Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2017, Side 32
Vikublað 31. janúar–2. febrúar 201720 Menning
PLUSMINUS OPTIC
Smáralind
www.plusminus. is
Sumar
kaupauki
Sólgler
með öllum gleraugum
Index 1,5*
Sjóngler
www.plusminus.is
ÚTSALA
Útsalan er hafin
20-80 %
afsláttur af umgjörðum
S
tóra barnasýning Þjóðleik-
hússins byggir að þessu
sinni á persónum og sögu-
sviði þekktra ævintýra.
Ævin týrahetjurnar í Fjarska-
landi eru að hverfa ein af annarri
vegna þess að allir eru hættir að lesa
sögurnar þeirra. Til þess að forða
sögunni um Rauðhettu frá glötun
hefur úlfurinn rænt ágætri ömmu
úr mannheimum og komið henni
fyrir í ævintýrinu í stað uppruna-
legu ömmunnar. Númenór, verndari
ímyndunaraflsins, sannfærir Dóru,
barnabarn ömmunnar brottnumdu,
um að koma yfir í Fjarskaland og
bjarga ömmu sinni. Þetta gerir Dóra
auðvitað en til þess að finna ömmu
sína þarf hún fyrst að bregða sér í
hlutverk nokkurra þekktra persóna
og leika ævintýri þeirra. Þannig fáum
við á svið söguna um bæði Hans og
Grétu og Dimmalimm áður en Dóra
rambar inn í sögu Rauðhettu þar
sem hún finnur úlfinn og bjargar
ömmu sinni á elleftu stundu.
Þunnt handrit
Handritið er þunnt og söguþráðurinn
illa undirbyggður. Jafnvel börn gera
sér grein fyrir því að ef amman úr
Rauðhettu hyrfi vegna þess að enginn
læsi söguna lengur, þá væru sögu-
hetjur flestra minna þekktra ævin týra
löngu gufaðar upp og því varla með
í þessu leikriti. Það skýtur því skökku
við að sjá Gilitrutt spígspora sprell-
lifandi um sviðið ásamt fleiri ævin-
týrahetjum. Þá var mörgum spurn-
ingum ósvarað eins og þeirri hvernig
úlfinum tókst að ræna ömmunni úr
mannheimum og koma henni strax
fyrir í réttu ævintýri, á meðan Dóra
þurfti að þræða sig í gegnum tvö
ævin týri áður en hún komst loksins á
slóðir Rauðhettu.
En það er rétt hjá höfundi verks-
ins, Guðjóni Davíð Karlssyni, að
sögur og sögupersónur gufa upp
ef enginn er til að lesa um þær. Eitt
eftirminnilegasta atriði verksins var
einmitt þegar barnaraddir hljóm-
uðu um sviðið og óskuðu eftir stuttri
sögustund. Raddir foreldra vörðust
þessum ákafa sagnaþorsta af mikilli
fimi og beindu börnunum af öryggi
og festu á ýmsa rafdrifna möguleika
til þess að hafa ofan fyrir sér. Þetta
var vel gert og það fór örugglega smá
hrollur um flesta foreldra í salnum.
Boðskapurinn er því hinn besti. En
eftir að hafa hlustað á enskuslettur
í handriti situr hins vegar eftir sú
áleitna spurningin hvort tungumál
gufi ekki líka upp, ef sjálft Þjóðleik-
húsið sér ekki ástæðu til þess að nota
það af fullum þunga?
Einvalalið stjórnenda
Þrátt fyrir veikt handrit tekst Selmu
Björnsdóttur, leikstjóra verksins, þó að
galdra fram ótrúlega lifandi og fallega
sýningu, ásamt öllum öðrum hönnuð-
um og höfundum sem að verkinu
koma. Leikmynd, leikmunir og lýsing
unnu saman sem töfrandi heild, fal-
legir búningar lifnuðu við í glæsileg-
um dansatriðum og hljóðfæraleikarar
heilluðu áhorfendur með viðeigandi
tónum. Þeir Sigurður Þór Óskarsson,
Oddur Júlíusson og Gunnar Jónsson
voru svo algjörlega frábærir í hlut-
verkum sínum, nánast þannig að
ójafnvægi skapaðist í sýningunni.
Snæfríður Ingvarsdóttir lék einnig
hlutverk Dóru mjög fallega án þess
að hafa úr miklu moða. Aðrir leikarar
hússins ljómuðu síður í hlutverkum
sínum, voru tilgerðarlegir eða einfald-
lega óspennandi. Vert er að geta þess
að fengur er í þeim fróðleik sem ung-
um áhorfendum er gefinn um tækni-
hlið leikhússins í fallegri leikskrá.
Niðurstaðan er því þunnt hand-
rit sem einvalalið stjórnenda nær
þó að lyfta upp á annað plan með
ótrúlega fallegri og næstum því
spennandi sýningu. Nokkrir ungir og
hugmyndaríkir leikarar halda verk-
inu uppi með frábærum leik í fallegri
umgjörð á meðan aðrir hitta því mið-
ur ekki jafn vel á ævintýratóninn. n
Sundurleit
ævintýraveröld
Bryndís Loftsdóttir
ritstjorn@dv.is
Leikhús
Fjarskaland
Höfundur: Guðjón Davíð Karlsson
Leikstjórn: Selma Björnsdóttir
Leikarar: Snæfríður Ingvarsdóttir, Sigurður
Þór Óskarsson, Oddur Júlíusson, Gunnar
Jónsson, Þröstur Leó Gunnarsson, Hallgrímur
Ólafsson, Baldur Trausti Hreinsson, Edda
Arnljótsdóttir, Ragnheiður Steindórsdóttir,
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir o.fl.
Tónlist: Vignir Snær Vigfússon
Hljómsveit: Vignir Snær Vigfússon,
Benedikt Brynleifsson, Róbert Þórhallsson
og Ingvar Alfreðsson
Leikmynd: Finnur Arnar Arnarson
Búningar: María Th. Ólafsdóttir
Lýsing: Ólafur Ágúst Stefánsson
Danshöfundur: Lára Stefánsdóttir
Sýnt á stóra sviði Þjóðleikhússins
„nokkrir ungir og hugmyndaríkir
leikarar halda verkinu uppi með
frábærum leik í fallegri umgjörð á
meðan aðrir hitta því miður ekki jafn
vel á ævintýratóninn
Meðmæli
DV mælir með 5 menningarafurðum
Tónlist
Philip
Glass, Piano
Works með
Víkingi Heiðari
Ólafssyni,
aðgengileg á
Spotify.
Sjónvarp
Philip Glass, Piano Works með
Víkingi Heiðari Ólafssyni, aðgengileg
á Spotify.
Bíó
Moon-
light
eftir Barry
Jenkins,
sýnd í Bíó
Paradís.
Fræði
Eitthvað
annað
eftir Björn Þor-
steinsson, fá-
anleg í næstu
bókabúð.
Hlaðvarp
A point of view frá BBC 4, að-
gengilegt í iTunes Store.