Fréttablaðið - 03.10.2017, Qupperneq 18
Þó svo Porsche hafi uppi áform
um að hætta að bjóða bíla sína
með dísilvélum á það sama ekki
við um systurfyrirtækið Audi.
Audi er nefnilega að hugleiða að
bjóða næstu kynslóð Audi S6 og
S7 bíla sinna með dísilvélum. Audi
hefur náð mikilli sölu á SQ5 og
SQ7 bílum sínum sem búnir eru
öflugum dísilvélum, en SQ5 var
fyrsti bíll sportdeildar Audi sem
búinn var dísilvél og því var fylgt
eftir með því að bjóða SQ7 jepp-
ann með enn öflugri 435 hestafla
dísilvél.
BMW býður einnig M550d
xDrive bíl sinn með öflugri dísilvél
og selst hann líka vel. Stutt er víst
í það að Audi muni sýna nýja kyn-
slóð A6 og A7 bíla sína og verða
öflugri S-gerðir þeirra fyrst í boði
með bensínvélum og svo er líklegt
talið að þeir verði einnig í boði
með öflugum dísilvélum. Ef af því
verður er ekki líklegt að V8 TDI
vélin úr Audi SQ7 verði í S6 og S7
bílunum þar sem hún er of stór
fyrir þá og kemst einfaldlega ekki
fyrir í þeim. Líklegra er að 3,0 lítra
bi-TDI V6 vélin verði í þeim, en
nú er sú vél 326 hestöfl, en líklegt
má telja að Audi útbúi hana í enn
öflugri búningi.
Audi heldur tryggð við
dísilvélar í næstu kynslóð
Hyundai Motor er í 35. sæti á lista yfir 40 verðmætustu fyrirtæki heims þriðja árið
í röð. Fyrirtækið er nú metið á
13,2 milljarða Bandaríkjadala sem
er hækkun um 5,1% frá fyrra ári.
Hyundai er nú sjötti verðmætasti
bílaframleiðandi heims samkvæmt
alþjóðlega greiningarfyrirtækinu
Interbrand. „Við leggjum áherslu á
að kynna okkur sem lífsstílsfyrir-
tæki frekar en bílaframleiðanda við
ímyndaruppbyggingu Hyundai sem
gæðaframleiðanda. Sú stefnumörkun
hefur aflað okkur nýrra tækifæra á
neytendamarkaði þar sem krafist er
mikilla gæða og tækniframfara fyrir
sanngjarnt verð,“ sagði Wonhong
Cho, framkvæmdastjóri markaðs-
mála Hyundai, í tilefni af birtingu
skýrslu Interbrand.
Kona á markað
Alls seldi Hyundai Motor tæpar 4,9
milljónir ökutækja á síðasta ári, fleiri
en margir helstu framleiðenda heims
og hefur fyrirtækið fjórfaldað söluna
síðan 2005. Auk þess að varðveita
gott orðspor fyrirtækisins meðal
neytenda með sölu á áreiðanlegum,
hagkvæmum og sparneytnum bílum
vinnur Hyundai einnig að því að
styrkja stöðu sína frekar á jepplinga-
markaði með nýja sportjeppanum
Kona sem fengið hefur mjög góðar
móttökur hjá viðskiptavinum
fyrirtækisins. Nú þegar eru komnar
meira en tíu þúsund pantanir í Kona.
Þá hefur Hyundai einnig sett i30 á
markað í sérstakri sportútgáfu sem
ber heitið i30N sem án efa á eftir
að láta að sér kveða í alþjóðlega
ökusportinu sem er fram undan.
Mikil gerjun hjá Hyundai
Mikið þróunarstarf á sér stað um
þessar mundir hjá Hyundai á sviði
sjálfbærra samgangna og hyggst
fyrirtækið kynna fimmtán græna bíla
fyrir árið 2020.
Liður í því markmiði er Ioniq sem
kom á markað fyrr á þessu ári og
fljótlega er svo von á nýjum og
rafknúnum vetnisbíl. Enn fremur
vinnur Hyundai að þróun sjálfakandi
bíla sem von er á innan fárra ára.
Huyndai á fleygiferð
inn á verðmætalistana
Er í 35. sæti á lista yfir 40 verðmætustu fyrirtæki heims og er nú sjötti verð-
mætasti bílaframleiðandinn. Seldu alls um fimm milljónir ökutækja á síðasta
ári. Vinnur að því að styrkja stöðu sína á jepplingamarkaðnum.
Keppnislið Renault í Formúlu E, keppnisgrein FIA fyrir raf-knúna keppnisbíla, fór með
sigur af hólmi þriðja árið í röð, en
Renault hefur unnið á hverju ári
síðan keppnisgreinin var sett á lagg-
irnar árið 2015. Í fyrra tók Renault
e.dams tvo titla þegar teymi Renault
var kjörið keppnislið ársins 2016
og Sébastien Buemi ökuþór ársins.
Buemi var aðeins einu stigi frá því
að verða stigahæsti ökumaðurinn
á fyrsta keppnisárinu í Formúlu E,
þ.e. árið 2015. Keppendur Renault
eru staðráðnir í að taka báða titlana
aftur á næsta ári þegar fjórða ver-
tíðin hefst, en víst er að samkeppnin
verður harðari þá þar sem nokkur
lið frá öðrum bílaframleiðendum
hafa boðað þátttöku á næsta ári.
Renault
sigursælt í
Formúlu rafbíla
Volvo er nú að byggja verk-smiðju í S-Karolínu í Banda-ríkjunum og meiningin í
fyrstu var að smíða þar nýju kyn-
slóðina af Volvo XC60 jepplingnum.
Starfsemi í verksmiðjunni, sem er
fyrsta verksmiðja Volvo í Banda-
ríkjunum, á að hefjast haustið 2018.
Volvo hefur nú ákveðið að smíða
þar einnig XC90 jeppann af næstu
kynslóð hans sem koma skal árið
2021. Þessi ákvörðun kemur ef til vill
ekki á óvart í ljósi þess að nú er XC90
jeppinn mest selda bílgerð Volvo í
Bandaríkjunum.
Þeir XC90 bílar sem seljast nú svo
vel vestanhafs eru smíðaðir í Tors-
landa í Svíþjóð og því mætti heil-
mikið spara með því að smíða bílinn
í Bandaríkjunum.
Volvo mun bæta við 1.200 millj-
óna króna fjárfestingu í verksmiðj-
unni vegna smíði XC90 og fjölga
starfsmönnum frá fyrirhuguðum
2.000 starfsmönnum í 3.900.
Volvo mun
smíða XC90 í
Bandaríkjunum
Hyundai Kona sportjeppinn.
Ný kynslóð Audi A6.
JEPPADEKK
fyrir felgustærðir 15 - 16 - 17 - 18 og 20 tommur
Sumar stærðir eru fáanlegar sem burðardekk (D,E).
Icetrack ehf. Sími 773 4334 · mtdekk@mtdekk.is
www.mtdekk.is
3 . o K t ó B e R 2 0 1 7 Þ R I Ð J U D A G U R4 B í l A R ∙ F R É t t A B l A Ð I Ð
Bílar
0
3
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:3
1
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
E
4
-3
C
E
0
1
D
E
4
-3
B
A
4
1
D
E
4
-3
A
6
8
1
D
E
4
-3
9
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
0
s
_
2
_
1
0
_
2
0
1
7
C
M
Y
K