Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2017, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2017, Blaðsíða 21
Vikublað 31. janúar–2. febrúar 2017 Kynningarblað - Útivist 7 Hin fallega byggð, Fjallabyggð Skíðasvæði Fjallabyggðar síma 898-4939 eða senda tölvupóst á gesturhansa@simnet.is. Ferðafélag- ið Trölli í Ólafsfirði er með heima- síðu; trolli.fjallabyggd.is/forsida/. Hægt er að nálgast upplýsingar um dagskrá og ferðir á; trolli.fjallabyggd. is/fyrirspurnir. Fleiri afþreyingar- fyrirtæki eru í Fjallabyggð og er hægt að nálgast allar upplýsingar um þau á visittrollaskagi.is. Menningarlíf Í Fjallabyggð er einnig blómlegt menningarlíf. Fjöldi veitingahúsa, með fjölbreytta matseðla er að finna í Fjallabyggð og gistimöguleikar miklir. Einnig eru nokkur gallerí og listamannavinnustofur sem áhuga- vert er að heimsækja og svo má ekki gleyma söfnum og setrum. Þar má nefna stærsta sjó- minja- og iðnaðar- safn landsins: Síldarminjasafnið. Óvíða finnast jafn fjölbreyttir og skemmtilegir möguleikar til þess að láta sér líða vel í jafn fallegu um- hverfi og afslöpp- uðu andrúmslofti og er í Fjallabyggð. Þar ættu allir að geta fundið eitt- hvað við sitt hæfi. Sund Hvað er betra eftir góðan dag á fjöllum en að hvíla lúin og köld bein í hlýjum lindum og spjalla að- eins um stjórnarfarið? Í Fjallabyggð eru tvær sundlaugar sem uppfylla óskir kröfu hörðustu sundiðkenda. Á Siglufirði er 25 metra innisundlaug og heitur pottur (úti). Sundlaugin er staðsett við Hvanneyrarbraut 52. Í Ólafsfirði er útisundlaug, tveir heitir pottar, setlaug, vaðlaug með svepp, fosslaug og tvær rennibrautir. Sund- laugin er að Tjarnarstíg 1. Afþreyingarfyrirtæki í Fjallabyggð Amazing Mountains er eitt af fjöl- mörgu afþreyingarfyrirtækjum í Fjallabyggð. Boðið er upp á ferðir fyrir skíðafólk og ferðamenn sem langar upp á fjallgarðinn Tröllaskaga, hvort sem ætlunin er að renna sér á skíðum niður hlíð- ina eða að sitja á vélsleðanum upp og niður fjöll og firnindi. Þar má upplifa akstur með vönum heima- ökumönnum og njóta útsýnisins, taka ljósmyndir af mikilfenglegu landslaginu og heillast af feimnum norðurljósum uppi yfir fjallstindum Tröllaskaga. Einnig er boðið upp á leigu á drónum, fjallatjald og bún- að til gistingar í því, bæði fyrir einstaklinga og minni hópa. Am- azing Mountains býðst til þess að flytja allan farangur og búnað upp á fjöllin, viðskiptavinum sínum til hægðarauka. Til þess að panta ferð- ir með Amazing Mountains má hringja í síma 863-2406 eða senda tölvupóst á solvilarus@gmail.com. Amazing Mountains er staðsett að Hrannarbyggð 14, 625 Ólafsfirði. Siglufjörður Í Skarðsdal, rétt fyrir utan Siglufjörð, er að finna eitt glæsilegasta skíða- svæði landsins og einn helsti kostur svæðisins er stuttar raðir í lyftur, enda um nokkrar að ræða. Gönguskíða- braut er einnig troðin fyrir göngu- skíðaiðkendur í Hólsdal þegar nægur snjór og aðstæður leyfa. En bent er á að mjög góð gönguskíðabraut (Báru- braut) er í Ólafsfirði og þegar nægur snjór er í Ólafsfirði er troðin braut fyrir allan almenning að auki. Nánari upp- lýsingar um Skíðasvæðið í Skarðs- dal má nálgast á vefsíðunni skards- dalur.is. Fátt er svo skemmtilegra en að taka sér göngutúr um snjóflóða- varnargarðana fyrir ofan Siglufjörð, enda er útsýnið stórbrotið og nálægð- in við náttúruna magnþrungin. Ekki má gleyma sögu bæjarins en Síldar- minjasafnið er eitt glæsilegasta safn landsins þar sem saga og andi bæjar- ins mætast í ógleymanlegri stund. Því er svo ekkert til fyrirstöðu að skella sér á eitt af kaffihúsum bæjarins eft- ir á og njóta tíu rjúkandi kaffidropa eða sötra á heitu súkkulaði með ekta rjóma. Það bragðast allt betur í hreinu sjávarloftinu. Ólafsfjörður: Útivera fyrir ævintýragjarna í óbyggðum Ólafsfjörður er sannkallaður ævin- týrabær. Þar er meðal annars að finna frábært skíðasvæði fyrir þá sem vilja eitthvað öðruvísi. Ásamt hefðbundnum skíðabrekkum eru þar leikjabrautir fyrir bæði skíði og bretti. Einnig eru snjóþotubraut- ir fyrir þá sem vilja heldur sitja á leiðinni niður brekkuna. Að auki eru lagðar vélsleðabrautir fyrir ökuþóra og þónokkrar gönguskíðabrautir fyrir göngugarpa á skíðum. n Allar nánari upplýsingar má nálgast á og í gegnum vefsíðu Fjallabyggðar, fjallabyggd.is, og á Facebook-síðunni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.