Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2017, Qupperneq 27

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2017, Qupperneq 27
Vikublað 31. janúar–2. febrúar 2017 Sport 15 S outhampton komst í liðinni viku í úrslitaleik enska deilda- bikarsins eftir sigur á Liverpool í undanúrslitum, 2-0 sam- anlagt. Góður árangur Sout- hampton á undanförnum árum hefur komið mörgum á óvart enda hefur fé- lagið ávallt þurft að horfa á eftir sínum bestu leikmönnum til stærri klúbba. Southampton vinnur hins vegar eftir ákveðinni aðferð sem skilar liðinu alltaf ungum og efnilegum leikmönn- um sem eru tilbúnir að feta í fótspor annarra leikmanna. DV rýndi í félagið og skoðaði hvernig það vinnur. 27 milljarðar á þremur árum Southampton situr sem stendur í 11. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 27 stig – liðið er nokkuð langt frá topp- liðunum en einnig fjarri fallsvæðinu. Félagið er nú hársbreidd frá því að vinna sinn fyrsta titil frá árinu 1976, en lærisveinar José Mourinho í Man- chester United standa í veginum. Liðin mætast í úrslitaleik deildabik- arsins í lok febrúar næstkomandi. Frá sumrinu 2014 hefur South- ampton selt leikmenn fyrir 186 millj- ónir punda, rúma 27 milljarða króna á núverandi gengi. Sumar eftir sumar hefur liðið selt sína bestu leikmenn; nægir í því samhengi að nefna Adam Lallana, Morgan Schneiderlin, Grazi- ano Pelle, Victor Vanyama, Dejan Lovren, Luke Shaw, Sadio Mane, Rickie Lambert og Nathaniel Clyne. Þar áður seldi félagið leikmenn eins og Alex Oxlade-Chamberlain, Theo Walcott og Gareth Bale. Þetta eru allt býsna öflugir leikmenn en þrátt fyrir það hefur félagið náð að halda dampi, ólíkt mörgum öðrum félögum. Skrefi framar Til að ná árangri og klófesta unga og efnilega leikmenn þurfa félög að hafa öflugt lið njósnara til að koma auga á þá. Um miðjan áttunda áratug liðinn- ar aldar hafði framkvæmdastjóri fé- lagsins, Lawrie McMenemy, milli- göngu um stofnun nets útsendara sem unnu meðal annars í Wales og raunar um allt Bretland. Félagið náði einmitt að klófesta Gareth Bale með aðstoð útsendara sinna í Wales þegar Bale, sem af mörgum er talinn einn besti knattspyrnumaður heims í dag, var ellefu ára gamall. 40 árum síðar hefur Southampton fært út kvíarnar og er nú með útsendara starfandi víða í Evrópu, Afríku og Suður-Ameríku. Þetta fyrirkomulag er ekkert einsdæmi hjá félögum í ensku úrvalsdeildinni, eða öðrum stórum deildum Evrópu, en Southampton virðist engu að síður vera skrefi framar þegar kemur að því að koma auga á efnilega leikmenn. Les Reed er potturinn og pannan Frá árinu 2010 hefur knattspyrnu- stjórinn fyrrverandi, Les Reed, verið yfirmaður þróunarmála hjá South- ampton. Undir stjórn hans hefur fé- lagið náð góðum árangri í að koma auga á efnilega leikmenn. „Þegar maður reynir að grafa upp unga leik- menn sem hafa burði til að verða frá- bærir leikmenn þarf maður miklar upplýsingar,“ sagði Reed við BBC fyrir skemmstu og bætti við að skipulag væri lykilþáttur í velgengni félagsins á leikmannamarkaðnum. En félagið hefur ekki bara klófest unga og efnilega leikmenn, heldur einnig leikmenn sem fáir vissu að væru til og einhverjir voru jafnvel búnir að afskrifa. Meðal þessara leik- manna er leikmaður eins og Sad- io Mané, sem var að spila í Austur- ríki árið 2014 þegar Southampton keypti hann. Mané, sem í dag spilar með Liverpool, hefur verið einn besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar í vetur. Graziano Pelle voru margir búnir að afskrifa; hann skoraði lítið framan af ferli sínum en átti svo tvö góð tímabil með Feyenoord í Hollandi áður en Southampton keypti hann. Hann er nú fastamaður í ítalska lands- liðinu en var seldur frá Southampton til Kína í fyrrasumar. Dæmin eru fleiri; Morgan Schneiderlin var 19 ára og alls óþekktur þegar hann gekk til liðs við Southampton og José Fonte var tiltölulega óþekktur leikmaður þegar Southampton keypti hann frá Crystal Palace árið 2010. Báðir þessir leik- menn eru í dag landsliðsmenn með Frökkum og Portúgölum. Sex greinendur í fullu starfi Í umfjöllun BBC á dögunum kom fram að Southampton búi yfir gagna- grunni með upplýsingum yfir nær flesta leikmenn í heimsfótboltanum. Sex starfsmenn, í fullu starfi, vinna við greiningar á þessum upplýsingum þar sem má finna upplýsingar um meiðsli, kosti og galla viðkomandi leikmanns og þróun hans. Nýjum leikmönnum er bætt við gagna- grunninn þegar nýjar upplýsingar berast. Til að nefna dæmi um hvernig gagnagrunnurinn virkar má geta þess að Oriol Romeu var settur í gagna- grunninn þegar hann var 19 ára leik- maður Barcelona. Félagið hélt áfram að safna upplýsingum um hann og þegar Victor Wanyama hafnaði nýjum samningi við Southmapton var félag- ið komið með nógu gagnlegar upp- lýsingar til að geta mælt með honum við þáverandi stjóra félagsins, Ronald Koeman. Romeu var keyptur fyrir 5 milljónir punda árið 2015 og ári síðar var Wanyama seldur fyrir 11 milljón- ir punda. Romeu hefur vakið athygli fyrir góða frammistöðu á tímabilinu og virðist félagið ekki sakna Wanyama tilfinnanlega. Það eru ekki bara upplýsingar um leikmenn sem félagið heldur utan um. Stjórarnir sem taka við liðinu eru ekki síður mikilvægir en leikmennirn- ir. Mauricio Pochettino var ekki mjög sjóaður í stjórabransanum þegar hann var ráðinn til Southampton árið 2013. Í dag er hann talinn í hópi snjöllustu stjóra fótboltans eftir góðan árangur með Southampton og nú Tottenham. Claude Puel tók við stjórnartaumun- um hjá Southampton í fyrrasumar þegar Ronald Koeman fór til Everton. Puel, sem var tiltölulega óþekktur á Englandi, hafði stýrt Lille í Frakklandi um nokkurra ára skeið. Áður en hann var ráðinn til Southampton sumar- ið 2016 var félagið með 40 blaðsíðna skýrslu um hann í gagnagrunni sínum. Puel hefur fengið mikið lof fyrir spila- mennsku Southampton á tímabilinu þar sem skipulag og góður fótbolti – oftast nær – ræður ríkjum. n HVAR ER SÓSAN? Það er ekkert betra en steiktur fiskur í raspi og nýjar kartöflur. Nema kannski steiktur fiskur í raspi, nýjar kartöflur og nóg af remolaði. Þú gleymir ekki sósunum frá E. Finnsson. Svona heldur félagið sér í röð þeirra bestu n Southampton gerir sárafá mistök á leikmannamarkaðnum n Skipulag er lykilatriði„Þegar maður reynir að grafa upp unga leikmenn sem hafa burði til að verða frá bærir leikmenn þarf maður miklar upplýsingar. Næstir til að fara? Oriol Romeu Staða: Miðjumaður Aldur: 25 ára Romeu er alinn upp í herbúðum Barcelona og gekk til liðs við Chelsea árið 2011. Eftir að hafa verið lánaður til Valencia og Stuttgart samdi Romeu við Southampton árið 2015. Hann hefur verið lykilmaður á miðju Southampton í vetur. Jack Stephens Staða: Varnarmaður Aldur: 23 ára Stephens þótti leika frábærlega í vörn Southampton gegn Liverpool í síðustu viku. Hefur fengið fá tækifæri á undanförnum árum en nú þegar José Fonte er farinn mun tækifærun- um fjölga. Efnilegur leikmaður sem gæti náð langt. James Ward-Prowse Staða: Miðjumaður Aldur: 22 ára Ward-Prowse er einn reynslumesti leikmaður Southampton þrátt fyrir ungan aldur. Frábær spyrnumaður sem hefur spilað vel að undanförnu. Honum var spáð bjartri framtíð fyrir nokkrum árum og virðist loksins standa undir þeim væntingum sem gerðar voru. Virgil van Dijk Staða: Varnarmaður Aldur: 25 ára Hefur verið einn besti varnarmaður ensku úrvalsdeildarinnar í vetur. Mörg félög eru á eftir þessum öfluga Hollendingi. Pierre-Emile Højbjerg Staða: Miðjumaður Aldur: 21 árs Þessi öflugi danski miðju- maður kom frá Bayern München í fyrrasumar og er talinn einn efnilegasti leikmaður Dana. Hann hefur hægt og bítandi verið að sýna sitt rétta andlit. Einar Þór Sigurðsson einar@dv.is Öflugur Virgil van Dijk hefur fengið mikið lof fyrir frammistöðu sína. Mynd EPA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.