikna gamalt
þegar málið kom upp.
Þar sem húsið var friðað þurfti
Minjastofnun að veita sérstakt leyfi
til að það yrði rifið. Það leyfi var
veitt. Bærinn veitti fjölskyldunni
styrk til að rífa húsið en enn á eftir
að samþykkja niðurrifið formlega.
Samhugur fólks varð til þess að
hrint var af stað söfnun fyrir fjöl-
skylduna sem stóð húsnæðislaus
eftir. Síðan í sumar hafa málin hins
vegar dregist á langinn.
„Við héldum, kannski í einfeldni
okkar, að það væri vilji til að koma
þessu fljótt og vel í gegn þar sem
einhver myndi leiða okkur í gegn-
um þetta. En við höfum þurft að
berjast út í eitt fyrir okkar hóflegu
kröfum sem studdar eru af emb-
ættismönnum og Minjastofnun. Við
erum orðin mjög þreytt á að standa
í að eyða öllum kvöldum í að skrifa
bréf, lesa deili- og aðalskipulag, lesa
lögin– ofan á allt,“ segir Anna sem
vill að ráðið setji mál þeirra í sam-
hengi. Fjölmörg dæmi séu um sam-
bærilega framkvæmd í miðbænum.
Verði þeim synjað fari allt í lás.
„Við erum ekki tilbúin til að
byggja þarna lítið bárujárnshús.
Við erum orðin þreytt á þessum slag
og við munu ekki rífa þetta hús án
þess að vita hvað við fáum að byggja
í staðinn. Ef þeir ætla að tefja þetta
eða fresta út í hið óendanlega þá
verður húsið bara þarna. Við erum
búin að segja skipulagsfulltrúa það.“
Anna segir þau vona að tillaga
þeirra verði samþykkt. Gangi allt
að óskum geta þau þó aldrei byrjað
að byggja fyrr en um áramót. Ferlið
sé langt og strangt.
mikael@frettabladid.is.
Berjast fyrir draumnum
í veggjatítlumartröð
Það var fimm manna fjölskyldu í Hafnarfirði áfall þegar ljóst varð að heimili
hennar væri ónýtt eftir veggjatítlur og myglu. Þau vildu rífa húsið og byggja nýtt
en þar hófst barátta þeirra fyrir alvöru sem framlengt hefur martröðina.
anna Gyða Pétursdóttir og ingvar ari arason vilja reisa nýtt hús fjölskyldunn-
ar á lóðinni í Hafnarfirði en baráttan er þrautin þyngri. Fréttablaðið/VilHElm
Að neyða fólk sem
missti hús í veggja-
títlur að byggja annað
bárujárnshús.
Anna Gyða Pétursdóttir
Síðan 1927
KAFFI OG KLEINA
VINUR VIÐ VEGINN Í
90 ÁR
90 ÁRA AFMÆLISTILBOÐ Í DAG
90 kr.
Hámark 5 tilboð á mann, meðan birgðir endast
Sigurður Pálsson kvaddur
menntun Enn hefur ekki verið skip-
að í stöður rektors Menntaskólans í
Reykjavík og Fjölbrautaskólans við
Ármúla. Skipa átti í stöðurnar frá og
með 1. október síðastliðnum.
Umsóknarfrestur um stöðurnar
rann út 8. ágúst síðastliðinn eða
fyrir rúmum tveimur mánuðum.
Níu sóttu um stöðu rektors MR og
fjórir um stöðu skólameistara Fjöl-
brautaskólans við Ármúla.
Kveðjuathöfn var haldin til heið-
urs Yngva Péturssyni, rektor MR, á
föstudaginn. Hann lét af störfum í
gær. Það var skólafélagið og nem-
endur sem stóðu fyrir kveðju-
athöfninni.
Starfandi skólameistari Fjöl-
brautaskólans við Ármúla er Ólafur
H. Sigurjónsson. Hann hefur verið
aðstoðarskólameistari um árabil
en er ekki á meðal umsækjenda um
stöðuna. – jhh
Enn á eftir að
skipa rektor MRDÓmsmál Tryggingastofnun var
heimilt að fella niður greiðslur til
örorkulífeyrisþega vegna fjármagns-
tekna sem komu til vegna sölu maka
viðkomandi á hlutabréfum. Þetta
er niðurstaða Héraðsdóms Reykja-
víkur.
Málið á rætur að rekja til ársins
2015. Þá var áætlað að örorkulíf-
eyrir til lífeyrisþegans yrði rúmar
190 þúsund krónur á mánuði. Þær
greiðslur voru felldar niður í mars
á þeim grundvelli að eiginmaður
hennar hefði selt hlutabréf fyrir
12,7 milljónir. Þá var konan krafin
um endurgreiðslu vegna ofgreidds
lífeyris.
Í niðurstöðu dómsins segir að
Alþingi hafi verið innan valdheim-
ilda stjórnarskrárinnar þegar lögfest
var ákvæði um að fjármagnstekjur
maka skyldu koma til frádráttar
við útreikning örorkubóta. Daníel
Isebarn Ágústsson, lögmaður kon-
unnar, segir að málinu verði áfrýjað
til Hæstaréttar. – jóe
Hlutabréfasala
maka mátti
skerða lífeyri
menning Tónlistarmaðurinn Tom
Petty liggur þungt haldinn á sjúkra-
húsi í Los Angeles. Petty er 66 ára
að aldri og fannst meðvitundar-
laus á heimili sínu á sunnudags-
kvöld eftir hjartaáfall. Samkvæmt
fyrstu fréttum var Petty talinn af.
H a n n e r hva ð
þekktastur fyrir
tónlist sína með
hljómsveitinni
Tom Petty and
t h e H e a r t -
breakers sem var
tekin inn í frægð-
arhöll rokksins
árið 2002. – hg
Tom Petty er
þungt haldinn
3 . o k t Ó b e r 2 0 1 7 Þ r i ð j u D a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
0
3
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:3
1
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
2
K
_
N
Y
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
E
4
-1
0
7
0
1
D
E
4
-0
F
3
4
1
D
E
4
-0
D
F
8
1
D
E
4
-0
C
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
0
s
_
2
_
1
0
_
2
0
1
7
C
M
Y
K