Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2017, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2017, Side 22
Vikublað 31. janúar–2. febrúar 20178 Útivist - Kynningarblað Skíðasvæði Tindastóls á ekki í vandræðum vegna snjóleysis Alltaf stuð í fjallinu Í vetur hefur skíðafæri ekki verið upp á marga fiska, en snjóleysi er ekki vandamál fyrir norðan á skíðasvæði Tindastóls í Skagafirði. „Skíðafærið hér fyrir norðan hefur verið feiknagott allt frá þriðja desem- ber. Það má jafnvel segja að það hafi verið frábært færi, öllum skíða- og brettamönnum til mikillar ánægju. Hér er nægur snjór og stemningin er frábær,“ segir Viggó Jónsson, fram- kvæmdastjóri skíðasvæðis Tindastóls. Skíðasvæðið er í vestanverðum Tinda- stól í dal sem heitir Ytridalur sem er í um 15 kílómetra fjarlægð frá Sauðár- króki. Um er að ræða frábært og fjöl- skylduvænt skíðasvæði fyrir alla, bæði byrjendur og lengra komna. 65 ára á töfrateppi „Í fjallinu erum við með fyrsta flokks 1.150 metra langa Leitner-diskalyftu sem var vígð í febrúar árið 2000. Lyft- an byrjar í 445 metra hæð yfir sjávar- máli og liggur upp í 690 metra hæð. Fyrstu 300 metrarnir eru hentugir fyrir byrjendur og þá sem ekki treysta sér í mikinn bratta, svo það er auð- velt fyrir alla fjölskylduna að koma til okkar á skíði,“ segir Viggó. Einnig er svokallað töfrateppi í fjallinu fyrir þá allra yngstu og byrjendur. Um er að ræða færiband sem flytur skíða- og brettafólk upp smá spöl svo það geti rennt sér aftur niður. Einnig er um tveggja kílómetra göngubraut troðin daglega þegar svæðið er opið fyrir þá sem stunda gönguskíði. „Hingað kemur fólk alls staðar að af landinu og einnig að utan. Um daginn stóð hér á töfrateppinu til dæmis 65 ára gam- all ástralskur maður sem hafði aldrei áður stigið á skíði og skemmti sér kon- unglega á leiðinni niður,“ segir Viggó. Crazy Roller Á svæðinu er einnig lítill veitingaskáli þar sem hægt er að tylla sér niður eftir góða salíbunu í fjallinu og fá sér kakó, kleinur og soðbrauð með hangikjöti. „Héðan fer enginn svangur, hvorki í mat né afþreyingu,“ segir Viggó sem bókstaflega brennur í skinninu yfir að fá að segja frá Crazy Roller-tryllitæk- inu. „Síðast en ekki síst er hér sann- kallað tryllitæki fyrir spennufíklana sem sækja í jaðarsportið. Þetta kallast Crazy Roller og er alveg stórskemmti- legt tæki. Farþeginn er ólaður niður í dekkjalaga hring sem rúllar með far- þegann niður brekkuna fáeina hringi. Auðvitað er fyllsta öryggis gætt í hvert sinn,“ segir Viggó og mælir með því fyrir alla að skella sér norður í Tinda- stól að taka nokkrar bunur niður fjall- ið og prófa eina ferð í Crazy Roller, eða að minnsta kosti berja tækið aug- um. Crazy Roller er settur í gang á laugardögum á milli 13–15. Á skíðasvæðinu er hægt að leigja svigskíði, gönguskíði og bretti. Í boði eru ýmsar stærðir þannig að bæði ungir og aldnir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Einnig er kennsla á svæðinu fyrir byrjendur. Snjóbretta- æfingar: föstudaga 17– 19 og laugardaga 11–14. Skíðaæfingar: mánu- daga, miðvikudaga, föstudaga, 17–19 og laugardaga 11–14. Almennur opnunar- tími skíðasvæðisins: Opið er alla virka daga frá 14–19 og um helgar frá 11– 16. Svæðið er einnig opnað fyrir hópa sem vilja koma á öðrum tímum. Til þess að hafa samband við Skíðasvæði Tindastóls er hægt að hringja í Viggó í síma 899-9073 eða senda tölvupóst á skidi@tindastoll.is. Einnig er hægt að hafa samband í gegnum Facebook- síðuna. Nánari upplýsingar, eins og verðskrá og upplýsingar um viðburði, má nálgast á vefsíðu Skíðasvæðis Tindastóls; skitindastoll.is og á Face- book-síðunni. n Alltaf stuð í fjallinu. Það er engin leið að hætta. Tryllitækið sem um ræðir. Hrein gleði í lyftunni. "Ein salíbuna enn?"

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.