Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.10.2017, Qupperneq 21

Fréttablaðið - 03.10.2017, Qupperneq 21
sekúndur í hundraðið og sneggri en XC90 með sömu drifrás þar sem bíllinn er talsvert léttari. Svona tölur eiga fremur við sport- bíla en sportjeppa og er XC60 T8 fyrir vikið alger raketta. Reyndar telst engin þessara véla neinn letingi og engar þeirra skortir afl. Var það reynt í akstrinum í Barce- lona. Það verður að segjast að aksturs- geta og hegðun XC60 sé enn betri en í XC90 og svo virðist sem Volvo hafi heilmikið lært á milli tilkomu þessara tveggja bíla. Reyndar hefur heyrst að sú reynsla muni síðan einnig skila sér í nýrri árgerðum af XC90 jeppanum. Rásfesta og akstursgeta XC60 er fjári góð og verður að hrósa Volvo fyrir hve vel hefur tekist að setja upp fjöðrun bílsins. Bíllinn er svo hæfilega stífur en samt þægilegur og alveg var sama hvort bíllinn var stilltur í Comfort, Dynamic, Off Road eða Eco akstursstill- ingar, hann var alltaf þægilegur en tilbúinn til átaka. Hér er því kominn hrikalega hæfur akstursbíll sem slær út stóra bróðurnum XC90 og mörgum bílum keppinautanna í leiðinni. XC60 T8 er vörugjaldslaus Þegar velja skal um hvaða gerð Volvo XC60 sé best að kaupa er rétt að hafa í huga að skattalegrar ívilnunar nýtur fyrir tengiltvinn- bíla sem menga undir 50 g/km og það á við XC60 T8. Því fæst með þeirri gerð öflugasta og best búna útfærsla bílsins á aðeins 700.000 krónum meira en þeirri ódýrustu. Engin vörugjöld eru greidd af þeim bíl. Ódýrasta gerð XC60 er með aflminni dísilvélinni og kostar 6.790.000 krónur en XC60 T8 með öskrandi 407 hestafla drifrás kostar 7.490.000 kr. Hafa má einnig í huga þann sparnað sem af því hlýst á líf- tíma bílsins að þurfa örsjaldan að fylla bílinn af eldsneyti, því rafmagnið dugar eitt flesta daga ársins. Þessi T8 gerð bílsins verður þó ekki alveg strax í boði en ætti að fást öðrum hvorum megin við áramótin. Með Volvo XC60 er kominn skæður keppinautur bíla eins og Audi Q5, BMW X3, Við höfum opnað nýtt hjólbarðaverkstæði sem er sérhannað fyrir starfsemina, með tækjabúnaði og aðstöðu til að veita öllum bílum fyrsta flokks hjólbarðaþjónustu. Þetta fullkomna verkstæði býður m.a. upp á þá nýjung að vöruflutningabílar geta ekið í gegnum það. Velkomin, við dekkjum alla bíla í Breiðhöfða. Nesdekk / Breiðhöfða 13 / 110 Reykjavík / nesdekk.is / 590 2080 STÆRÐIN SKIPTIR EKKI MÁLI! Breiðhöfði Nýtt dekkjaverkstæði Breiðhöfða 13 Stokkurinn í miðju bílsins vekur athygli en hann þykir heldur fyrirferðarmikill og of mikið plast í honum. Bíllinn er mjög hljóðlátur og því er hægt að hækka vel í fallegri og hljómþýðri rokktónlist sem yljar að morgni. Bílar B í l a r ∙ F r É T T a B l a ð i ð 7Þ r i ð J U D a G U r 3 . o k T ó B e r 2 0 1 7 0 3 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :3 1 F B 0 4 0 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D E 4 -2 9 2 0 1 D E 4 -2 7 E 4 1 D E 4 -2 6 A 8 1 D E 4 -2 5 6 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 0 s _ 2 _ 1 0 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.