Fréttablaðið - 16.10.2017, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 16.10.2017, Blaðsíða 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —2 4 3 . t ö l u b l a ð 1 7 . á r g a n g u r M á n u d a g u r 1 6 . o k t ó b e r 2 0 1 7 FrÍtt VERTU LAUS VIÐ LIÐVERKI www.artasan.is Eldborg 23. nóv. kl. 19:30 24. nóv. kl. 19:30 25. nóv. kl. 13 & 17 St. Petersburg Festival Ballet ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands harpa.is/thyrniros #harpa Börn 12 ára og yngri fá 50% afslátt. Miðasala í síma 528 5050 og á harpa.is. Fréttablaðið í dag skoðun Telma Tómasson skrifar um karla sem áreita. 13 sport Dagný Brynjarsdóttir er bandarískur meistari í fótbolta. 16 tÍMaMót Aldarfjórðungur síðan Kári seldi frjálst kjöt. 20 lÍFið Hönnuðurinn Erdem Moralioglu segir frá línunni sem hann hannaði í samstarfi við H&M. 28 plús 2 sérblöð l Fólk l  Fasteignir *Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015 Síðasti dagur Hringborðs norðurslóða – Arctic Circle fór fram í Hörpu í gær en þingið hefur staðið yfir frá því á föstudaginn. Ólafur Ragnar Grímsson sleit þinginu í gær. Fréttablaðið/SteFán kosningar Nauðsynlegt er að breyta kosningalögum að mati formanns landskjörstjórnar. Breytingatil­ lögur starfshóps um efnið hafa legið óhreyfðar í rúmt ár. Um helgina dró Íslenska þjóð­ fylkingin fjóra framboðslista fyrir þingkosningarnar til baka eftir að í ljós kom að fólk á meðmælalistum flokksins kannaðist ekki við að hafa ritað nafn sitt á þá. Annmarkar voru á meðmælalistum hjá fleiri flokkum en þeim var gefinn kostur á að færa þá til betri vegar. Í ágúst í fyrra skilaði vinnuhópur um endurskoðun kosningalaga drögum að nýju frumvarpi til kosn­ ingalaga auk skýrslu um tillögur og vinnu sína. Meðal þess sem lagt var til var að heimilt væri að safna með­ mælendum rafrænt. „Þjóðskrá er nú með kerfi þann­ ig að meðmælendur fá tilkynningu inn á Ísland.is um undirskrift sína. Það sem þetta strandar hins vegar á er að fresturinn er svo stuttur að það næst ekki að koma tilkynningunni til fólks áður en listarnir eru staðfestir af kjörstjórn,“ segir Kristín Edwald, formaður landskjörstjórnar. Að mati Kristínar myndu breyt­ ingatillögurnar gera það að verkum að ólíklegt væri að tilvik, sambærileg þeim sem komu upp nú, gætu endur­ tekið sig. Þá segir hún algjöra nauð­ syn að breytingatillögurnar verði að lögum og það sem fyrst. „Það sem ég teldi mikilvægast væru breytingar varðandi tímalínu í aðdraganda kosninga og ýmsa fresti. Þá sérstaklega varðandi framboðs­ frest og kosningu utan kjörfundar.“ Nú er fyrirkomulagið svo að hægt er að greiða atkvæði utan kjörfundar átta vikum fyrir kjördag þótt fram­ boðslistar liggi ekki fyrir fyrr en fimmtán dögum fyrir kjördag. Eins telur hún brýnt að kjörskrá verði gerð rafræn svo fólk geti kosið hvar sem er innan síns kjördæmis. „Það átti enginn von á því að kjör­ tímabilið yrði svona stutt núna og fólk er ekki að hugsa um þetta fyrr en líða fer að kosningum. En þetta eru orðnar afar brýnar breytingar,“ segir Kristín. – jóe Nauðsynlegt að breyta kosningalögum Tillögur að breyttum kosningalögum hafa legið ósnertar í ár. Fram- kvæmd atkvæðagreiðslu utan kjörfundar, skrán- ing á meðmælalista og rafræn kjörskrá er meðal þess sem þyrfti að breyta að mati formanns landskjörstjórnar. neytendur Hús­ móðir í Smá­ íbúðahverfinu í Reykjavík er ósátt við gervi­ vambir og vill meira blóð í slát­ urgerðina. „Hér áður fylgdu ¾ lítrar af blóði einu slátri en nú fylgir einn lítri þremur slátrum. Mér finnst það bara fúlt,“ segir Sigríður Hjálmars­ dóttir, sem tekur fimm slátur í dag, en tók tuttugu á árum áður þegar hún var húsmóðir á barnmörgu bóndabýli. Hún segir máltíðina kosta rúmar 100 krónur á mann. Fréttablaðið kannaði verð og vöruúrval í sláturtíðinni sem stendur nú sem hæst. Verð hefur ekki breyst mikið en  slátur­ gerð er í hnignun að mati smásala sem dásamar slátrið.  – aá / sjá síðu 2 Vill meira blóð 1 6 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :2 7 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K N Y .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D F 9 -5 1 9 0 1 D F 9 -5 0 5 4 1 D F 9 -4 F 1 8 1 D F 9 -4 D D C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 8 s _ 1 5 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.