Fréttablaðið - 16.10.2017, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 16.10.2017, Blaðsíða 6
Við erum ekki að spila neinn rekstrar- legan póker. Spilin liggja á borðinu og við erum í mjög góðri samvinnu við Vega- gerðina og samgönguráðu- neytið um þessi mál. Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vest- mannaeyjum K2 kuldajakki Vatteraður kuldajakki með hettu sem hægt er að smella af. 8.385 kr. Verð áður: 12.900 kr. 8.385 kr. Verð áður: 12.900 kr. Alltaf til staðar N1 Klettagörðum 13 og verslanir N1 um land allt 440 1000 www.n1.is Tilboð gildir út október 2017 www.n1.is facebook.com/enneinn 35% afsláttur Októbertilboð K2 kuldabuxur Vatteraðar kuldabuxur með smekk og axlaböndum.  4.000 hektarar brenna Í Galiciu í norðvesturhluta Spánar hafa eldar lagt undir sig meira en 4.000 hektara af landi. Þurrt veðurfar og hiti eru kjörskilyrði fyrir eldana og enginn veit hvort hægt er að hemja þá. Villihestarnir í Boiro láta sér þó fátt um finnast og sækja sér tuggu hvar sem hún finnst. Fréttablaðið/EPa Samgöngur Samningaviðræðum ríkisins og Vestmannaeyjabæjar um að síðarnefndi aðilinn taki við rekstri Vestmannaeyjaferjunnar miðar hægt en örugglega, að sögn Elliða Vignissonar bæjarstjóra. „Ráðherra hefur tekið mjög vel í þessa hugmynd. Hann hefur þegar falið Vegagerðinni að skila ráðu- neytinu drögum að samningi við okkur. Við höfum á sama tíma verið að undirbúa okkur fyrir þess- ar samningaviðræður og vinnum þær með annars vegar Bonafide lögmannsstofunni og hins vegar Analyt ica varðandi rekstrarhag- fræðina,“ segir Elliði. Hann vonast til að ráðuneytið verði komið með samningsdrögin strax í þessari viku. „Við þekkjum þennan rekstur alveg ágætlega, eins og hægt er í gegnum excel-skjöl. Við teljum að að gefnum ákveðnum forsendum eigum við að geta rekið Vestmanna- eyjaferju á forsendum samfélags- ins og tryggt þær forsendur,“ segir Elliði. Hann segir þó tvennt þurfa til að þetta verði að veruleika án hnökra. „Það þarf aðra ferju sem kemur núna í vor og síðan þarf núna klár- lega að halda áfram að vinna Land- eyjahöfn út úr þessum örðugleikum sem þar hafa verið. Annars vegar með tilliti til dýpis og hins vegar með tilliti til þess að veita skipinu skjól í aðsiglingu að höfninni,“ segir Elliði. Hann er bjartsýnn á að þetta verði að veruleika og bendir á að þær hafnir sem hann þekki best, höfnin í Vestmannaeyjum og höfnin í Grindavík séu fjarri því að vera núna eins og þær voru þegar hann var krakki. „Þannig að auð- vitað á Landeyjahöfn eftir að þróast og verða betri með tíð og tíma.“ Elliði segist ekki ætla að taka rekstrarlega áhættu fyrir bæinn með verkefninu. „Við erum ein- faldlega að taka yfir samfélagslegt verkefni frá ríki til sveitarfélags. Rétt eins og við gerðum þegar við tókum að okkur málefni grunnskóla. Vest- mannaeyjabær tók að sér rekstur málefna fatlaðra langt á undan öðrum og við nálgumst þetta meira þannig. Við erum ekki að spila neinn rekstrarlegan póker. Spilin liggja á borðinu og við erum í mjög góðri samvinnu við Vegagerðina og samgönguráðuneytið um þessi mál og reynum að finna þeim sem bestan farveg inn í framtíðina.“ jonhakon@frettabladid.is Ráðherra fái drög að samningi í vikunni bæjarstjórinn segir að þegar tekin séu tillit til ákveðinna skilyrða ætti sveitar- félagið að geta rekið ferjuna á forsendum samfélagsins. Fréttablaðið/StEFán Samningaviðræður milli Vestmannaeyjabæjar og ríkis um rekstur Herjólfs standa enn yfir. Bærinn undirbýr sig með hjálp Bonafide lögmanna og Analytica. Bæjarstjórinn segist ekki ætla að taka rekstrarlega áhættu. Jafnrétti Björk Guðmundsdóttir sakar danska leikstjórann Lars von Trier um kynferðislega áreitni í stöðuuppfærslu sem hún birti á Facebook-síðu sinni í dag. Þau unnu saman að gerð kvikmynd- arinnar Dancer in the Dark sem kom út árið 2000. „Ég er innblásin af öllum þeim konum sem láta í sér heyra á netinu til að láta í mér heyra varðandi reynslu mína af dönsk- um leikstjóra, því ég er frá landi sem er eitt af þeim löndum sem er hvað næst jafnrétti kynjanna,“ segir Björk í upphafi færslunnar. Björk nafngreinir von Trier ekki í færslu sinni en leiða má yfirgnæfandi líkur að því að Björk sé að lýsa samskipt- um sínum við hann enda er von Trier eini danski leikstjór- inn sem Björk hefur unnið með að gerð kvikmyndar. – ae, aí Sakar Lars um áreitni Ég er frá landi sem er eitt af þeim löndum sem er hvað næst jafnrétti kynjanna. Björk Guðmundsdóttir söngkona björk Guðmundsdóttir heilbrigðiSmál Mæður sem orðið hafa fyrir kynferðisofbeldi eru lík- legri til að eignast fyrirbura heldur en þær sem ekki hafa orðið fyrir ofbeldi. Nýburar þeirra eru einn- ig líklegri til að vera fluttir á vöku- deild. Þetta sýna niðurstöður dokt- orsrannsóknar í lýðheilsuvísindum sem Agnes Gísladóttir varði á dög- unum. Ritgerðin sem ber heitið „Með- ganga og fæðing hjá konum sem hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi“ hafði það að markmiði að skoða hugsanlegt samband á milli kyn- ferðisofbeldis á unglings- eða full- orðinsárum og áhættu á óæski- legum þáttum tengdum meðgöngu og fæðingu síðar á lífsleiðinni. Í útsettum hópi voru konur sem höfðu leitað til Neyðarmóttöku vegna kynferðisofbeldis og höfðu að meðaltali sex árum síðar fætt barn. Í óútsettum hópi voru konur sem höfðu ekki leitað til Neyðarmót- tökunnar og voru valdar af handa- hófi úr fæðingaskrá. „Við skoðuðum bæði meðgöngu, fæðingu og svo heilsuna hjá nýbur- anum og þegar við skoðuðum með- gönguna þá sáum við að konur sem höfðu orðið fyrir kynferðisofbeldi voru í aukinni áhættu á að takast ekki að hætta að reykja. Svo voru vísbendingar um að það væri aukin áhætta á meðgöngusykursýki. Og það voru vísbendingar um að það þyrfti frekar inngrip í fæðingu,“ segir Agnes þannig að konur sem orðið hafa fyrir kynferðisofbeldi eiga frekar á hættu að þurfa fara í bráðakeisaraskurð. – ngy Meiri hætta á fyrirburum 1 6 . o k t ó b e r 2 0 1 7 m á n u D a g u r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð 1 6 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :2 7 F B 0 4 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D F 9 -7 E 0 0 1 D F 9 -7 C C 4 1 D F 9 -7 B 8 8 1 D F 9 -7 A 4 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 8 s _ 1 5 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.