Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2017, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2017, Síða 10
Vikublað 31. janúar–2. febrúar 201710 Fréttir Þiggja laun frá ríki og bæ T vær alþingiskonur, Bryndís Haraldsdóttir hjá Sjálfstæðis flokki og Theo- dóra S. Þorsteinsdóttir hjá Bjartri framtíð, sitja enn í bæjarstjórn og fjölmörgum nefnd- um á sveitarstjórnarstigi sam- hliða þingmennskunni. Bryndís á sæti í bæjarstjórn Mosfellsbæjar en Theodóra í bæjarstjórn Kópavogs. Þá eiga þær báðar sæti í stjórnum opin berra fyrirtækja, Bryndís situr í stjórn Strætó bs. en Theódóra í stjórn Isavia ohf. Þrátt fyrir mikið vinnuálag á Alþingi, að minnsta kosti stærstan hluta ársins, þá telja þær sig enn geta sinnt öllum þess- um störfum af alúð. Öll þessi störf eru launuð og því eru mánaðarlaun Bryndísar 1.900.833 krónur en Theo- dóra er með 2.152.282 krónur. Þess má geta að laun forsætisráðherra eru 2.021.825 krónur á mánuði. Njáll Trausti vék úr bæjarstjórn Fremur sjaldgæft er að sitjandi alþingismenn sitji einnig í borgar- eða bæjarstjórnum en þó eru dæmi um slíkt í gegnum árin. Sem dæmi má nefna að á síðasta kjörtímabili sat Framsóknarmaðurinn Páll Jó- hann Pálsson í bæjarstjórn Grinda- víkur samhliða þingsetunni í rúmt ár. Þá átti Njáll Trausti Friðbertsson, nýr þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sæti í bæjarstjórn Akureyrar þegar hann var kjörinn á þing. Hann sagði sig hins vegar frá störfum hjá bæn- um frá og með síðustu áramótum. „Ástæða þess að ég segi mig frá störf- um sem bæjarfulltrúi er sú að ég hef hlotið kjör til Alþingis. Við þær að- stæður tel ég réttast að hleypa næsta kjörna fulltrúa Sjálfstæðisflokksins inn í bæjarstjórn,“ sagði Njáll Trausti þegar hann baðst lausnar í bréfi til bæjarstjórnar. Laun bæjarfulltrúa miðuð við þingfararkaup Bryndís er 2. þingmaður Suðvesturkjördæmis fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins. Þingfararkaup hennar og annarra þingmanna er 1.101.194 krónur. Að auki er Bryndís 2. varaformaður umhverf- is- og samgöngunefndar auk utan- ríkismálanefndar. Fyrir störf sín þar fær hún greitt fimm prósent álag ofan á þingfararkaupið en þó að- eins fyrir annað embættið. Það gera 55.059 krónur á mánuði. Þá skipaði Bryndís 2. sæti á lista flokksins fyrir sveitarstjórnarkosn- ingar árið 2014 í Mosfellsbæ þar sem flokkurinn vann góðan sigur. Bryn- dís hefur síðan setið í bæjarstjórn sveitarfélags- ins en mánaðar- launin fyrir þau störf eru 25 prósent af þingfararkaupi. Hjá Mosfellsbæ er enn miðað við 762.940 krónur í þingfararkaup en þegar tilkynnt var um umdeilda hækkun kjararáðs á þingfararkaup- inu ákvað bæjarstjórnin að bíða þar til Alþingi ræddi um sín viðbrögð við hækkuninni. Ekki er útlit fyrir að al- þingismenn bregðist við ónægju- röddunum og því má búast við því að málið verði tekið fyrir í bæjar- stjórn Mosfellsbæjar á næstunni. Bæjarstjórnarlaun Bryndísar eru því 190.735 krónur á mánuði. 1,9 milljónir í mánaðarlaun Þá er Bryndís formaður bæjarráðs Mosfellsbæjar. Föst laun formanns- ins eru 35 prósent af fyrrgreindu þingfararkaupi sem gerir 267.029 krónur á mánuði. Þá hlýtur hún einnig símastyrk upp á 11.444 krónur á mánuði sem og ótilgreindan bíla- styrk. Ef ske kynni að bæjarráð þyrfti að funda aukalega þá fengi hver full- trúi 30.518 krónur fyrir hvern fund en slíkir fundir eru sjaldgæfir. Bryndís er einnig formaður sam- göngunefndar bæjarins sem tryggir henni fasta þóknun uppá 38.147 krónur á mánuði. Þá fær hún einnig þóknun upp á 28.992 krónur fyrir hvern fund. Samgöngunefnd fundar í hverri einustu viku og samkvæmt upplýsingum frá Mosfellsbæ þá er mjög sjaldgæft að fundir falli niður. Fyrir samgöngunefndina fær Bryn- dís því um 154.115 krónur á hverj- um mánuði, að því gefnu að fundir falli ekki niður. Að auki er Bryndís fulltrúi Mosfellsbæjar í stjórn Strætó bs. Mánaðarlegar greiðslur stjórnar- manna eru 121.350 krónur á mánuði en á síðasta ári fundaði stjórnin 23 sinnum. Þá situr Bryndís í svæðis- skipulagsnefnd höfuðborgar- svæðisins en starfsálagið er ekki mikið. Fundað er um 6–8 sinn- um á ári en fyrir hvern fund fá nefndarmenn um 17.000 krónur samkvæmt upplýsingum frá skrif- stofu SSH – Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Mánaðarlaun Bryndísar eru því 1.900.833 krónur frá ríki og bæ. Þá ber að geta þess að ef bæjarstjórn Mosfells bæjar kemst að þeirri niðurstöðu að nota nýhækkað þingfararkaup til grundvallar launum bæjarfulltrúa þá munu mánaðarlaun Bryndísar hækka upp í 2.117.035 krónur á mánuði. Álag vegna þing- flokksformennsku Theodóra S. Þorsteinsdóttir er 12. þingmaður Suðvesturkjördæmis fyrir hönd Bjartrar framtíðar. Líkt og aðrir þingmenn þá þiggur hún 1.101.194 krónur í mánaðarlaun fyrir setu sína á Alþingi. Theodóra var einnig kjörin þingflokks formaður Bjartrar framtíðar á Alþingi sem þýðir að hún fær 15 prósent álag ofan á launin sín í hverjum mánuði, samtals 165.179 krónur. Theodóra var í 1. sæti fyrir sama flokk í sveitarstjórnarkosningunum í Kópavogi 2014. Björt framtíð náði Theodóra S. Þorsteinsdóttir og Bryndís Haraldsdóttir eru með um og yfir tvær milljónir á mánuði Theodóra S. Þorsteinsdóttir Þingfararkaup + 15% álag: 1.266.373 kr. Bæjarstjórn Kópavogs: 251.770 kr. Formaður bæjarráðs: 343.323 kr. Formaður skipulagsráðs: 121.594 kr. Stjórn Isavia ohf.: 160.000 kr. Hafnarstjórn + almannavarnarnefnd: 9.222 kr. Samtals: 2.152.282 kr. - gæti hækkað í 2.472.566 kr. Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is Theodóra: „Mun eingöngu sinna bæjarfull- trúastarfinu með þingmennskunni“ „Að vera bæjarfulltrúi er hlutastarf og flestir sem sitja með mér í bæjarstjórn eru í öðr- um störfum. Þannig er þetta um allt land nema í Reykjavík. Flestir bæjarfulltrúar eru ekki með starfsaðstöðu og mæta einungis á fundi nefnda og ráða eftir vinnu. Ég hef hug á því að halda áfram sem bæjarfulltrúi hér í Kópavogi, enda gaf ég það upp alveg skýrt fyrir kosningar. Ég tel að hægt sé að sinna þingmennsku auk þess að þjónusta Kópavogsbúa eftir að hefðbundnum vinnudegi lýkur, rétt eins og alltaf hefur verið gert og eins og aðrir sem sinna því hlutverki og eru í fullu starfi annars staðar. Ég kynnti mér það sérstaklega fyrir kosningar hvort hægt væri að vera sveitarstjórnarfulltrúi og þingmaður. Það eru fjölmörg fordæmi fyrir því, man reyndar bara eftir karlmönnum í því hlutverki en ég vona að það gildi það sama um konur,“ segir Theodóra S. Þorsteins- dóttir í skriflegu svari til DV. Aðspurð hvort hún myndi íhuga að segja sig frá einhverjum störfum fyrir Kópa- vogsbæ segir Theodóra: „Sú óvissa sem ríkti við myndun ríkisstjórnar varð til þess að ég beið með að endurskoða störf mín fyrir Kópavogsbæ. Ég fyllti út hagsmunaskrána þann 6. janúar en tilkynnt var um nýja ríkisstjórn þann 10. janúar. Á tímabili var allt eins líklegt að kosið yrði aftur til Alþingis og því taldi ég óábyrgt að segja mig frá störfum fyrir Kópavogsbæ,“ segir Theodóra. Nú þegar ný ríkisstjórn hafi verið mynduð sé staðan önnur. „Ég mun klárlega draga mig úr nefndarstörfum og segja mig úr stjórnum. Við erum að fara yfir þau mál hér í Kópavogi. Ég vil samt sem áður klára kjörtímabilið sem fulltrúi í bæjarstjórn Kópavogs, enda var ég kjörin til fjögurra ára. Á þeim tíma sem ég var kjörin til sveitarstjórnar 2014 þá sinnti ég einnig 100% starfi á sama tíma, rétt eins og fjölmargir aðrir,“ segir Theo- dóra. Rétt eins og Bryndís telur hún enga hættu á hagsmunaárekstrum í þessum störf- um. „Ég hef verið talsmaður þess að auka samtalið milli sveitarfélaga og ríkisins og tel einmitt mjög mikilvægt að hækka raddir sveitarfélaga í því samtali,“ segir Theodóra

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.