Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2017, Síða 19
Vikublað 31. janúar–2. febrúar 2017 Kynningarblað - Útivist 5
Frábært fjölskyldusport
Bláfjöll og Skálafell hafa verið blessuð af snjóguðunum
S
kíðafærið hefur ekki verið
upp á marga fiska undan-
farna mánuði og mikið verið
um rigningar, sem er al-
gert eitur í hugum skíðaiðk-
enda. En skjótt skipast veður og nú
virðist sem skíðaiðkendur á höfuð-
borgarsvæðinu geti tekið gleði sína
á ný í Bláfjöllum og Skálafelli. Svæð-
in vinna vel saman, því þegar ann-
að hentar vel í ákveðinni vindátt,
þá hentar hitt vel í hinni. Það eykur
töluvert líkur á því að menn komist
á skíði í góðu færi. „Við erum búin
að vera með opið í sex daga núna í
Bláfjöllum fyrir almenning, frá því
fyrsta janúar. Þessi vetur hefur far-
ið seint af stað, sérstaklega miðað
við síðasta vetur sem var einstaklega
snjóríkur. Fólk flykkist til okkar, enda
marga farið að klæja vegna snjóleys-
is. Við höfum svo verið að fá góðan
snjó síðustu daga ofan á grunninn og
nú er enginn hiti að ráði í kortunum.
Brautirnar eru flestallar komnar inn
og við sjáum fram á frábært skíða-
færi,“ segir Magnús Árnason, fram-
kvæmdastjóri skíðasvæðanna.
Dásamlegt að sjá byrjendur
taka sín fyrstu skref
„Það er alltaf mikil eftirspurn í
skíða- og brettaskólann hjá okkur
og það er einstakt að sjá alla þessa
byrjendur taka sín fyrstu skref. Það
hefur orðið gríðarlegur vöxtur í
skíðaiðkun undanfarin ár og það
held ég að megi þakka samfélags-
miðlabyltingunni. Fólk deilir upp-
lifun sinni í fjallinu og þá rifjast upp
fyrir öðrum góðar skíðastundir. Þetta
er líka tilvalin íþrótt fyrir vini og fjöl-
skyldur til að stunda saman og það
er fátt skemmtilegra en að sjá barnið
sitt stíga sín fyrstu skref á skíðunum.
Einnig hafa undanfarnir vetur verið
gríðarlega stöðugir hvað varðar snjó
og mikið verið opið á skíðasvæðun-
um. Það stuðlar að því að fólk kem-
ur sér upp búnaði til þess að stunda
íþróttina reglulega,“ segir Magnús. Í
Bláfjöllum er einnig hægt að leigja
búnað; skíði, bretti, skíðaskó og stafi.
Fyrir þá sem eru að koma í fyrsta
skipti er bráðsniðugt að leigja, þótt
það kosti svolítið, til þess að átta sig á
því hvort þetta sé eitthvað sem mað-
ur vill fjárfesta í. Svo er alltaf hægt
að kaupa notaðan búnað eða nýjan,
eftir því sem hentar.
Það geta allir rennt
sér niður brekku
Bláfjöll skiptast upp í tvö svæði,
Heimatorfu og Suðursvæði.
Brekkurnar eru ólíkar og henta öll-
um getustigum. Því ættu allir að geta
fundið sér brekku eða brekkur við
hæfi. „Við erum með alls 15 lyftur hér
í Bláfjöllum og að meðaltali er hægt
að skíða 2–3 brautir frá hverri lyftu,
allt eftir því hvar þú ferð úr. Svo erum
við með stórsniðugt Töfrateppi. Um
er að ræða algera byltingu fyrir byrj-
endur. Þetta er færiband sem flyt-
ur fólk upp auðvelda brekku. Þetta
er þvílíkur munur fyrir þá sem eru
að skíða með börnunum sínum, því
nú þarf ekki lengur að klöngrast með
barnið í diskalyftu. Það getur bara
komið sér sjálft upp brekkuna,“ segir
Magnús.
Gönguskíðin eru góð fyrir sálina
Það hefur verið gríðarleg uppsveifla
í gönguskíðamennskunni og má það
líklega þakka Gönguskíðafélaginu
Ulli og fleiri aðilum sem bjóða upp
á námskeið í gönguskíðum. Þessi
námskeið eru alla jafna þéttsetin af
nýliðum. Í Bláfjöllum eru mislangar
gönguskíðabrautir lagðar á hverjum
degi þegar opið er á svæðinu. Þegar
kominn er snjór yfir allt eru lagð-
ar um fimm kílómetra spor á venju-
legum virkum degi en um helgar eru
lagðar lengri leiðir, eða um 10–15
kílómetrar. „Það er ótrúlegt að fara
eftir þessum leiðum. Allt í einu ertu
orðinn einn með sjálfum þér uppi
á heiði með frábært útsýni yfir
bæði Þorlákshöfn og Eyrar-
bakka. Þetta er í raun
einfalt sport, maður er
fljótur að ná tökum á
því og svo fer maður
þetta á sínum hraða.
Þetta er alveg ótrú-
lega hreinsandi og
róandi íþrótt,“ segir
Magnús.
Bláfjallaskáli
Á svæðinu eru allmargir
skálar í eigu íþróttafélaganna
og er gestum velkomið að
nota aðstöðuna þar. Blá-
fjallaskáli er aðalskálinn og sá fyrsti
sem maður sér þegar komið er inn
á svæðið. Hann er stærstur og er
stjórnstöðin staðsett þar. Bláfjalla-
skáli er rekinn af stjórn svæðisins og
er þar veitinga- og miðasala og leiga
á skíða- og brettabúnaði.
Skálafell – ósnortið land
Skálafell er alla jafna opið um helgar
og frá og með 4. febrúar verður hægt
að renna sér í Skálafelli. Núna hef-
ur hins vegar snjóað töluvert þar og
er snjórinn troðinn þar jafnharðan.
Skálafell hefur gríðarlegan sjarma
þar sem svæðið snýr á móti sólu og
þar er töluvert meira af ósnortnu
landi en í Bláfjöllum. Á móti kemur
að þar er ekki aðstaða til þess að setj-
ast inn og snæða nesti. Þar eru þrjár
diskalyftur og ein stólalyfta, sem þó er
lengsta stólalyftan á landinu, á með-
an lyfturnar eru
15 í Bláfjöllum
og fólkið skiptist
þar í raðir á milli
þeirra. Því er flutn-
ingsgeta í Skálafelli
töluvert minni en í Blá-
fjöllum. „En kosturinn er
sá að þrátt fyrir langar raðir
í lyftuna, þá er maður tiltölulega einn
og frjáls þegar maður rennir sér nið-
ur, á meðan maður í Bláfjöllum hefur
sjaldan brekkuna út af fyrir sig,“ segir
Magnús.
Nestið og miðann í leiðinni
Miðasölukassa er víða að finna
á höfuðborgarsvæðinu. Þar má
kaupa kort í lyfturnar í Bláfjöllum
og Skálafelli. Miðasölukassa er að
finna í N1 í Ártúnsbrekku í Reykja-
vík, Lækjargötu í Hafnarfirði,
Stórahjalla í Kópavogi og svo í Mos-
fellsbæ. Skálafell er mjög vinsælt
meðal Mosfellsbæinga og lengi vel
var eingöngu hægt að fá lyftukort í
miðasöluskúrnum í Skálafelli. Því
munu þessir nýju miðasölukassar
létta töluvert álagið þar og minni lík-
ur til þess að langar biðraðir myndist
við miðasöluskúrinn. Nú er hægt að
kaupa sér nesti og miða í leiðinni.
Skálafell og Bláfjöll eru bæði í
um 25 mínútna akstursfjarlægð frá
Reykjavík. Opið er í Bláfjöllum á virk-
um dögum kl. 14–21 og um helgar
10–17. Opið er í Skálafelli allar helg-
ar frá 4. febrúar og fram yfir páska
kl. 10–17. Upplýsingasími: 530-3000
Skálafell, sími: 566-7095 Nánari upp-
lýsingar má nálgast á vefsíðu Skíða-
svæðanna, skidasvaedi.is, og á Face-
book-síðunni. n
Bláfjallaskáli í sparifötunum
Magnús Árnason Framkvæmdastjóri
skíðasvæðanna.
Skíðað í skammdeginu MyND LifaNDi MyND
Byrjendur á
námskeiði
MyND ODD STEfaN