Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2017, Page 22
Vikublað 31. janúar–2. febrúar 20178 Útivist - Kynningarblað
Skíðasvæði Tindastóls á ekki
í vandræðum vegna snjóleysis
Alltaf stuð í fjallinu
Í
vetur hefur skíðafæri ekki verið
upp á marga fiska, en snjóleysi
er ekki vandamál fyrir norðan á
skíðasvæði Tindastóls í Skagafirði.
„Skíðafærið hér fyrir norðan hefur
verið feiknagott allt frá þriðja desem-
ber. Það má jafnvel segja að það hafi
verið frábært færi, öllum skíða- og
brettamönnum til mikillar ánægju.
Hér er nægur snjór og stemningin er
frábær,“ segir Viggó Jónsson, fram-
kvæmdastjóri skíðasvæðis Tindastóls.
Skíðasvæðið er í vestanverðum Tinda-
stól í dal sem heitir Ytridalur sem er í
um 15 kílómetra fjarlægð frá Sauðár-
króki. Um er að ræða frábært og fjöl-
skylduvænt skíðasvæði fyrir alla, bæði
byrjendur og lengra komna.
65 ára á töfrateppi
„Í fjallinu erum við með fyrsta flokks
1.150 metra langa Leitner-diskalyftu
sem var vígð í febrúar árið 2000. Lyft-
an byrjar í 445 metra hæð yfir sjávar-
máli og liggur upp í 690 metra hæð.
Fyrstu 300 metrarnir eru hentugir
fyrir byrjendur og þá sem ekki treysta
sér í mikinn bratta, svo það er auð-
velt fyrir alla fjölskylduna að koma til
okkar á skíði,“ segir Viggó. Einnig er
svokallað töfrateppi í fjallinu fyrir þá
allra yngstu og byrjendur. Um er að
ræða færiband sem flytur skíða- og
brettafólk upp smá spöl svo það geti
rennt sér aftur niður. Einnig er um
tveggja kílómetra göngubraut troðin
daglega þegar svæðið er opið fyrir
þá sem stunda gönguskíði. „Hingað
kemur fólk alls staðar að af landinu og
einnig að utan. Um daginn stóð hér
á töfrateppinu til dæmis 65 ára gam-
all ástralskur maður sem hafði aldrei
áður stigið á skíði og skemmti sér kon-
unglega á leiðinni niður,“ segir Viggó.
Crazy Roller
Á svæðinu er einnig lítill veitingaskáli
þar sem hægt er að tylla sér niður eftir
góða salíbunu í fjallinu og fá sér kakó,
kleinur og soðbrauð með hangikjöti.
„Héðan fer enginn svangur, hvorki í
mat né afþreyingu,“ segir Viggó sem
bókstaflega brennur í skinninu yfir að
fá að segja frá Crazy Roller-tryllitæk-
inu. „Síðast en ekki síst er hér sann-
kallað tryllitæki fyrir spennufíklana
sem sækja í jaðarsportið. Þetta kallast
Crazy Roller og er alveg stórskemmti-
legt tæki. Farþeginn er ólaður niður í
dekkjalaga hring sem rúllar með far-
þegann niður brekkuna fáeina hringi.
Auðvitað er fyllsta öryggis gætt í hvert
sinn,“ segir Viggó og mælir með því
fyrir alla að skella sér norður í Tinda-
stól að taka nokkrar bunur niður fjall-
ið og prófa eina ferð í Crazy Roller,
eða að minnsta kosti berja tækið aug-
um. Crazy Roller er settur í gang á
laugardögum á milli 13–15.
Á skíðasvæðinu er hægt að leigja
svigskíði, gönguskíði og
bretti. Í boði eru ýmsar
stærðir þannig að bæði
ungir og aldnir ættu að
geta fundið eitthvað
við sitt hæfi. Einnig er
kennsla á svæðinu fyrir
byrjendur. Snjóbretta-
æfingar: föstudaga 17–
19 og laugardaga 11–14.
Skíðaæfingar: mánu-
daga, miðvikudaga,
föstudaga, 17–19 og
laugardaga 11–14.
Almennur opnunar-
tími skíðasvæðisins: Opið er alla virka
daga frá 14–19 og um helgar frá 11–
16. Svæðið er einnig opnað fyrir hópa
sem vilja koma á öðrum tímum. Til
þess að hafa samband við Skíðasvæði
Tindastóls er hægt að hringja í Viggó í
síma 899-9073 eða senda tölvupóst á
skidi@tindastoll.is. Einnig er hægt að
hafa samband í gegnum Facebook-
síðuna. Nánari upplýsingar, eins og
verðskrá og upplýsingar um viðburði,
má nálgast á vefsíðu Skíðasvæðis
Tindastóls; skitindastoll.is og á Face-
book-síðunni. n
Alltaf stuð í fjallinu.
Það er engin leið að hætta.
Tryllitækið sem
um ræðir.
Hrein gleði í lyftunni.
"Ein salíbuna enn?"