Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2017, Qupperneq 24

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2017, Qupperneq 24
Vikublað 31. janúar–2. febrúar 201710 Útivist - Kynningarblað Allt fyrir mótorsportið Nítró kynnir: N ítró er ein elsta mótor- sportverslun landsins og er þar að finna gríðarlegt úrval af tækjum, vara- og aukahlutum, búnaði og fatnaði fyrir mótorhjól, vélsleða, fjórhjól og buggybíla. Fyrir tæpu einu ári flutti verslunin í glæsi- legt 1.000 fermetra húsnæði að Urðarhvarfi 4 í Kópavogi. Þar er einnig að finna fullkomið verk- stæði sem þjónustar og gerir við allar tegundir tækja. Strákarnir í Nítró og vita bókstaflega allt um mótorsportið. Nýtt frá Nítró Á síðasta ári byrjaði Nítró að selja Arctic Cat-vélsleða og má segja að hringnum hafi verið lokað með því að bæta vélsleðum við flóruna. Einnig eru í boði Phant- on barna- og unglingasleðar fyr- ir þá sem vilja byrja snemma í sportinu. Eins og flestir þekkja þá hefur Nítró til fjölda ára verið með umboð fyrir Kawasaki-mótorhjól og fjórhjól ásamt Beta-endúróhjólum, bensín- og rafmagnsvespum, raf- magnsreiðhjólum og barnahjólum. Ekki má gleyma CF Moto, en fjór- hjólin frá þeim framleiðanda eru þau mest seldu Íslandi síðastliðin tvö ár. Buggybílarnir hafa svo slegið í gegn en segja má að það sé nýjasta æðið á Íslandi um þessar mundir. Stórsniðugur beltabúnaður Ekki skemmir fyrir að það er hægt að fá beltabúnað bæði á fjórhjólin og buggybílana þannig að hægt er að nota þessi tæki jafnt á föstu undirlagi sem snjó. Og talandi um beltabúnað, þá hefur verið að ryðja sér til rúms búnaður sem er settur undir torfæru- hjól og breytir hjólunum í hálfgerðan vélsleða. Þá kemur belti að aftan og skíði að framan. Nítró hefur umboð fyrir MotoTrax-búnaðinn sem pass- ar undir flestar gerðir torfæruhjóla og góðu fréttirnar eru þær að verðið á þessum búnaði hefur snarlækkað á milli ára. Einnig er Nítró með umboð fyrir Camso-belti undir allar tegund- ir vélsleða ásamt Michelin- og Mitas- dekkjum á götu, torfæru- og fjórhjól. Nítró hlýjar þér og veitir þér öryggi En það er ekki nóg að eiga tækin, það þarf líka að bjóða upp á góðan bún- að til þess að halda hita á fólki og örygginu í hámarki. Mikið úrval af fatnaði, skóm, brynjum og fylgihlut- um er að finna í versluninni fyrir all- ar tegundir af mótorsporti. Þar má nefna sleðagalla og skó frá Motorf- ist og CKX, götuhjólafatnað frá RST og motocross-galla og skó frá Forma, Oneal, Acerbis og FXR og margt fleira. Eitt mesta úrval landsins af hjálmum er að finna í verslunni þar sem boð- ið er upp á toppmerki eins og Airoh, CKX og Nox á mjög góðu verði. Allt fyrir sportið Segja má að Nítró bjóði upp á allt sem tengist þessu sporti eins og sést í upptalningunni hér að framan, en einnig er mikið úrval af auka- og varahlutum. Að auki er boðið upp á sérpantanir í flestar tegundir sleða og hjóla. Það borgar sig að kíkja við í Nítró eða á heimasíðuna nitro.is ef þig vantar eitthvað sem viðkemur þessum áhugamálum. Nítró Sport er staðsett að Urðarhvarfi 4, 203 Kópavogi Sími: 557-4848 Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðu Nítró; nitro.is eða á Facebook-síðunni. n Allt fyrir mótorsportið í Nítró.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.