Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2017, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2017, Page 4
Vikublað 31. janúar–2. febrúar 20174 Fréttir Gleraugnaverslunin Eyesland býður mikið úrval af íþróttagleraugum á góðu verði – og þú færð frábæra þjónustu. Verið velkomin! Sportgleraugu Red Bull sólgleraugu kr. 14.950,- Eyesland . Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is É g hef verið á biðlista eftir búsetu í næstum því 11 ár,“ segir Ólafur Snævar Aðal­ steinsson, 25 ára, sem enn hefur ekki fengið úthlutað þjónustuíbúð. Ólafur er í hópi þroskahamlaðra sem hafa minnsta þjónustuþörf en skortur á búsetu­ úrræðum hefur leitt til þess að sá hópur hefur orðið undir í kerf­ inu. Þetta eru yfirleitt einstaklingar með lágar tekjur sem hafa ekki möguleika á að fjárfesta í húsnæði eða vera á leigumarkaðnum án stuðnings foreldra. Bryndís Snæbjörnsdóttir, for­ maður Þroskahjálpar, segir í sam­ tali við DV að aðstæður leiði til þess að öll sú þjónusta sem þessi hópur fullorðinna fatlaðra hafi rétt á sé því alfarið veitt af foreldrum þeirra. Bryndís segir sveitarfélögin hafa ríka skyldu gagnvart fötluðu fólki og tryggja þurfi að einstak­ lingar sem þurfi á minni þjónustu að halda fái allavega þá þjónustu. Sóttu um búsetu fyrir 10 árum Ólafur Snævar starfar sem frí­ stundaleiðbeinandi í Hinu húsinu og segir starfið afar ánægjulegt. „Hér erum við að vinna með ungmennum eftir skóla frá klukkan eitt til fimm. Við gerum mjög skemmtilega hluti saman,“ segir Ólafur og brosir en hann hefur einnig mikinn áhuga á tónlist. „Einu sinni var ég að læra á hljómborð og önnur hljóðfæri. Nú er ég að læra söng en á föstudögum er ég í svo­ nefndum bjöllukór.“ Aðspurður hvernig hann myndi helst vilja haga búsetu sinni segir hann: „Ég myndi vilja búa í þjónustu­ kjarna þar sem ég fengi að­ stoð eftir þörfum. Ég hef velt fyrir mér hvar ég myndi vilja eiga heima en maður er alltaf að hugsa um það og skiptir um skoðun. Ég veit eigin­ lega ekki hvar ég enda en það væri svo sem fínt að búa í Breiðholtinu,“ segir Ólafur en hann býr nú ásamt foreldrum sínum í Breiðholti. Móðir Ólafs, Hrönn Kristjáns­ dóttir, segir í samtali við DV að eftir áralanga bið heyrist lítið sem ekkert frá félagsþjónustunni í Reykjavík. „Við fáum þau svör að hann eigi svo góða foreldra og búi svo vel og því sé hann ekki næstur á biðlista. Ég nenni varla lengur að reyna að standa í samskiptum við félagsþjónustuna,“ segir Hrönn og bætir við: „Helst myndi ég vilja sjá meira frumkvæði af þeirra hálfu. Félagsþjónustan gæti haft meira samband við okkur og athugað hvernig okkur gengur. Við hjónin erum komin á sjötugsaldur­ inn og við og Ólafur og allir í kring­ um hann viljum að hann fái búsetu­ úrræði sem hann er sáttur við.“ Skylda sveitarfélaganna gagnvart fötluðum Bryndís segir framtíð í húsnæðis­ málum fatlaðra liggja í þjónustu­ kjörnum þar sem hver og einn hafi sína eigin íbúð „Það er eitt af markmiðum Hús­ byggingarsjóðs sem rekinn er af Þroskahjálp að byggja slíka þjón­ ustukjarna. Nýlega fengum við stofnframlög í Sandgerði þar sem við munum til að mynda byggja raðhús með tveim litlum íbúðum og starfs­ mannaaðstöðu í endanum – þannig viljum við sjá þetta,“ segir Bryndís en ekki hefur tekist að halda í við þá gríðarlegu eftirspurn sem er eftir slíkum kjörnum. „Til að mynda vegna aðstæðna á lánamarkaði höfum við ekki getað Á biðlista eftir búsetu í ellefu ár Aileen Soffía Sveinsdóttir Formaður Átaks, félags fólks með þroskahömlun: „Það væri hægt að leysa þessi mál ef viljinn væri fyrir hendi hjá þeim sem stýra borginni í dag. Það þarf að eiga eiga gott samtal við fatlað fólk og spyrja það hvað það vilji. Það þarf að hætta að hugsa bara um kerfið og byrja að tala við fólkið.“ Áslaug María Friðriksdóttir Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins: „Finna þarf nýjar lausnir á húsnæðis- vanda fatlaðra. Við viljum að fé fylgi þörf. Stefna okkar er að um leið og einstaklingar sækja um þessa þjón- ustu fái þeir skilyrðislaust greitt eftir þörf sinni. Fleiri gætu sinnt velferðar- þjónustunni því við sjáum að Reykjavík hefur ekki bolmagn til þess. Milli ára eru að losna hundruð milljóna og setja þarf þá peninga inn í velferðina, fyrir þá sem þurfa mest á því að halda. Ég get ekki séð að meirihlutinn sé að gera það.“ Ilmur Kristjánsdóttir Borgarfulltrúi Bjartrar framtíðar og formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar „Fókusinn hefur verið á þeim sem þurfa á mestu þjónustunni að halda. Það er komið í farveg að vinna í þessum biðlistum. Það þarf að greina vandann betur, við eigum von á áætl- un frá velferðarrsviði 16. febrúar um hvernig eigi að taka á þessu. Við viljum geta mætt einstaklingunum eins og kostur er eftir þörfum þeirra en ekki hafa staðlað kerfi.“ fjárfest í nýbyggingum í þónokkurn tíma,“ segir Bryndís. „Skorturinn leiðir til þess að þeir sem hafa mestu þjónustuþörfina fara eðlilega í for­ gang og fá úthlutað búsetu hraðar. Hins vegar þarf að tryggja að sá hóp­ ur sem þarf á minnstu þjónustunni að halda fái allavega þá þjónustu,“ segir Bryndís. Nýverið sendu Landssamtökin Þorskahjálp bréf til sveitarfélaga þar sem áréttaðar voru skyldur þeirra gagnvart fötluðum einstaklingum. Þar var þess krafist að sveitarfélögin gerðu áætlanir um hvernig fylgja skyldi eftir samningum Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem samþykktir voru í fyrra. Bryndís segir að til þess að ná þeim mark­ miðum þurfi sveitarfélög á landsvísu að gera langtímaáætlanir um upp­ byggingu. Hún segir að víða hafi verið skortur á slíkum áætlunum frá því í byrjun árs 2011 þegar málefni fatl­ aðra færðust yfir á sveitarfélögin. n Skortur á búsetuúrræðum fyrir fatlaða hefur leitt til þess að hópur verður undir í kerfinu Heiða Vigdís Sigfúsdóttir heida@dv.is Bryndís Snæbjörnsdóttir Segir sveitarfélögin þurfa að gera langtímaáætlanir um uppbyggingu félagsþjónustunnar. Mynd SigtRygguR ARi Ólafur Snævar Hefur verið á biðlista eftir búsetuúrræði í hátt í 11 ár. Mynd SigtRygguR ARi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.