Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2017, Page 17
Vikublað 31. janúar–2. febrúar 2017 Kynningarblað - Útivist 3
Ferðafélag Íslands
í fararbroddi í 90 ár
F
erðafélag Íslands var stofnað
1927 og hefur það markmið
að byggja upp aðstöðu fyrir
ferðamenn á hálendinu og
í óbyggðum og greiða fyr-
ir götu ferðamanna á landinu. Þá
gefur FÍ út bækur og kort og stend-
ur fyrir fjölbreyttum ferðum um
landið. Félagið á 40 skála og undir
merkjum þess starfa 15 deildir úti
um allt land. Ferðafélagið er í eðli
sínu íhaldssamt og rótgróið og held-
ur fast í gömul og góð gildi. Um leið
hefur það þó þróast í takt við tím-
ann. Til dæmis var Ferðafélag barn-
anna stofnað fyrir nokkrum árum
sem sérhæfir sig í ferðum fyrir börn
og fjölskyldur og hefur fengið afar
góðar móttökur og nú hefur Ferða-
félagið stofnað FÍ ung sem er fyrir
18–26 ára. Þá hefur félagið ver-
ið í fararbroddi í ferðamennsku
og byggt upp skála, gönguleiðir,
göngubrýr og staðið fyrir fræðslu.
Markmið félagsins eru í dag enn þau
sömu og í upphafi; að greiða götu
ferðamanna, byggja upp aðstöðu
sem og standa fyrir ferðum, útgáfu
og fræðslu. Stór þáttur í útgáfustarfi
félagsins er útgáfa Árbókar Ferðafé-
lagsins sem hefur komið út óslitið í
89 ár og er einstök ritröð um náttúru
landsins.
Mikill fjöldi ferðamanna
Páll Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Ferðafélags Íslands,
segir að fjöldi ferðamanna hafi auk-
ist jafnt og þétt á Íslandi undanfar-
in ár og að Ferðafélagið fari ekki
varhluta af auknum fjölda ferða-
manna. Eins hefur ferðum lands-
manna innanlands fjölgað. „Til-
gangur félagsins er að byggja upp
aðstöðu fyrir ferðamenn og greiða
götu þeirra. Við einbeitum okkur
að því að starfa fyrir félagsmenn og
um leið að kynna landið og hvetja
landsmenn til að ferðast um Ísland.
Við verðum að hugsa um náttúruna
og aðstöðuna, öryggi ferðamanna og
upplifun og þurfum að vera viss um
að ráða við þann fjölda ferðamanna
sem um landið fer,“ segir Páll.
Fullbókað á Laugaveginum
Undanfarin 30–50 ár hefur Ferða-
félagið unnið við að byggja upp
aðstöðu víða um land, ekki síst á
gönguleiðinni frá Landmannalaug-
um yfir í Þórsmörk, á svokölluðum
Laugavegi. Nú ganga um 150 manns
þessa leið á hverjum einasta degi
frá miðjum júní, allan júlí og fram á
haust. Allt að 85 prósent þeirra eru
útlendingar, að sögn Páls. Margir
þeirra bóka sig hjá ferðaskrifstofum
en sumir koma á eigin vegum. Um-
ferð þess hóps hefur aukist gríðar-
lega mikið á undanförnum árum.
Ferðafélagið á sex skála á Lauga-
veginum. Árið 2012 var Lauga-
vegurinn tilnefndur sem ein af 10
bestu gönguleiðum í heiminum af
National Geographic og segir Páll
það hafa verið mikla viðurkenningu
fyrir starf FÍ á leiðinni. „Þeir komu og
tóku út gönguleiðina og skálasvæð-
in og tilnefndu leiðina í kjölfarið á
þeirri úttekt. Þá komu Landmanna-
laugar best út allra ferðamanna-
staða á landinu í könnun Ferða-
málastofu frá 2012 er varðar
heildarupplifun ferðamannsins og
sama má sjá í fleiri rannsóknum,“
segir Páll. Í dag koma 70.000 manns
í Landmannalaugar yfir sumartí-
mann. „Það komast bara ekki fleiri
í skálapláss á Laugaveginum mið-
að við aðstöðu og nú er gott tæki-
færi til að beina fólki annað,“ segir
hann. Páll segir að það séu margar
aðrar skálaleiðir sem skemmtilegt
sé að ganga og nefnir sem dæmi
Lónsöræfi, Víknaslóðir, Öskjuveg-
inn og Strútsstíg en á öllum þessum
gönguleiðum er ágæt skálaaðstaða.
Áhættumat fyrir gönguleiðir
Ferðafélag Íslands hefur síðustu ár
unnið að því að gera áhættumat fyr-
ir gönguleiðir á landinu. „Við ætlum
síðan að bjóða öllum í ferðaþjón-
ustunni að nýta þessa vinnu okk-
ar. Það er mikilvægur líður í öryggi
ferðamanna að þekkja allar aðstæð-
ur vel og vita hvaða hættur geta ver-
ið á gönguleiðum,“ segir Páll.
Fyrsta skrefið, Alla leið og Tvö
fjöll á mánuði
Segja má að Ferðafélagið sé sannar-
lega nútímalegt ferðafélag. Það er
ekki einungis fyrir fullfríska kletta-
klifrara, heldur hefur félagið ver-
ið í samstarfi við Reykjalund og
Háskóla Íslands með gönguferð-
ir fyrir þá sem eiga erfitt um gang
af einhverjum orsökum. Það getur
verið vegna líkamlegra annmarka
eins og offitu eða andlegra ann-
marka eins og þunglyndis o.s.frv.
Rannsóknir, sem voru gerðar með-
al þátttakenda þessara ferða, seg-
ir Páll að hafi komið mjög ánægju-
lega út. „ Rannsóknir hafa margsýnt
að gönguferðir eru mjög hollar fyrir
bæði líkama og sál og sumir segja
þær allra meina bót. Við viljum auka
samstarfið við heilbrigðisyfirvöld og
efna til gönguferða fyrir ákveðna
hópa innan heilbrigðisgeirans. Nú
er Ferða félagið búið að stofna bak-
skólann og fór að stað með göngu-
verkefni fyrir fólk i yfirvigt. Þessi
verk efni hafa nú sameinast í verk-
efni „Aftur af stað“ þar sem reynt er
að koma fólki af stað í léttum göngu-
ferðum með styrkjandi og liðkandi
æfingum, þannig að þeir sem hafa
gefið eftir heilsufarslega komist á
beinu brautina aftur. Síðan eru hóp-
ar með geðraskanir, og rannsókn-
ir hafa sýnt að gönguferðir hjálpa
þeim geysilega mikið. Gönguferð-
ir, hvort sem er um skóglendi eða
við hafið, hafa mjög róandi áhrif. Að
komast upp á fjall hefur t.d. mjög
jákvæð áhrif á andlega líðan fólks.
Allt eru þetta afrek og hjallar til að
sigrast á og þessi verkefni eru lið-
ur í hjálpinni. Við fórum af stað
með 52 verkefni FÍ fyrir nokkrum
árum sem slógu í gegn og síðan hafa
framhaldsverk efni og hliðarverkefni
fengið að þróast með þátttakendum
og eftir hugmyndum félagsmanna.
Á síðast liðnum árum hafa fleiri þús-
und manns tekið þátt í þessum ver-
kefnum,“ segir Páll.
Ferðafélag Íslands er staðsett að
Mörkinni 6, 108 Reykjavík. Opn-
unartími er frá 10–17 alla virka daga.
Sími: 568-2533 Tölvupóstfang: fi@fi.
is Nánari upplýsingar um ferðir og
fleira má nálgast á vefsíðu Ferðafé-
lags Íslands; fi.is og á Facebook-síð-
unni. n
Landmannalaugar eru einn fegursti staður hálendisins.
Fegurð hálendis Íslands er einstök. Á Kili rekur FÍ þrjá fjallaskála.
Fjallaskíðaferðir FÍ njóta vaxandi
vinsælda. Hér leggur FÍ-hópur af
stað í göngu á Snæfellsjökul.