Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2017, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2017, Page 6
Helgarblað 17.–20. mars 20176 Fréttir Löglegt dóp til sölu í Reykjavík og lögreglan getur ekkert gert n Listinn yfir bönnuð fíkniefni ekki verið uppfærður í 16 ár n Spice hefur dregið fólk til dauða V erksmiðjuframleitt kanna- bislíki er nú boðið til sölu í lokuðum íslenskum Face- book-hópum en efnið er sagt kalla fram sömu áhrif og fást við grasreykingar. Munur- inn á kannabisplöntunni sjálfri hins vegar og þessu verksmiðjufram- leidda fíkniefni er sá að hin náttúru- legu kannabisefni eru bönnuð á Íslandi en verksmiðjuframleidda kannabislíkið er löglegt. En áður en haldið er áfram er rétt að skoða aðeins af hverju þessi stór- hættulegu efni eru lögleg og velta upp þeirri spurningu hvers vegna umrætt fíkniefni, sem hefur dregið fólk til dauða á Norðurlöndunum, Bretlandi og í Bandaríkjunum, er ekki ofar á forgangslista íslenskra stjórnvalda. Listinn sem inniheldur öll þau ávana- og fíkniefni sem bönnuð eru á Íslandi hefur ekki verið uppfærð- ur í sextán ár eða frá árinu 2001. Þannig hafa heilbrigðisráðherrar í Framsókn, Sjálfstæðisflokknum, Samfylkingunni, Vinstri grænum og nú Bjartri framtíð ekki beitt sér í málinu en þess í stað eytt nokkurri vinnu í að koma lögum yfir sölu á rafrettum og rafvökva. Snarlækka í verði Efnið er selt í grömmum en sam- kvæmt sölusíðum á Facebook hefur eitt gramm venjulega kostað þrjú þúsund krónur, eða það sama og gramm af kannabisefnum í smá- sölu. Lögmál viðskipta ráða þó ríkj- um í undirheimunum eins og annars staðar og því getur verðið orðið mun hærra ef framboð af því er lítið. Einn fíkniefnasali á Face- book seldi til að mynda grammið á fimm þúsund krónur og lét eftir- farandi texta fylgja með í auglýs- ingunni: „Smókur sem mælist ekki í þvagi og mun hærri virkni en gras- ið og endist líka miklu lengur. Þarft mjög lítið en verður alveg bólu- skakkur.“ Við stutta yfirferð í vikunni virtist nægilegt framboð af Spice til sölu á Facebook en efnið hafði snar- lækkað í verði. Þannig var hægt að fá tvö grömm fyrir þrjú þúsund krónur. Löglegt að eiga og neyta Samkvæmt lögum er því heimilt að eiga og neyta Spice en listinn sem heldur utan um bönnuð fíkniefni á Íslandi hefur ekki verið uppfærður frá árinu 2001. Sú uppfærsla er hins vegar á leiðinni samkvæmt upplýs- ingum frá velferðarráðuneytinu. Vinna við uppfærsluna hefur stað- ið yfir í um tvö ár og hefur að sögn tekið lengri tíma en áætlað var. Þó er vonast til að þeirri vinnu ljúki á þessu ári og að nýr og uppfærður listi yfir bönnuð vímuefni á Íslandi líti dagsins ljós mögulega í haust. „Það væri mjög æskilegt að þetta tæki styttri tíma en tvö ár. Á þessum tíma hefur fjöldi nýrra efna orðið til Í Evrópu en við höfum hingað til verið einangruð fyrir þessu. Nú virð- ist þetta vera að dúkka upp þrátt fyrir að sum þessara efna hafi lengi verið til erlendis. Eins og til dæmis Spice- ið,“ segir Rafn M. Jónsson, verk- efnastjóri hjá embætti landlæknis. Breyta samsetningu til að sniðganga lög En hvað er hægt að gera? Hvernig væri hægt að koma hættulegum og nýjum fíkniefnum á listann yfir bönnuð vímuefni án þess að það væri jafn tímafrekt og raun ber vitni? Rafn segir það stjórnvalds- ákvörðun hversu hratt er hægt að uppfæra listann. Það ferli væri hins vegar hægt að betrumbæta. „Það væri mjög praktískt fyrir þá sem eru að sinna þessu eftirliti, eins og til dæmis lögregluembætti landsins og tollyfirvöld, að geta bæði komið ábendingum til stjórnvalda og óskað eftir því að hin og þessi efni séu sett á listann.“ En að komast að efnasamsetn- ingu Spice, til þess að geta bannað efnið á Íslandi, gæti verið snúið þar sem framleiðendur efnisins eru sífellt að breyta samsetningu þess til þess að komast undan lög- um og reglum um ávana- og fíkni- efni. Spice er nefnilega samheiti yfir ótal mörg efni á meðan ólög- lega efnið í náttúrulegu kannabis- efnum er THC. Í Spice er THC-ið tekið út og hafa efnaverkfræðingar bætt við öðrum efnum sem veita áhrif sem líkjast áhrifum THC en þau efni geta verið fjölmörg og varasöm. Þar má nefna til dæmis Cannabicyclohexanol sem er fimm sinnum sterkara en THC og HU-210 sem er hundrað sinnum sterkara en THC. Það sem gerir efnið sérstak- lega hættulegt er að neytandinn veit aldrei hvaða efnasamsetning er í umræddu Spice-efni og hvaða áhrif það kemur til með að hafa á líkams- og heilastarfsemi. Hverfið fullt af uppvakningum „Já, þegar það kemur að því að banna þessi efni þá getur það verið flókið í sjálfu sér. Það er hins vegar hægt að auðvelda skráningu á bönnuðum fíkniefnum með því til dæmis að geta sett afleiður ýmissa fíkniefna undir eitt sam- heiti. Þannig gætum við til dæmis bannað THC og verksmiðjufram- leitt THC, burtséð frá því hver efna- samsetningin er hverju sinni. Það hafa skapast miklar umræður um þetta,“ segir Rafn sem hvetur fólk til þess að forðast neyslu efnisins þótt það sé löglegt. Það hafi dregið fólk til dauða líkt og greint hefur verið frá í fjölmörgum erlendum miðlum, þá sérstaklega í Bretlandi, Banda- ríkjunum og Svíþjóð. Sjö ár eru síðan bera fór á Spice í Bandaríkjunum og hefur neysla efnisins aukist jafnt og þétt síð- ustu ár. Þannig greindu bandarískir miðlar frá því að á árinu 2015 hefði mátt rekja sex þúsund komur á neyðarmóttökur í New York til neyslu á Spice. Í maí sama ár var efnið bannað í fylkinu en í fram- haldi af banninu drógust komur á neyðarmóttökur vegna neyslu Spice saman um 85 prósent. Þá greindi New York Times frá því í fyrra- sumar að á einungis einum degi í júlí hafi þrjátíu og þrír tekið of stóran skammt af efn- inu í Brooklyn. Afleiðan hét K2 og var og er mjög vin- sæl í Banda- ríkjun- um. Íbúar í einu hverfi Brooklyn líktu ástandinu við sjónvarpsþættina Walking Dead, fíklar hafi gengið um hverfið eins og uppvakningar. Þeir hafi bók- staflega ekkert vitað í þennan heim eða hinn. Þá hafa fleiri þekktir fjölmiðlar fjallað um efnið og greindi International Business Times frá því að á fyrstu fimm mánuðum ársins 2015 hafi fíkniefnið Spice valdið, í það minnsta, dauða fimmt- án manns í Bandaríkjunum. Þá hefur fréttastofan Vice einnig fjallað um Spice-fíkla í Bretlandi. Stjórnvöld þurfa að hysja upp um sig Á Íslandi fóru yfirvöld fyrst að taka eftir efninu í byrjun síðasta árs þó svo að það hafi mögulega verið til sölu hér á landi töluvert lengur. En það voru ekki lögregluyfirvöld sem fundu efnið fyrst heldur fangelsismálayfir- völd en Fréttablaðið greindi frá því í september í fyrra að Spice væri orðið nýja tískudóp fanga á Litla-Hrauni. „Spice getur litið alla vega út, eins og kaffikorgur, krydd eða hvað sem er. Við erum vakandi hér á Litla-Hrauni og erum oft að finna alveg ótrúleg- ustu hluti frá gestum og föng- um, hvort sem það er Spice, sýra eða annað sem er verið að reyna að koma til fanga,“ sagði Halldór Valur Pálsson, forstöðu- maður fangelsis- ins á Litla-Hrauni. „Það er af- skaplega skrítið að hugsa til þess að á meðan al- þingismenn rífast um áfengisfrumvarp eða lög um rafrettur þá eru hin ýmsu fíkniefni lögleg á Íslandi og enginn hefur uppfært listann yfir bönnuð fíkni- efni í sextán ár. Við erum að tala um sextán ár,“ sagði lögreglumaður sem starfar meðal annars við rannsókn- ir á fíkniefnamálum. Hann óskaði nafnleyndar en taldi mikilvægt að benda á þessa skringilegu forgangs- röðun stjórnvalda. „Stjórnvöld þurfa að hysja upp um sig. Það er algjörlega út í hött að við séum svona langt á eftir þegar kem- ur að lífshættulegum fíkniefnum.“ n Atli Már Gylfason atli@dv.is Óttarr Proppé Er heilbrigðisráðherra nú, en listinn yfir bönnuð fíkniefni hér á landi hefur ekki verið uppfærður frá árinu 2001. Mynd SiGtryGGur Ari rafn Magnús tómasson Verkefnastjóri hjá embætti landlæknis bendir á að hægt sé að einfalda verkferlið þegar kemur að því að banna ný fíkniefni. Mynd Úr einkASAfni„Stjórnvöld þurfa að hysja upp um sig. Það er algjörlega út í hött að við séum svona langt á eftir þegar það kemur að lífshættulegum fíkniefnum. Lítur út eins og píputóbak Á Íslandi er Spice selt í inn- sigluðum glær- um pokum. Lítið hefur sést af jafn skrautlegum um- búðum og sjást hér. Magnið er þó til stað- ar og það löglegt. rómantísk neysla á Spice? Fíkniefnasalar nýttu sér Valentínusardaginn eins og aðrir markaðsmenn en þessi sagði að ekkert annað væri í boði en að fá sér það besta með ástinni. Í boði var kókaín, gras, spítt, Spice og ritalín. Hugguleg blanda? Lítið framboð? Hærra verð? Fyrir rúmum þremur mánuðum, þegar efnið fór fyrst að koma til landsins í einhverju magni, þá var grammið selt á fimm þúsund krónur. Í dag er hægt að fá eitt gramm á tvö þúsund krónur og tvö á þrjú þúsund krónur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.