Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2017, Page 28
Vikublað 31. janúar–2. febrúar 201716 Lífsstíll
Þ
egar Cara Brookins
yfirgaf ofbeldisfullan
eiginmann sinn var
ljóst að hún þyrfti
á nýju heimili að
halda sem hentaði henni og fjórum
börnum hennar; 2, 11, 15 og 17 ára.
Cara vissi sem var að hún þyrfti að
stilla væntingum í hóf enda var hún
skyndilega orðin einstæð fjögurra
barna móðir sem hafði ekki efni á
mjög dýrri fasteign.
Cara hafði yfir ákveðnu fjármagni
að ráða og miðað við það varð henni
ljóst að þröngt yrði á þingi á heimili
fjölskyldunnar – hvar sem það yrði.
Hún fór þá að skoða þá möguleika
sem í boði voru og tók í kjölfarið
ákvörðun sem hún sér ekki eftir í dag.
Eitt í stöðunni
Hún, ásamt börnum sínum, ákvað
að byggja hús fyrir fjölskylduna
og notaðist hún nær eingöngu við
kennslumyndbönd á myndbanda-
vefnum YouTube. Cara, sem er tölv-
unarfræðingur, reiknaði út að miðað
við það fjármagn sem hún fengi frá
bankanum hefði hún nóg til að kaupa
lóð undir húsið og það byggingar-
efni sem til þurfti. Það eina sem fjöl-
skyldan hafði ekki efni á var að kaupa
vinnuna við að koma húsinu upp. Því
var aðeins eitt í stöðunni; að gera það
sjálf.
325 fermetrar
Þetta var árið 2008 en fyrir skemmstu
kom út bók sem Cara ritaði um
ævin týrið, Rise: How a House
Built a Family. „Árið 2008 var
YouTube-vefurinn ekki jafn umfangs-
mikill og hann er í dag og það var
ekki mikið um undirsíður sem inni-
héldu kennslumyndbönd um það
hvernig á að byggja hús,“ sagði Cara í
viðtali við CBS. Með þolinmæðina að
vopni studdust þau engu að síður við
þau myndbönd sem þau fundu. Níu
mánuðum eftir að hafist var handa
við byggingu hússins, sem stendur á
laglegum stað í Arkansas í Bandaríkj-
unum, var vinnunni að mestu lokið
og gat fjölskyldan í kjölfarið flutt inn.
Um er að ræða 325 fermetra hús á
tveimur hæðum og með fimm svefn-
herbergjum.
Alveg þess virði
Cara segir að vinnan hafi verið mjög
erfið og krefjandi en algjörlega þess
virði. Verkefnið hafi krafist mikillar
samvinnu og fjölskyldan standi eftir
samrýmdari en nokkru sinni fyrr.
„Líkamlega séð var þetta mjög erfitt.
Börnin tóku mjög virkan þátt í þessu.
Ég vann allan daginn við að byggja
húsið og þegar börnin komu heim úr
skólanum fóru þau beint að vinna við
smíðina. Við unnum oft langt fram á
kvöld – með ljós á höfðinu,“ segir hún
og bætir við að börn hennar hafi gefið
sig öll í verkefnið. Félagslífið, og meira
að segja stefnumót, var sett til hliðar.
Bók Cöru um þetta mikla ævintýri
kom í verslanir þann 24. janúar síð-
astliðinn en í henni deilir hún góðum
ráðum með lesendum sínum. Þá
ræðir hún einnig um viðskilnaðinn
við eiginmann sinn og lífið sem hún
lifði í skugga heimilisofbeldis. n
Ný námskeið
Hringsjá
Náms- og starfsendurhæfing
Er ekki kominn tími til að gera eitthvað
Námskeið í febrúar og mars 2017
• Úr frEstuN í framkvæmd 6. febrúar
• EiNkENNi og aflEiðiNgar mEðvirkNi hefst 13. febrúar
• Bókfærsla og tölvuBókHald hefst 22. febrúar
• styrklEikar og NÚvituNd hefst 22. febrúar
• sjálfsumHyggja – hefst 6. mars
• í fókus – að ná fram því besta með ADHD hefst 13. mars
• fjármál – hefst 20. mars
• HEilsa og HEilsuEfliNg – hefst 27. mars
Frekari upplýsingar og skráning í síma 510 9380 eða á hringsja.is
Gylfaflöt 3 - Sími 567 4468 - www.gummisteypa.is
Fallegt hús
Húsið sem
fjölskyldan
byggði sjálf, með
aðstoð YouTube,
er á tveimur
hæðum og rúmir
300 fermetrar.
Allt hægt … ef
viljinn er fyrir hendi.
Byggði hús
með aðstoð
YouTube
n Cara Brookins yfirgaf
ofbeldisfullan eiginmann
sinn n Byggði 300 fermetra
hús ásamt börnum sínum