Fréttablaðið - 16.10.2017, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 16.10.2017, Blaðsíða 10
Það er gott að ráðherr- ann komi fram með þessa hugmynd um að hækka laun kvennastétta og vert að ræða alvarlega. Þórunn Sveinbjarn- ardóttir, formaður BHM Dagskrá: 13:30 -13:40 Setning málþings Pétur Magnússon, formaður Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu og forstjóri Hrafnistuheimilanna 13:40-13:55 Velferðaþjónustan frá sjónarhóli sjálfstæðra rekstraraðila Anna Birna Jensdóttir, stjórnarmaður Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu og framkvæmdastjóri Sóltúns 14:10-14:25 Landspítali - hornsteinn í þjónustu við veika og aldraða Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans 14:10-14:25 Velferðarþjónustan frá sjónarhóli heimaþjónustuaðila Berglind Magnúsdóttir, skrifstofustjóri velferðasviði Reykjavíkurborgar Stutt erindi frá stjórnmálaflokkum Guðlaug Kristjánsdóttir, Björt framtíð Hildur Sverrisdóttir, Sjálfstæðisflokki Jón Þór Ólafsson, Pírötum Oddný G. Harðardóttir, Samfylkingu Steinunn Þóra Árnadóttir, Vinstri græn Þorsteinn Víglundsson, Viðreisn Að framsögum loknum verða pallborðsumræður Fundarstjóri: Þórunn H. Sveinbjörnsdóttir, formaður Landssambands eldri borgara. Hver á stefna Íslands í þjónustu við veika einstaklinga og aldraða að vera? Málþing á vegum Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu. Pétur Magnússon Anna Birna Jensdóttir Jón Þór ÓlafssonHildur Sverrisdóttir Páll Matthíasson Oddný G. Harðardóttir Berglind Magnúsdóttir Steinunn Þóra Árnadóttir Guðlaug Kristjánsdóttir Þorsteinn Víglundsson Þórunn H. Sveinbjörnsdóttir Allir velkomnir, aðgangur ókeypis Málþingið verður haldið á Icelandair Hótel Reykjavík Natura, Þingsal 2, mánudaginn 16. október kl. 13:30-15:45 Málþing Hótel Natura Mánudaginn 16. október 13:30-15:45 Vinnumarkaður Þorsteinn Víg- lundsson jafnréttismálaráðherra vill hækka laun kvennastétta meira en annarra stétta í næstu kjarasamn- ingaviðræðum sem eru handan við hornið. Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður BHM, er áfram um þá hug- mynd. Konur eru að meðaltali með 13 prósent lægri laun en karlar. Að mati Þorsteins bera fjölmargar kvenna- stéttir mikla ábyrgð í erfiðum störf- um sem krefjast langrar menntunar. „Hér erum við að tala um fjölmenna hópa á borð við grunn- og leikskóla- kennara, hjúkrunarfræðinga og svo mætti áfram telja. Tilraunir til að leiðrétta einstaka hópa hafa iðu- lega leitt af sér sömu launakröfur hjá öðrum stéttum,“ segir Þorsteinn. „Það er gott að ráðherrann komi fram með þessa hugmynd og vert að ræða alvarlega. Sautján aðildarfélög BHM eru með lausa samninga við ríkið og þar innan um eru kvenna- stéttir sem þarf að leiðrétta. Hafa ber í huga að þær kvennastéttir sem þurfa leiðréttingu launa sinna eru háskólamenntaðar stéttir,“ segir Þórunn. „Ég hef viðrað álíka hug- myndir áður við SALEK-borðið en þær hugmyndir hlutu ekki náð þá.“ Þórunn segir tímasetningu þessara hugmynda ekki koma á óvart. „Þótt þessar hugmyndir dúkki upp nú, aug- ljóslega í ljósi komandi kosninga, er samt vert að ræða þær af alvöru og vonandi er vilji til þess að hækka laun kvennastétta í þessu landi,“ segir Þórunn. „Eina leiðin til að hægt verði að leiðrétta kjör þessara stétta er víð- tæk sátt allrar verkalýðshreyfingar- innar og ríkis og sveitarfélaga,“ segir Þorsteinn og vill beita sér fyrir því að eyða kynbundnum launamun á íslenskum vinnumarkaði. „Greina verður hver þessi launamunur er og á grunni slíkrar greiningar að semja um hvernig hann verði lagfærður án þess að aðrir hópar innan verkalýðs- hreyfingarinnar geri kröfu um sömu hækkanir.“ sveinn@frettabladid.is Laun kvennastétta hækki umfram aðra Þorsteinn Víglundsson telur æskilegt að kvennastéttir fái launahækkun í komandi kjaraviðræðum umfram aðra hópa. Formaður BHM segir gott að ráðherra sé kominn í lið með sér hvað það varðar. Hugmyndirnar séu þó augljóslega komnar upp vegna kosninganna. Skilgreina þarf sérstaklega kvennastéttir og hækka þeirra laun meira en hinna að mati Þórunnar og Þorsteins. Fréttablaðið/Vilhelm Samfélag Velferðarsvið Reykjavíkur- borgar hefur ákveðið að ítreka upp- lýsingar um afsláttarkort fyrir fatlaða nemendur  til starfsfólks í Ferða- þjónustu fatlaðs fólks, til kynningar fyrir notendur þjónustunnar. Þetta kemur fram í tilkynningu vel- ferðarsviðs til Fréttablaðsins í tilefni umfjöllunar blaðsins síðastliðinn föstudag um  hagstæð kjör  á akst- ursþjónustu sem Reykjavíkurborg býður upp á fyrir fatlaða nemendur en voru ekki kynnt notendum. Í frétt blaðsins var rætt við Ástu K. Ólafsdóttur, móður fatlaðs fram- haldsskólanema, sem greiddi marg- falt hærri fargjöld fyrir son sinn en stóðu til boða, vegna þess að ákveð- ið var að kynna þau ekki fyrir not- endum á meðan þau voru í endur- skoðun. Í tilkynningunni kemur fram að borgin vildi að kortin yrðu kynnt á vefsíðu Strætó bs. og unnt yrði að sækja um þau þar. Strætó hafi hins vegar tekið ákvörðun um að kynna kortin ekki á sínum vef þar sem önnur sveitarfélög á höfuðborgar- svæðinu buðu ekki upp á þessi kjör. Þá kemur einnig fram í tilkynn- ingunni að ráðgjafar borgarinnar í aksturs- og ferðaþjónustu hafi fengið upplýsingar um nemakortin eftir að velferðarráð tók ákvörðun í júní 2016 um að bjóða upp á þau fyrir fatlaða nemendur í framhalds- og háskólum. Þær upplýsingar hafa nú verið ítrekaðar til ráðgjafanna. – aá Bæta kynningu vegna korta fyrir nemendur Strætó sér um akstursþjónustu á höfuðborgarsvæðinu. Fréttablaðið/SteFán Stjórnmál Nokkrir nafntogaðir Sjálfstæðismenn hafa gagnrýnt mál- flutning Ásmundar Friðrikssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, um málefni hælisleitenda. Ásmundur sagði í grein sem birtist í Morgun- blaðinu að ræða þurfi kostnað vegna hælisleitenda. Heimafólk líði fyrir fjölgun hælisleitenda á Íslandi. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ritari Sjálfstæðisflokksins, segir á Twitter-síðu sinni að stefna Sjálf- stæðisflokksins sé skýr, en þar segi að móttaka flóttamanna sé sjálfsögð. Deilir hún um leið myndbandi þar sem Bjarni Benediktsson, for- maður Sjálfstæðisflokksins, segir Sjálfstæðisflokkinn vilja taka á móti flóttafólki og að Ísland geri sitt til að takast myndarlega á við flóttamanna- vandann. Þordís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, starfandi iðnaðar- og nýsköpunarráðherra Sjálfstæðis- flokksins, endurbirtir tíst Áslaugar. Magnús Sigurbjörnsson, fyrr- verandi framkvæmdastjóri borgar- stjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins og bróðir Áslaugar, segir tilefni hafa gefist til yfirstrikana og í sama streng tekur Davíð Þorláksson, fyrrverandi formaður Sambands ungra sjálf- stæðismanna. – bo, kó Gagnrýna Ásmund ásmundur Friðriksson þingmaður. 1 6 . o k t ó b e r 2 0 1 7 m á n u D a g u r10 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð 1 6 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :2 7 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D F 9 -6 5 5 0 1 D F 9 -6 4 1 4 1 D F 9 -6 2 D 8 1 D F 9 -6 1 9 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 8 s _ 1 5 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.