Fréttablaðið - 03.10.2017, Blaðsíða 4
STJÓRNSÝSLA Endurákvörðun Ríkis
skattstjóra (RSK) á opinberum
gjöldum hjónanna Önnu Sigur
laugar Pálsdóttur og Sigmundar
Davíðs Gunnlaugssonar felur í sér
að þegar upp er staðið munu þau
greiða minna en þau greiddu sam
kvæmt fyrri skattskilum. Þetta segir
Sigmundur Davíð við Fréttablaðið.
„Það er enn óljóst hversu mikill
heildarsparnaðurinn verður því
hann kemur að miklu leyti til á
næstu árum í formi skattafrádrátt
ar,“ segir Sigmundur. Fréttablaðið
fór fram á það að gögn yrðu lögð
fram sem styddu fullyrðinguna að á
heildina litið fælist hagræði í þessu.
Ekki var unnt að verða við þeirri
beiðni í gær.
„Það hefur vakið furðu mína
hversu langt sumir hafa gengið í að
afbaka staðreyndirnar sem birtust
í dag. Menn virðast sumir hvorki
botna upp né niður í því sem þeir
eru að leysa og búa þá bara til sína
eigin sögu,“ segir Sigmundur.
Í Fréttablaðinu í gær var sagt frá
því að hjónin hefðu óskað eftir því í
maí 2016 að RSK leiðrétti skattfram
töl þeirra gjaldárin 2011 til og með
2015. Leiðréttingin varðaði félag í
hennar eigu, Wintris, sem skráð er
á Bresku Jómfrúaeyjum.
Í erindi hjónanna til RSK kemur
fram að eignir Wintris hefðu verið
taldar fram sem eignir Önnu og
tekjur af félaginu taldar fram sem
fjármagnstekjur hennar. Þessari
tilhögun hafi hún ekki breytt eftir
gildistöku CFCreglna, sem kveða
meðal annars á um að greiða skuli
tekjuskatt hér af hagnaði félags, eins
og Wintris, sem íslenskur skattaðili
á en er í lágskattaríki, árið 2011.
„Í því sambandi hefði verið horft
til yfirlýsts tilgangs með reglunum,
sem væri að sporna við skattundan
skotum, en kærendur hefðu talið
að framtalsmáti þeirra samrýmdist
þessum tilgangi,“ sagði í erindinu. Þá
var tekið fram að það hefði „hugsan
lega verið réttara“ að haga skatt
skilum samkvæmt efni reglnanna.
Með erindinu fylgdu gögn sem
varða Wintris. Ákvörðun RSK fól í
sér að gjaldstofn vegna tekjuskatts
og útsvars var hækkaður en gjald
stofn vegna fjármagnstekjuskatts
var lækkaður. Auðlegðarskattur
var endurákvarðaður en ekki kemur
fram hvort það hafi verið til hækk
unar eða lækkunar. Undu hjónin
þeirri niðurstöðu.
Hluti ákvörðunarinnar var
kærður til yfirskattanefndar. Sneri
sá hluti málsins að færslu vegna
gengisbreytinga á þeim grundvelli
að ekki væri til að dreifa gengis
hagnaði eða gengisbreytingum af
starfsemi Wintris. Yfirskattanefnd
komst hins vegar að annarri niður
stöðu og féllst á kröfur Önnu og Sig
mundar.
Í niðurstöðu nefndarinnar segir
að skattlagning á grundvelli CFC
reglnanna gerði ráð fyrir því að
tekjur hins íslenska skattaðila vegna
eignarhalds á lágskattasvæði séu
skattskyldar með sambærilegum
hætti og um væri að ræða starfsemi
hér á landi. Frá því væru þó sérstak
lega tilgreindar undantekningar.
Taka hefði þurft sérstaklega fram
ef slíkt ætti ekki að gilda um færslu
gengismunar.
Niðurstaðan fól meðal annars í
sér að uppsafnað ónotað frádráttar
bært tap þeirra varð 162 milljónir
króna í stað 50 milljóna. Þá endur
greiddi skatturinn þeim 25 milljónir
sem áður höfðu verið ofgreiddar.
johannoli@frettabladid.is
VETRARSÝNING JEEP
Umboðsaðili Alfa Romeo, Chrysler, Dodge, Fiat, Fiat Professional, Jeep og Ram Trucks á Íslandi - Þverholti 6
270 Mosfellsbær - s. 534 4433 - www.isband.is - isband@isband.is - Opið virka daga 10-18 - Laugardaga 12-16
JEEP SÝNING LAUGARDAGINN
7. OKTÓBER OPIÐ 12 - 17
®
®
Í OKTÓBER FYLGJA STÆRRI
VETRARDEKK ÖLLUM NÝJUM
VERÐ FRÁ 4.390.000.-
TRúféLög Enginn hefur enn náð
stjórnartaumum í trúfélagi zúista
eftir að innanríkisráðuneytið
úrskurðaði í janúar síðastliðnum að
Ísak Andri Ólafs son, sem verið hafði
forstöðumaður frá 1. júní 2015, væri
ekki réttmætur fyrirsvarsmaður
félagsins.
Ísak fór fyrir þeim hópi sem lofaði
meðlimum zúista að fá beint í sínar
hendur sóknargjöld sem ríkið greiðir
fyrir hvern og einn félagsmann trú
félaga, um tíu þúsund krónur á ári.
Varð við þetta mikil fjölgun í félag
inu sem við síðustu skráningu í taldi
2.845 meðlimi og er sjöunda stærsta
trúfélag landsins og það eina án
skráðs forstöðumanns.
Eins og fram kom í Fréttablaðinu í
byrjun ágúst hefur ríkið ekki greitt út
hin lögbundnu sóknargjöld til zúista
frá því í febrúar 2016 vegna þess að
ekki liggur fyrir hver er rétthafi í trú
félaginu. Peningarnir bíða hins vegar
félagsins þegar málin eru komin á
hreint. Búast má við að í hverjum
mánuði bætist um 2,6 milljónir í sjóð
inn sem væntanlega er kominn yfir 50
milljónir króna.
Ágúst Arnar Ágústsson, einn upp
haflegra stofnefnda zúista og annar
svokallaðra Kickstarterbræðra,
hefur gert kröfu um að vera skráður
forstöðumaður zúista. Það er sýslu
mannsembættið á Norðurlandi eystra
sem annast slíka skráningu.
Mikil töf hefur orðið á afgreiðslu
kröfu Ágústs hjá sýslumannsembætt
inu og kvartaði hann undan töfinni
til umboðsmanns Alþingis. Fyrir um
tveimur mánuðum fékk Fréttablaðið
þær upplýsingar hjá sýslumannsemb
ættinu að niðurstöðu væri að vænta í
forstöðumannsmálinu. Þrátt fyrir
margítrekuð símtöl og tölvuskeyti
þangað hafa engar upplýsingar um
stöðu málsins fengist síðan. Hins vegar
má sjá af trúfélagalista embættisins að
enn er enginn forstöðumaður skráður
hjá zúistum, einu trúfélaga í landinu.
Hjá umboðsmanni Alþingis var
með vísan í starfsreglur neitað að gefa
upplýsingar um framgang kvörtunar
málsins þar. Hvorki náðist í Ágúst né
lögmann hans í gær. – gar
Enn stjórnlaust hjá zúistum sem eiga nú um 50 milljóna króna sjóð
fJöLmiðLAR Tekjur Reykjavík Media
námu 16,2 milljónum króna á síð
asta ári og skilaði félagið 6,2 millj
ónum í rekstrarafgang. Fyrirtækið er
í eigu Jóhannesar Kr. Kristjánssonar
fjölmiðlamanns.
Fyrirtækið vann að umfangs
mikilli fréttaumfjöllun um Panama
skjölin og tengsl forsætisráðherra
hjónanna fyrrverandi, Sigmundar
Davíðs Gunnlaugssonar og Önnu
Sigurlaugar Pálsdóttur, við félagið
Wintris.
Fyrirtækið safnaði 100 þúsund
evrum, eða sem nemur rúmum 12
milljónum króna, í gegnum fjár
söfnunarvefinn Karolina Fund. – jhh
Tekjurnar námu
16,2 milljónum
Zúistar byggja á trúarbögðum
Súmera til forna. NORDICPHOTOS/AFP
2,6
milljónir króna af skattfé
bætast í sjóð Zúista í hverjum
mánuði.
Jóhannes Kr.
Kristjánsson
SAkAmáL Hæstiréttur staðfesti í gær
úrskurð héraðsdóms um að Sveinn
Gestur Tryggvason sitji í gæsluvarð
haldi til 26. október næstkomandi.
Þar hefur hefur hann setið síðan 8.
júní síðastliðinn.
Sveinn Gestur er ákærður fyrir
stórfellda líkamsárás þegar ráðist
var á Arnar Jónsson Aspar á Æsu
stöðum í Mosfellsbæ þann 7. júní
með þeim afleiðingum að Arnar
beið bana. Getur brotið sem hann
er sakaður um varðað allt að sex
tán ára fangelsi. Hann hefur ávallt
neitað sök í málinu og þá hafnaði
hann einnig bótakröfu í málinu við
þingfestingu þess þann 14. septem
ber. – hh
Sveinn Gestur
áfram í haldi
Sigmundur segir leiðréttingu
skattstjóra lækka skattbyrðina
Leiðrétting á skattframtölum Önnu Sigurlaugar Pálsdóttur, eiginkonu fyrrverandi forsætisráðherra, skilar
sér í því að hjónin greiða lægri upphæð í ríkissjóð en þau hefðu ella gert. Úrskurður yfirskattanefndar
hækkar frádráttarbært ónotað tap um ríflega 110 milljónir króna. Óljóst hver heildarsparnaðurinn verður.
Óljóst er hve mikill sparnaðurinn er fyrir hjónin Önnu Sigurlaugu Pálsdóttur
og Sigmund Davíð en hann kemur til á næstu árum sem aukafrádráttur.
3 . o k T Ó b e R 2 0 1 7 Þ R i ð J U D A g U R4 f R é T T i R ∙ f R é T T A b L A ð i ð
0
3
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:3
1
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
E
4
-2
4
3
0
1
D
E
4
-2
2
F
4
1
D
E
4
-2
1
B
8
1
D
E
4
-2
0
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
0
s
_
2
_
1
0
_
2
0
1
7
C
M
Y
K