Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2017, Page 31
Vikublað 31. janúar–2. febrúar 2017 Menning 19
gerir Pepe hentugan. Hann er auð-
þekkjanlegt tákn en alls ekki skýrt
eða einhlítt. Það er einmitt í krafti
þess að froskurinn er margræður
sem hægt er að nota hann til að
orða skoðanir sem annars má ekki
setja fram í almenningsrýminu, tala
um alþjóðasamsæri gyðinga, velta
upp réttmæti þjóðarmorða og svo
framvegis. Hér er aldrei ljóst hvort
um raunverulegar skoðanir sé að
ræða eða troll. Pepe og ýmis önnur
internet-fyrirbæri hafa þannig gert
nýnasistum kleift að koma orðræðu
sinni á framfæri án þess að þurfa að
svara beinlínis fyrir hana og þannig
víkka út ramma þess sem þykir í lagi
að segja.
Þó hitt hægrið jafnt sem stuðn-
ingsmenn í innsta hring Donalds
Trump hafi meðvitað notað froskinn
sér í hag – klippt hann inn á mynd-
ir með forsetaframbjóðandanum og
hrópað nafnið undir ræðum Hillary
Clinton – voru það þó fyrst og fremst
andstæðingar Trumps sem festu
hugrenningatengsl frosksins og kyn-
þáttahyggjunnar endanlega í sessi.
Á stuðningssíðu Hillary Clinton
var fjallað um froskinn af skilnings-
leysi og því haldið fram að hann
væri merki hins hægrisins og Anti-
Defamation League, samtök sem
berjast gegn gyðingahatri, skil-
greindu froskinn sem haturstákn.
Í kjölfarið fóru fjölmiðlar vestan-
hafs að fjalla ítarlega um þennan
„nasista frosk“ sem skaut kollinum
svo ítrekað upp í kosningabarátt-
unni. Áhuginn á froskinum og vin-
sældir hans jukust til muna.
„Björgum Pepe!“
Matt Furie, sá sem teiknaði Pepe
upphaflega, hefur ítrekað látið í ljós
óánægju sína og fordæmt yfirtöku
nýnasista á froskinum en sagði lengi
vel að hann hefði enga stjórn á mál-
inu – ekki frekar en nokkur annar
gæti haft stjórn á öllum þeim frosk-
um sem birtust á internetinu.
Um mánuði fyrir forsetakosn-
ingarnar sendi Fantagraphics, út-
gefandi myndasagnanna um Pepe
og félaga, frá sér yfirlýsingu þar sem
það var harmað að froskurinn hefði
verið tekinn í gíslingu af hægri öfga-
mönnum: „Fantagraphics vill árétta
að hinn eini sanni Pepe, skapað-
ur af manneskjunni og listamann-
inum Matt Furie, er friðsamlegt
teiknimyndafroskdýr sem stendur
fyrir ást, viðurkenningu, og stuð (og
það að reykja sig skakkan). Bæði
skaparinn og sköpunarverkið neita
þeirri tómhyggju sem drífur áfram
forsvarsmenn hins hægrisins sem
hafa eignað sér froskinn, og við öll
hjá útgáfunni hvetjum ykkur til að
hjálpa okkur að hrifsa Pepe til baka
og gera hann að tákni jákvæðni og
samheldni.“
Teiknarinn setti, ásamt
sam tökum sem berjast gegn kyn-
þáttahatri, í gang herferð með það
að markmiði að bjarga froskinum
frá nýnasistunum undir myllumerk-
inu #SavePepe – björgum Pepe.
Furie skrifaði skoðanagrein í Time
Magazine þar sem hann fordæmdi
enn frekar notkunina á persónunni:
„Hið sanna eðli Pepe, eins og hann
birtist í teiknimyndasögunni minni
Boy‘s Club, er að hampa friði, sam-
heldni og stuði. Ég stefni á að
endurheimta grallarafroskinn
frá hatursfullum öflum og
bið ykkur um að hjálpa mér
með því að gera milljón ný
glaðleg Pepe-mem sem miðla
léttúðlegum anda hins upp-
haflega afslappaða meistara.“ n
Tjarnargata 4 • 101 Reykjavík • Sími 511 3101 • Fax 511 3909 • www.101.is • 101@101.is
Lei
fur
Hr
afn
hil
du
r
Gu
ðrú
n
K
ris
tín
82
0 8
101
K r i s t í n S i gu r e y S i gu rða rdó t t i r - l ögg i l t u r f a s t e i gna s a l i
Stu
rla
89
9 9
08
3
D
aði
82
0 8
103Eym
un
du
r
69
0 1
42
2
Tjarnargata 4 • 101 Reykjavík • Sími 511 3101 • Fax 511 3909 • www.101.is 101@ i
Lei
fur
Hr
afn
hil
du
r
Gu
ðrú
n
K
ris
tín
82
0 8
101
K r i s t í n S i gu r e y S i gu rða rdó t t i r - l ögg i l t u r f a s t e i gna s a l i
Stu
rla
89
9 9
08
3
D
aði
82
0 8
103Eym
un
du
r
69
0 1
42
2
Tjarn rgata 4 • 101 Reykjavík • Sími 511 3101 • Fax 511 3909 • www.101.is • @101.is
Lei
fur
Hr
afn
hil
du
r
Gu
ðrú
n
K
ris
tín
82
0 8
101
K r i s t í n S i gu r e y S i gu rða rdó t t i r - l ögg i l t u r f a s t e i gn sa l i
Stu
rla
89
9 9
08
3
D
aði
82
0 8
103Eym
un
du
r
69
0 1
42
2
Tjarnargata 4 • 101 Reykjavík • Sími 511 3101 • Fax 511 3 09 • www.101.is • 101@101.is
Lei
fur
Hr
afn
hil
du
r
Gu
ðrú
n
K
ris
tín
82
0 8
101
K r i s t í n S i gu r e y S i gu rða rdó t t i r - l ögg i l t u r f t e gn sa l i
Stu
rla
89
9 9
08
3
D
aði
82
0 8
103Eym
un
du
r
69
0 1
42
2 Sig
rún
85
7 2
267
Þar sem hjartað slær
Lei
fur
82
0 8
100
– Þ A R S E M H J A R TA Ð S L Æ R –
Traust fasteignaviðskipti
og persónuleg þjónusta
- þinn lykill að nýju heimili
414 6600 | nyttheimili.is
FRÍTT
SÖLUMAT
Reynir Eringsson
820 2145
Skúli Sigurðarsson
898 7209
Guðjón Guðmundsson
899 2694
Fasteignasala
Leigumiðlun
Hakakrossinn
Heillamerkið sem varð að tákni haturs
Það sem græni froskurinn Pepe á sameiginlegt með hakakrossinum – þekktasta tákni
haturs í vestrænni menningu – er að hreyfingar kynþáttahatara tóku í báðum tilvikum
útbreidd og vinsæl tákn og reyndu að eigna sér þau.
Nasistar fundu ekki upp hakakrossinn. Elsta svastikan sem hefur fundist er um 11
þúsund ára gömul og kemur táknið fyrir í myndmáli nánast allra menningarsamfélaga
heims. Í Austur- og Norður-Evrópu, Austurlöndum fjær, Suður-Ameríku og víðar.
Táknið var áberandi á fornmunum sem voru grafnir upp í grísku borginni Tróju á
síðustu áratugum 19. aldar og vöktu mikla athygli í Evrópu. Áhuginn á hakakrossinum
jókst í kjölfarið á Vesturlöndum og varð hann að gríðarlega vinsælu og útbreiddu tákni
um velgengni og gæfu. Mörg ólík félög og fyrirtæki notuðu hakakrossinn á fyrri hluta 20.
aldarinnar til að merkja sig og auglýsa, allt frá finnska flughernum til skátahreyfinga, frá
Eimskipum til Carlsberg og Coca-Cola.
Adolf Hitler var því alls ekki að finna upp hjólið þegar hann gerði hakakrossinn
að tákni nasistahreyfingarinnar í Þýskalandi og þróaði sérstaklega kraftmikla útgáfu
merkisins um miðjan þriðja áratuginn. Meginmarkmið Hitlers var að skapa auðþekkjan-
legt merki með góð hugrenningatengsl sem hreyfing hans gæti sameinast undir, á sama
hátt og hann hafði séð kommúnista sameinast undir sínum rauða fána, hamri og sigð.
„Virkilega kraftmikið merki getur orðið til þess að vekja áhuga fólks á hreyfingu,“ skrifaði
Hitler meðal annars í stefnuyfirlýsingu sinni Baráttan mín (þ. Mein Kampf).
Í huga þýskra þjóðernissinna hafði hakakrossinn einnig hugmyndafræðilegar
skírskotanir en þeir álitu táknið hafa haft mikla trúarlega merkingu fyrir forfeður þjóðar-
innar, en þeir töldu sig afkomendur „aría,“ höfðingaþjóðflokks sem sagður er hafa komið
frá Íran og Indlandi og til Evrópu fyrir árþúsundum.
Þó að hakakrossinn sé enn notaður víða í heiminum sem heillatákn, til dæmis hjá
frumbyggjum Norður-Ameríku og í ýmsum asískum trúarbrögðum, svo sem hindúisma,
búddisma og jainisma, eiga Vesturlandabúar erfitt með að aftengja hakakrossinn við
hugmyndir um þjóðarmorð, helför og nasisma. Þannig hefur notkun táknsins verið
bönnuð í Þýskalandi frá stríðslokum og tilraunir hafa verið gerðar til að banna það í
Evrópusambandinu.
Þó eru einnig margir sem hafa viljað bjarga tákninu frá hinum ógnvænlegu hug-
renningatengslum. Meðal annars stóðu tattúlistamenn víða um heim fyrir herferðinni
„Save the swastika“ árið 2013 og var markmiðið að breyta hugmyndum fólks um
hakakrossinn.
Þessi froskur gæti verið nýi hakakrossinn
n Nafnlaus nettröll og auðtrúa fjölmiðlar hafa tekið þátt í að skapa tenginguna