Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2017, Qupperneq 30
Vikublað 31. janúar–2. febrúar 201718 Menning
D
aginn sem Donald Trump tók
við embætti forseta Banda-
ríkjanna mætti Richard
Spencer, heitur stuðnings-
maður forsetans og einn
helsti talsmaður hinnar nýnasísku
hreyfingar Alt-right í sjónvarpsviðtali á
götum Washingtonborgar.
Augnabliki áður en Spencer var
kýldur í andlitið af svartklæddum
mótmælanda var hann spurður út í
barmmerki af grænum teiknimynda-
froski sem hann bar í jakka sínum:
„Þetta er Pepe. Hann er eiginlega
orðinn að tákni fyrir…“ náði Spencer
að segja áður en höggið reið af.
Ef hann hefði klárað setninguna
hefði hann getað sagt „Við erum að
reyna að gera Pepe að tákni fyrir nýja
hreyfingu nasista sem er að gera sig
gildandi í Bandaríkjunum í dag“
(þótt hann hefði eflaust orðað þetta
aðeins öðruvísi). En hver er þessi
grallaralega teiknimyndapersóna á
jakka nýnasistans, af hverju hefur
hún orðið að tákni fyrir svo haturs-
fulla hreyfingu, og er enn hægt að
bjarga orðspori frosksins Pepe?
„Ég fíla þetta bara!“
Froskurinn Pepe kemur upphaflega
úr myndasögum sem Banda-
ríkjamaðurinn Matt Furie gerði
í teikniforritinu Paint og birti á
Myspace-síðu sinni á fyrstu árum
nýs árþúsunds. Myndasögurnar
Boy‘s Club sem fjalla um fjögur
tölvuleikjaspilandi, grasreykjandi
og áhyggjulaus táningaskrímsli fóru
að vekja athygli í kringum 2005. Ein
elsta myndasagan sýnir svarthvítan
froskmann girða buxurnar sínar al-
veg niður á hæla þegar hann pissar
standandi. Þegar vinur hans bend-
ir á hversu undarlegt þetta sé svarar
froskurinn slæpingslega „Feels good
man.“ Þetta var kjarninn í lífsafstöðu
frosksins á þeim tíma: „Ég fíla þetta
bara!“
Froskurinn fór að dreifast um
netið í fjölbreyttum myndskrítlum og
varð fljótlega að vinsælu „internet-
memi“. Orðið mem (e. meme) er
notað yfir ýmiss konar tákn sem öðl-
ast vinsældir meðal netnotenda og
þeir endurskapa og dreifa á milli sín
í óteljandi myndum. Memunum er
kastað inn í allar mögulegar sam-
ræður, aðstæður og samhengi – en
þau mem sem verða hvað vinsælu-
stu eru einmitt þau sem eru einföld
og auðþekkjanleg en geta á sama
tíma tjáð mjög vítt svið tilfinninga,
jafnt jákvæðar sem neikvæðar. And-
lit frosksins reyndist vera slíkt tákn,
frjór efniviður í hin ólíklegustu við-
brögð og brandara.
Tröllagrínistinn Pepe
Hinn staðlaði Pepe varð fljótlega
grænn og fékk brúnar varir. Hann
birtist í mismunandi skapi eftir því
hvað hentaði tilefninu. Hann var oft
vonsvikinn og leiður, en líka reiður,
eða prakkaralegur og sjálfumglaður.
Hann var auðþekkjanlegur, auð-
breytanlegur, gat sett sig í gervi
þekktra persóna úr poppmenn-
ingunni og gat gengið upp í öllum
mögulegum aðstæðum. Myndgrín-
ið breiddist um vefinn á samskipta-
miðlum og sérstaklega
nafnlausum grín- og spjall-
borðum á borð við 4chan – en
á slíkum síðum hafði einmitt
mótast ákveðin hefð fyrir
sótsvörtum húmor og trölla-
menningu.
Að trolla (eða trölla ef við
reynum að íslenska orðið)
felst í því að grínast á netinu til
að afvegaleiða, skemma um-
ræðu og reita fólk til reiði, oft-
ast með því að fara með kald-
hæðnislega brandara langt út
fyrir öll siðferðismörk. Trú-
gjarnir, viðkvæmir og pólitískt
rétthugsandi netnotendur og
fjölmiðlar eru þar sérstaklega
góð skotmörk. Tröllagrínistar
nýttu sér þannig hinn grallara-
lega Pepe æ oftar í siðferðilega
vafasömum aðstæðum. Hann
gerði grín að hverju því sem
þótti skinheilagt, viðkvæmt
eða ósiðsamlegt: barnamisnotk-
un, skólaskotárásum, hryðjuverka-
árásinni á tvíburaturnana, nasisma
og útrýmingarbúðum. Alltaf var
viðkvæðið það sama: „Ég fíla þetta
bara!“
Árið 2014 fór froskurinn að verða
áberandi í meginstraumnum. Þá
komu fram sérstakar Tumblr- og
Instagram-síður fyrir frosk-
inn og undirsíða á Reddit
með efni tengdu Pepe. Fólk
var líka farið að skiptast á „sjaldgæf-
um“ myndum á froskinum, mynd-
um sem voru bara sagðar til í einu
stafrænu eintaki og því kallaðir fá-
gætir Pepe. Froskurinn var eitt mest
deilda mem ársins 2015 og var
valinn eitt það mikilvægasta á vef-
síðunni Daily News and Analysis.
Það ár jukust vinsældirnar til muna,
meðal annars eftir að poppstjörn-
urnar Katie Perry og Nicki Minaj
deildu sínum útgáfum af froskinum
á samfélagsmiðlum.
Það var svo í október 2015,
nokkru mánuðum eftir að Donald
Trump tilkynnti framboð sitt sem
forsetaefni Repúblikanaflokksins,
sem hann deildi mynd af froskinum
á Twitter þar sem hann stóð jakkafa-
taklæddur og með einkennandi hár-
greiðslu Trumps við ræðupúlt merkt
forseta Bandaríkjanna.
Andlit nýnasistahreyfingar
Í grein í vefmiðlinum The Daily Beast
í maí 2016 var því haldið fram að Alt-
right, nýleg hreyfing hvítra þjóðern-
issinna sem rekur uppruna sinn til
þeirra sömu nafnlausu spjallborða
og Pepe hlaut fyrst frægð á, væri að
vinna í því að endurheimta froskinn
frá meginstraumnum og gera hann
að tákni fyrir hópinn.
Blaðakonan hafði þetta eftir
tveimur nafnlausum netnotendum
sem hún taldi vera meðlimi hreyf-
ingarinnar. Síðar hefur því verið
haldið fram að þetta hafi ekki verið
raunverulegir nasistar, heldur
trollandi net-grínistar sem fannst
fyndið að festa froskinn í sessi sem
andlit hreyfingarinnar. Eins og svo
oft í upplýsingafargani internetsins
er erfitt að gera sér grein fyrir hvort
þetta sé sannleikanum samkvæmt,
hvort hér hafi verið um kaldhæðni
eða alvöru að ræða. Hvað sem upp-
runa herferðarinnar líður má svo
sannarlega segja að blaðagreinin
hafi orðið að sjálfsuppfyllandi
spádómi – það, sem grein-
in sagði að væri þá þegar
staðreynd, varð í það
minnsta að veruleika
í kjölfar birtingar
hennar og kannski
einmitt vegna henn-
ar. Það er að minnsta
kosti ljóst að nýnas-
istarnir sem kenna
sig við Alt-right,
hitt hægrið, og
ýmsir aðrir stuðn-
ingsmenn Trumps
tóku erindinu fagn-
andi. Hvað er betra fyrir
hatursfulla hreyfingu en
að hafa góðlátlegt og
kumpánlegt lukku-
dýr?
En það
er fleira en
kumpánleik-
inn sem
Guðrúnartúni 4,
105 reykjavík
Sími: 533 3999
www.betraGrip.iS
Opið
virka
daga frá
kl. 8–17
Smurdagar
15% afSláttur
af vinnu Og efni
daGana 15. janúar-28. Febrúar
n Nýnasistahreyfingin Alt-right reynir að gera froskinn Pepe að merki sínu
Þessi froskur gæti verið nýi hakakrossinn
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is