Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2017, Side 21
Vikublað 31. janúar–2. febrúar 2017 Kynningarblað - Útivist 7
Hin fallega byggð, Fjallabyggð
Skíðasvæði
Fjallabyggðar
síma 898-4939 eða senda tölvupóst á
gesturhansa@simnet.is. Ferðafélag-
ið Trölli í Ólafsfirði er með heima-
síðu; trolli.fjallabyggd.is/forsida/.
Hægt er að nálgast upplýsingar um
dagskrá og ferðir á; trolli.fjallabyggd.
is/fyrirspurnir. Fleiri afþreyingar-
fyrirtæki eru í Fjallabyggð og er hægt
að nálgast allar upplýsingar um þau
á visittrollaskagi.is.
Menningarlíf
Í Fjallabyggð er einnig blómlegt
menningarlíf. Fjöldi veitingahúsa,
með fjölbreytta matseðla er að finna
í Fjallabyggð og gistimöguleikar
miklir. Einnig eru nokkur gallerí og
listamannavinnustofur sem áhuga-
vert er að heimsækja og svo má ekki
gleyma söfnum og setrum. Þar má
nefna stærsta sjó-
minja- og iðnaðar-
safn landsins:
Síldarminjasafnið.
Óvíða finnast
jafn fjölbreyttir
og skemmtilegir
möguleikar til þess
að láta sér líða vel
í jafn fallegu um-
hverfi og afslöpp-
uðu andrúmslofti
og er í Fjallabyggð.
Þar ættu allir að
geta fundið eitt-
hvað við sitt hæfi.
Sund
Hvað er betra
eftir góðan dag
á fjöllum en að hvíla lúin og köld
bein í hlýjum lindum og spjalla að-
eins um stjórnarfarið? Í Fjallabyggð
eru tvær sundlaugar sem uppfylla
óskir kröfu hörðustu sundiðkenda. Á
Siglufirði er 25 metra innisundlaug
og heitur pottur (úti). Sundlaugin er
staðsett við Hvanneyrarbraut 52. Í
Ólafsfirði er útisundlaug, tveir heitir
pottar, setlaug, vaðlaug með svepp,
fosslaug og tvær rennibrautir. Sund-
laugin er að Tjarnarstíg 1.
Afþreyingarfyrirtæki í Fjallabyggð
Amazing Mountains er eitt af fjöl-
mörgu afþreyingarfyrirtækjum í
Fjallabyggð. Boðið er upp á ferðir
fyrir skíðafólk og ferðamenn
sem langar upp á fjallgarðinn
Tröllaskaga, hvort sem ætlunin er
að renna sér á skíðum niður hlíð-
ina eða að sitja á vélsleðanum upp
og niður fjöll og firnindi. Þar má
upplifa akstur með vönum heima-
ökumönnum og njóta útsýnisins,
taka ljósmyndir af mikilfenglegu
landslaginu og heillast af feimnum
norðurljósum uppi yfir fjallstindum
Tröllaskaga. Einnig er boðið upp á
leigu á drónum, fjallatjald og bún-
að til gistingar í því, bæði fyrir
einstaklinga og minni hópa. Am-
azing Mountains býðst til þess að
flytja allan farangur og búnað upp
á fjöllin, viðskiptavinum sínum til
hægðarauka. Til þess að panta ferð-
ir með Amazing Mountains má
hringja í síma 863-2406 eða senda
tölvupóst á solvilarus@gmail.com.
Amazing Mountains er staðsett að
Hrannarbyggð 14, 625 Ólafsfirði.
Siglufjörður
Í Skarðsdal, rétt fyrir utan Siglufjörð,
er að finna eitt glæsilegasta skíða-
svæði landsins og einn helsti kostur
svæðisins er stuttar raðir í lyftur, enda
um nokkrar að ræða. Gönguskíða-
braut er einnig troðin fyrir göngu-
skíðaiðkendur í Hólsdal þegar nægur
snjór og aðstæður leyfa. En bent er á
að mjög góð gönguskíðabraut (Báru-
braut) er í Ólafsfirði og þegar nægur
snjór er í Ólafsfirði er troðin braut fyrir
allan almenning að auki. Nánari upp-
lýsingar um Skíðasvæðið í Skarðs-
dal má nálgast á vefsíðunni skards-
dalur.is. Fátt er svo skemmtilegra en
að taka sér göngutúr um snjóflóða-
varnargarðana fyrir ofan Siglufjörð,
enda er útsýnið stórbrotið og nálægð-
in við náttúruna magnþrungin. Ekki
má gleyma sögu bæjarins en Síldar-
minjasafnið er eitt glæsilegasta safn
landsins þar sem saga og andi bæjar-
ins mætast í ógleymanlegri stund. Því
er svo ekkert til fyrirstöðu að skella
sér á eitt af kaffihúsum bæjarins eft-
ir á og njóta tíu rjúkandi kaffidropa
eða sötra á heitu súkkulaði með ekta
rjóma. Það bragðast allt betur í hreinu
sjávarloftinu.
Ólafsfjörður: Útivera fyrir
ævintýragjarna í óbyggðum
Ólafsfjörður er sannkallaður ævin-
týrabær. Þar er meðal annars að
finna frábært skíðasvæði fyrir þá
sem vilja eitthvað öðruvísi. Ásamt
hefðbundnum skíðabrekkum eru
þar leikjabrautir fyrir bæði skíði og
bretti. Einnig eru snjóþotubraut-
ir fyrir þá sem vilja heldur sitja á
leiðinni niður brekkuna. Að auki eru
lagðar vélsleðabrautir fyrir ökuþóra
og þónokkrar gönguskíðabrautir
fyrir göngugarpa á skíðum. n
Allar nánari upplýsingar
má nálgast á og í gegnum vefsíðu
Fjallabyggðar, fjallabyggd.is,
og á Facebook-síðunni.