Fréttablaðið - 16.10.2017, Page 44
Það ríkir alltaf mikil spenna þegar þekkt tískuhús fara í sam-starf með H&M og
senda frá sér línur á
tiltölulega viðráðan-
legu verði. Í nóvem-
ber mun samstarf
tískuhúss ERDEM
og H&M koma í
útvaldar verslanir, þar á
meðal H&M í Smáralind,
og tískuspekúlantar
bíða með eftirvæntingu.
Kanadísk/tyrkneski hönnuðurinn
Erdem Moralioglu, maðurinn á bak
við ERDEM, er spenntur fyrir sam-
starfinu við H&M en nú er hann
kominn í hóp tískuhúsa og hönnuða
á borð við Balmain, Karl Lagerfeld,
Stellu McCartney, Kenzo og Lanvin.
Spurður út í hvernig honum
þyki að feta í fótspor þeirra
hönnuða og tískuhúsa sem
hafa unnið línur í samstarfi
við H&M segir hann: „Það
er æðislegt að feta í fót-
spor þeirra. Listinn yfir
hönnuðina er ótrúlegur,
það er mér heiður að
komast í hóp þeirra.“
Aðspurður hvernig hann
Nálgaðist það gamla á nýjan hátt
Þessi hlýja kápa er í miklu
uppáhaldi hjá Ann-Sofie.
myndi lýsa línunni, sem hann hann-
aði í samstarfi við H&M, segir hann
hana vera innblásna af verkum
sínum sem hann hefur unnið í
gegnum tólf ára tímabil. „ERDEM x
H&M-línan snerist m.a. um líta til
baka og endurskoða eldri snið og
skilja hvernig hægt er að nálgast þau
á nýjan hátt. Ég lagði svo áherslu á að
þetta væru eigulegar flíkur.“
Hlakkar til að sjá viðbrögð karla
ERDEM x H&M hefur að geyma flík-
ur fyrir bæði karla og konur en þetta
er í fyrsta sinn sem ERDEM vinnur
línu fyrir karlmenn. „Ég er mjög
spenntur að sjá hver viðbrögð karl-
manna verða við línunni. Það verður
áhugavert að sjá hvernig þeim mun
takast að nýta flíkurnar við það sem
þeir eiga til í fataskápnum nú þegar,“
útskýrir hann. Spurður út í hvort
hann ætli að halda áfram að hanna
fyrir karlmenn segir hann: „Ég
ætla að sjá hvernig móttök-
urnar verða áður en ég
tek ákvörðun um hvort
ég fari að gera karla-
línur fyrir ERDEM.“
En hver er mun-
urinn á að vinna að
hátískulínu í saman-
burði við línu í ódýr-
ari kantinum? „Það er
góð spurning vegna þess
að þegar ég féllst á að
koma í samstarf með H&M
þá vissi ég að ég þyrfti að
einbeita mér að því að
flíkurnar gætu orðið eins
fallegar og mögulegt er.
Ég var ákveðinn í að gera
sniðin eins glæsileg og
hægt er og að nota eins
falleg efni og ég kæmist
í. Svo er mikil áhersla
lögð á öll smáatriði í
frágangi,“ segir Erdem.
Það sem vakti athygli
blaðamanns er að í lín-
unni eru peysur sem
minna óneitanlega
á íslenskar ullar-
peysur. Spurður út í
hvaðan innblástur-
inn á bak við þær
peysur komi segir
Erdem innblást-
urinn koma frá
Noregi. „Reyndar
eru þær byggðar á norskum
peysum. Þetta er mín
túlkun á peysunni sem
ég klæddist daglega
þegar ég gekk í skóla
í Kanada, þar sem
ég ólst upp. Það var
æðislegt fyrir mig að
fá tækifæri til að líta til
baka, til barnæskunnar,
og gera flíkur sem eru
innblásnar af fötum
sem ég, systir mín og
foreldrar klæddumst.“
Erfitt að velja
uppáhaldsflík
Ann-Sofie Johans-
s o n , l i s t r æ n n
stjórnandi hjá
H&M, hefur yfir-
sýn með öllu sam-
starfi sem H&M fer
í með tískuhúsum.
Ann-Sofie er afar
ánægð með útkomu
samstarfsins við ERDEM.
„Þegar við höfðum
ákveðið í sameiningu
um hvers konar línu
yrði að ræða þá fékk
Erdem frjálsar hend-
ur í hönnunarferl-
inu. Svo var það
okkar hlutverk að
finna leið til að framleiða flíkurnar
þannig að þær yrðu á viðráðanlegu
verði fyrir viðskiptavini okkar. Eftir
það tók við áframhaldandi þróunar-
vinna,“ segir Ann-Sofie spurð út í
vinnuferlið á bak við línuna.
„Línan er öll mjög fjölbreytt.
Maður getur auðveldlega notað flík-
urnar við bæði hversdagsleg tilefni og
líka fín tilefni.“
Á hún sér uppáhaldsflík úr línunni?
„Það er erfitt að velja bara eina, ég
elska alla línuna! Ég er mjög hrifin af
dragtinni úr mynsturofnu efni, flík-
urnar úr „tweed“-efni og gervipelsinn
með hlébarðamynstri, þessar flíkur
með skreyttri handtöskunni eru mjög
töff saman. Og það er líka gaman að
blanda flíkum úr karlmannslínunni
saman við aðrar flíkur.“
Ann-Sofie segir viðbrögðin við
nýju línunni hafa verið afar jákvæð.
„Það er líka dásamlegt að fólk sem
þekkir ekki til ERDEM fái að kynn-
ast merkinu vegna þessa samstarfs.“
Hönnuðurinn Erdem Moralioglu, maðurinn
á bak við ERDEM, er nýjasti hönnuðurinn til
að komast í það eftirsótta verkefni að vinna
fatalínu með H&M. Innblásturinn kom úr
ýmsum áttum við gerð línunnar, meðal ann-
ars frá flíkum sem hann klæddist sem barn
og ullarpeysur línunnar eru dæmi um það.
ÞEtta Er MíN
túlkuN á pEysuNNi
sEM ég klæddist daglEga
ÞEgar ég gEkk í skóla í
kaNada, Þar sEM ég ólst upp.
Erdem
Ann-Sofie
og Erdem ásamt
leikstjóranum Baz
Luhrmann (t.h.) sem
gerði stuttmynd og
auglýsingar fyrir
ERDEM x
H&M-
línuna.
Ullarpeysur
línunnar minna
óneitanlega á
íslensku ullar-
peysurnar.
Guðný
Hrönn
gudnyhronn@365.is
ELDHÚS BAD FATASKÁPAR
BYKO BREIDD
1 6 . o k t ó b e r 2 0 1 7 M Á N U D A G U r28 l í f i ð ∙ f r É t t A b l A ð i ð
Lífið
1
6
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
F
9
-7
9
1
0
1
D
F
9
-7
7
D
4
1
D
F
9
-7
6
9
8
1
D
F
9
-7
5
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
1
5
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K