Fréttablaðið - 16.10.2017, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 16.10.2017, Blaðsíða 44
Það ríkir alltaf mikil spenna þegar þekkt tískuhús fara í sam-starf með H&M og senda frá sér línur á tiltölulega viðráðan- legu verði. Í nóvem- ber mun samstarf tískuhúss ERDEM og H&M koma í útvaldar verslanir, þar á meðal H&M í Smáralind, og tískuspekúlantar bíða með eftirvæntingu. Kanadísk/tyrkneski hönnuðurinn Erdem Moralioglu, maðurinn á bak við ERDEM, er spenntur fyrir sam- starfinu við H&M en nú er hann kominn í hóp tískuhúsa og hönnuða á borð við Balmain, Karl Lagerfeld, Stellu McCartney, Kenzo og Lanvin. Spurður út í hvernig honum þyki að feta í fótspor þeirra hönnuða og tískuhúsa sem hafa unnið línur í samstarfi við H&M segir hann: „Það er æðislegt að feta í fót- spor þeirra. Listinn yfir hönnuðina er ótrúlegur, það er mér heiður að komast í hóp þeirra.“ Aðspurður hvernig hann Nálgaðist það gamla á nýjan hátt Þessi hlýja kápa er í miklu uppáhaldi hjá Ann-Sofie. myndi lýsa línunni, sem hann hann- aði í samstarfi við H&M, segir hann hana vera innblásna af verkum sínum sem hann hefur unnið í gegnum tólf ára tímabil. „ERDEM x H&M-línan snerist m.a. um líta til baka og endurskoða eldri snið og skilja hvernig hægt er að nálgast þau á nýjan hátt. Ég lagði svo áherslu á að þetta væru eigulegar flíkur.“ Hlakkar til að sjá viðbrögð karla ERDEM x H&M hefur að geyma flík- ur fyrir bæði karla og konur en þetta er í fyrsta sinn sem ERDEM vinnur línu fyrir karlmenn. „Ég er mjög spenntur að sjá hver viðbrögð karl- manna verða við línunni. Það verður áhugavert að sjá hvernig þeim mun takast að nýta flíkurnar við það sem þeir eiga til í fataskápnum nú þegar,“ útskýrir hann. Spurður út í hvort hann ætli að halda áfram að hanna fyrir karlmenn segir hann: „Ég ætla að sjá hvernig móttök- urnar verða áður en ég tek ákvörðun um hvort ég fari að gera karla- línur fyrir ERDEM.“ En hver er mun- urinn á að vinna að hátískulínu í saman- burði við línu í ódýr- ari kantinum? „Það er góð spurning vegna þess að þegar ég féllst á að koma í samstarf með H&M þá vissi ég að ég þyrfti að einbeita mér að því að flíkurnar gætu orðið eins fallegar og mögulegt er. Ég var ákveðinn í að gera sniðin eins glæsileg og hægt er og að nota eins falleg efni og ég kæmist í. Svo er mikil áhersla lögð á öll smáatriði í frágangi,“ segir Erdem. Það sem vakti athygli blaðamanns er að í lín- unni eru peysur sem minna óneitanlega á íslenskar ullar- peysur. Spurður út í hvaðan innblástur- inn á bak við þær peysur komi segir Erdem innblást- urinn koma frá Noregi. „Reyndar eru þær byggðar á norskum peysum. Þetta er mín túlkun á peysunni sem ég klæddist daglega þegar ég gekk í skóla í Kanada, þar sem ég ólst upp. Það var æðislegt fyrir mig að fá tækifæri til að líta til baka, til barnæskunnar, og gera flíkur sem eru innblásnar af fötum sem ég, systir mín og foreldrar klæddumst.“ Erfitt að velja uppáhaldsflík Ann-Sofie Johans- s o n , l i s t r æ n n stjórnandi hjá H&M, hefur yfir- sýn með öllu sam- starfi sem H&M fer í með tískuhúsum. Ann-Sofie er afar ánægð með útkomu samstarfsins við ERDEM. „Þegar við höfðum ákveðið í sameiningu um hvers konar línu yrði að ræða þá fékk Erdem frjálsar hend- ur í hönnunarferl- inu. Svo var það okkar hlutverk að finna leið til að framleiða flíkurnar þannig að þær yrðu á viðráðanlegu verði fyrir viðskiptavini okkar. Eftir það tók við áframhaldandi þróunar- vinna,“ segir Ann-Sofie spurð út í vinnuferlið á bak við línuna. „Línan er öll mjög fjölbreytt. Maður getur auðveldlega notað flík- urnar við bæði hversdagsleg tilefni og líka fín tilefni.“ Á hún sér uppáhaldsflík úr línunni? „Það er erfitt að velja bara eina, ég elska alla línuna! Ég er mjög hrifin af dragtinni úr mynsturofnu efni, flík- urnar úr „tweed“-efni og gervipelsinn með hlébarðamynstri, þessar flíkur með skreyttri handtöskunni eru mjög töff saman. Og það er líka gaman að blanda flíkum úr karlmannslínunni saman við aðrar flíkur.“ Ann-Sofie segir viðbrögðin við nýju línunni hafa verið afar jákvæð. „Það er líka dásamlegt að fólk sem þekkir ekki til ERDEM fái að kynn- ast merkinu vegna þessa samstarfs.“ Hönnuðurinn Erdem Moralioglu, maðurinn á bak við ERDEM, er nýjasti hönnuðurinn til að komast í það eftirsótta verkefni að vinna fatalínu með H&M. Innblásturinn kom úr ýmsum áttum við gerð línunnar, meðal ann- ars frá flíkum sem hann klæddist sem barn og ullarpeysur línunnar eru dæmi um það. ÞEtta Er MíN túlkuN á pEysuNNi sEM ég klæddist daglEga ÞEgar ég gEkk í skóla í kaNada, Þar sEM ég ólst upp. Erdem Ann-Sofie og Erdem ásamt leikstjóranum Baz Luhrmann (t.h.) sem gerði stuttmynd og auglýsingar fyrir ERDEM x H&M- línuna. Ullarpeysur línunnar minna óneitanlega á íslensku ullar- peysurnar. Guðný Hrönn gudnyhronn@365.is ELDHÚS BAD FATASKÁPAR BYKO BREIDD 1 6 . o k t ó b e r 2 0 1 7 M Á N U D A G U r28 l í f i ð ∙ f r É t t A b l A ð i ð Lífið 1 6 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :2 7 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D F 9 -7 9 1 0 1 D F 9 -7 7 D 4 1 D F 9 -7 6 9 8 1 D F 9 -7 5 5 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 8 s _ 1 5 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.