Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2017, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2017, Qupperneq 28
Vikublað 31. janúar–2. febrúar 201716 Lífsstíll Þ egar Cara Brookins yfirgaf ofbeldisfullan eiginmann sinn var ljóst að hún þyrfti á nýju heimili að halda sem hentaði henni og fjórum börnum hennar; 2, 11, 15 og 17 ára. Cara vissi sem var að hún þyrfti að stilla væntingum í hóf enda var hún skyndilega orðin einstæð fjögurra barna móðir sem hafði ekki efni á mjög dýrri fasteign. Cara hafði yfir ákveðnu fjármagni að ráða og miðað við það varð henni ljóst að þröngt yrði á þingi á heimili fjölskyldunnar – hvar sem það yrði. Hún fór þá að skoða þá möguleika sem í boði voru og tók í kjölfarið ákvörðun sem hún sér ekki eftir í dag. Eitt í stöðunni Hún, ásamt börnum sínum, ákvað að byggja hús fyrir fjölskylduna og notaðist hún nær eingöngu við kennslumyndbönd á myndbanda- vefnum YouTube. Cara, sem er tölv- unarfræðingur, reiknaði út að miðað við það fjármagn sem hún fengi frá bankanum hefði hún nóg til að kaupa lóð undir húsið og það byggingar- efni sem til þurfti. Það eina sem fjöl- skyldan hafði ekki efni á var að kaupa vinnuna við að koma húsinu upp. Því var aðeins eitt í stöðunni; að gera það sjálf. 325 fermetrar Þetta var árið 2008 en fyrir skemmstu kom út bók sem Cara ritaði um ævin týrið, Rise: How a House Built a Family. „Árið 2008 var YouTube-vefurinn ekki jafn umfangs- mikill og hann er í dag og það var ekki mikið um undirsíður sem inni- héldu kennslumyndbönd um það hvernig á að byggja hús,“ sagði Cara í viðtali við CBS. Með þolinmæðina að vopni studdust þau engu að síður við þau myndbönd sem þau fundu. Níu mánuðum eftir að hafist var handa við byggingu hússins, sem stendur á laglegum stað í Arkansas í Bandaríkj- unum, var vinnunni að mestu lokið og gat fjölskyldan í kjölfarið flutt inn. Um er að ræða 325 fermetra hús á tveimur hæðum og með fimm svefn- herbergjum. Alveg þess virði Cara segir að vinnan hafi verið mjög erfið og krefjandi en algjörlega þess virði. Verkefnið hafi krafist mikillar samvinnu og fjölskyldan standi eftir samrýmdari en nokkru sinni fyrr. „Líkamlega séð var þetta mjög erfitt. Börnin tóku mjög virkan þátt í þessu. Ég vann allan daginn við að byggja húsið og þegar börnin komu heim úr skólanum fóru þau beint að vinna við smíðina. Við unnum oft langt fram á kvöld – með ljós á höfðinu,“ segir hún og bætir við að börn hennar hafi gefið sig öll í verkefnið. Félagslífið, og meira að segja stefnumót, var sett til hliðar. Bók Cöru um þetta mikla ævintýri kom í verslanir þann 24. janúar síð- astliðinn en í henni deilir hún góðum ráðum með lesendum sínum. Þá ræðir hún einnig um viðskilnaðinn við eiginmann sinn og lífið sem hún lifði í skugga heimilisofbeldis. n Ný námskeið Hringsjá Náms- og starfsendurhæfing Er ekki kominn tími til að gera eitthvað Námskeið í febrúar og mars 2017 • Úr frEstuN í framkvæmd 6. febrúar • EiNkENNi og aflEiðiNgar mEðvirkNi hefst 13. febrúar • Bókfærsla og tölvuBókHald hefst 22. febrúar • styrklEikar og NÚvituNd hefst 22. febrúar • sjálfsumHyggja – hefst 6. mars • í fókus – að ná fram því besta með ADHD hefst 13. mars • fjármál – hefst 20. mars • HEilsa og HEilsuEfliNg – hefst 27. mars Frekari upplýsingar og skráning í síma 510 9380 eða á hringsja.is Gylfaflöt 3 - Sími 567 4468 - www.gummisteypa.is Fallegt hús Húsið sem fjölskyldan byggði sjálf, með aðstoð YouTube, er á tveimur hæðum og rúmir 300 fermetrar. Allt hægt … ef viljinn er fyrir hendi. Byggði hús með aðstoð YouTube n Cara Brookins yfirgaf ofbeldisfullan eiginmann sinn n Byggði 300 fermetra hús ásamt börnum sínum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.