Fréttablaðið - 03.10.2017, Page 12

Fréttablaðið - 03.10.2017, Page 12
3 . o k t ó b e r 2 0 1 7 Þ r I Ð J U D A G U r12 S p o r t ∙ F r É t t A b L A Ð I Ð sport FótboLtI Álftnesingurinn Guðjón Pétur Lýðsson átti frábært tímabil með Íslandsmeisturum Vals í sumar. Hann er búinn að vera lengi í brans- anum og gengið í gegnum ýmislegt og fyrsti Íslandsmeistaratitill hans var því sætur. Síðustu ár hafa ekki verið auð- veld fyrir Guðjón Pétur því hann greindist með sáraristilbólgu fyrir nokkrum árum og því var tvísýnt með framhaldið í boltanum. Barátta í tvö ár „Er ég kom heim frá Svíþjóð þá greindist ég með þennan sjúkdóm. Það er smá vesen. Ég þurfti að berj- ast við hann í um tvö ár og hef ekki fundið fyrir neinu síðan,“ segir Guð- jón en þetta er bólga í yfirborðsslím- húð ristils sem veldur þar sárum og blæðingum. Sjúkdómurinn er lang- varandi og kemur í köstum en þess á milli er sjúklingur einkennalaus. Köstin einkennast af blóðugum, slímkenndum niðurgangi með eða án magaverkja að því er fram kemur á doktor.is. „Það hefur verið hörð vinna hjá mér að komast aftur á sama stað og ég var í boltanum fyrir veikindin og það hefur tekist. Síðustu ár hafa verið mjög góð en þetta var ekki gaman. Það þurfti mikið til að kom- ast í gegnum þetta. Ég þurfti mikla hjálp með mataræðið á þessum tíma og það gerði gæfumuninn.“ Mataræðið gerði gæfumuninn Þetta er sami sjúkdómur og Darren Fletcher, fyrrverandi leikmaður Man. Utd, var að glíma við en hann komst í gegnum það eins og Guðjón Pétur. „Þetta lýsir sér þannig að maður nær ekki að stýra eigin hægðum og það er erfitt að halda mat niðri. Þar af leiðandi verður mikill næringar- skortur og orkuleysi. Ég held það geti ekki margir stundað íþróttir sem eru að glíma við þetta en mér tókst það. Ég samdi við Lukku í Happ og fékk mat á hverjum einasta degi. Ég borðaði hollt og vel. Það gerði meira fyrir mig en einhver lyf sem stöðvuðu þetta á sínum tíma en mataræðið var það sem skipti máli,“ segir miðjumaðurinn en íhugaði hann á einhverjum tímapunkti að hætta í fótbolta er veikindin voru hvað verst? Fór að huga að öðru „Ég var aldrei á því að hætta þó svo ég fengi það frá læknunum að ég ætti að fara að huga að öðrum hlutum. Ég gerði það reyndar og fór að undirbúa aðra hluti í lífinu en fótbolta. Ég fór að smíða og stofn- aði tvö fasteignafélög. Fótboltinn á samt allan minn hug og þetta er í raun fyrsta sumarið eftir veikindin sem ég gerði ekkert annað en að spila fótbolta.“ Það er uppgangur hjá Guðjóni og Valsmönnum og hann er strax orð- inn spenntur fyrir komandi tímabili á Hlíðarenda. „Vonandi gefum við í og fáum fleiri toppleikmenn og náum að gera betur í Evrópukeppni,“ segir Guðjón en var þetta hans besta tímabil í boltanum? Grín að ég sé ekki í liði ársins „Nei. Ég hef átt mörg góð tímabil en held ég fái ekki alltaf athyglina því ég er svo mikið í stoðsendingunum og hjálparsendingunum sem leiða að marki. Ég vil meina að ég sé svo- lítill Iniesta. Það var ekki vitað að hann væri góður fyrr en hann var orðinn 28 ára. Mark- miðið hefur alltaf verið að koma að í kringum 15-20 mörkum. Ég held ég hafi komið að 19 mörkum í sumar og kom að 21 marki hjá Blikum á sínum tíma þannig að ég hef átt nokkur góð tímabil. Ég held ég sé mjög vanmetinn og það er grín að ég sé ekki í liði ársins í Pepsi-mörkunum en það er gott grín.“ henry@frettabladid.is Kom aldrei til greina að hætta í boltanum Guðjón Pétur Lýðsson greindist með sáraristilbólgu fyrir nokkrum árum sem hafði mikil áhrif á feril hans. Hann vann bug á meininu með breyttu mataræði. Álftnesingurinn segist vera mjög vanmetinn knattspyrnumaður. Á fullri ferð. Guðjón Pétur er hér í leik með Valsmönnum í sumar en hann kom að ansi mörgum mörkum liðsins í sumar. FréttaBlaðið/anton Ég held ég sé mjög vanmetinn og það er grín að ég sé ekki í liði ársins í pepsi-mörkunum en það er gott grín. Guðjón Pétur Lýðsson Tímabilin hjá Guðjóni Pétri í úrvalsdeild: 2017 – Valur (1. sæti) 22 leikir 8 mörk 7 stoðsendingar 2016 – Valur (5. sæti) 22 leikir 4 mörk 2 stoðsendingar 2015 – Breiðablik (2. sæti) 20 leikir 4 mörk 6 stoðsendingar 2014 – Breiðablik (7. sæti) 19 leikir 7 mörk 5 stoðsendingar 2013 – Breiðablik (4. sæti) 20 leikir 6 mörk 7 stoðsendingar 2012 – Valur (8. sæti) 20 leikir 1 mark 1 stoðsending 2011 – Valur (5. sæti) 17 leikir 8 mörk 4 stoðsendingar 2010 – Haukar (11. sæti) 21 leikur 3 mörk 2 stoðsendingar 0 3 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :3 1 F B 0 4 0 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D E 4 -1 A 5 0 1 D E 4 -1 9 1 4 1 D E 4 -1 7 D 8 1 D E 4 -1 6 9 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 4 0 s _ 2 _ 1 0 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.