Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2017, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2017, Blaðsíða 16
Helgarblað 17.–20. mars 201716 Fréttir Erlent Evgeniy Bogachev er sagður eiga snekkju og safn lúxusbíla B andaríska alríkislögreglan, FBI, heitir hverjum þeim sem gefur upplýsingar sem leiða til handtöku Rússans Evgeniy Bogachev þremur milljónum Bandaríkjadala, eða 335 milljónum króna á núverandi gengi. Bogachev hefur verið eftirlýstur frá árinu 2014. Hafði fjármuni af fjölmörgum Bandaríska blaðið New York Times fjallaði ítarlega um Bogachev um helgina, en í umfjölluninni kom fram að aldrei áður í sögunni hafi jafn há upphæð verið lögð til höf- uðs einstaklingi sem grunaður er um tölvuglæpi. Bogachev hefur verið ákærð- ur í Bandaríkjunum, en samkvæmt ákæru notaði hann háþróaðan bún- að til að stela hundruð milljónum Bandaríkjadala af bankareikning- um einstaklinga víða um heim. Með- al þeirra sem urðu fyrir barðinu á óværu Bogachev var meindýrafyrir- tæki í Norður-Karólínu og lögreglu- embætti í Massachusetts, svo tvö af fjölmörgum dæmum séu tekin. Talinn halda sig í Rússlandi Í desember síðastliðnum tilkynnti fráfarandi ríkisstjórn Baracks Obama um viðskiptaþvinganir gegn Bogachev og fimm öðrum einstak- lingum sem voru taldir hafa reynt að hafa áhrif á úrslit bandarísku forseta- kosninganna. Bogachev, sem er 33 ára, er talinn halda sig í Rússlandi og er banda- ríska alríkislögreglan sögð fylgjast með hverju skrefi hans. Ljóst er að ef hann yfirgefur heimahaga sína í Rússlandi mun FBI reyna að hafa hendur í hári hans. Lúxusbílar og snekkja Talið er að Bogachev hafi hagnast gríðarlega á tölvuglæpum sínum og er hann til að mynda sagður eiga safn lúxusbíla og snekkju sem hann notar einna helst við Svartahaf. Bogachev er einmitt fæddur og alinn upp í bænum Anapa í suðurhluta Rúss- lands, skammt frá Svartahafi. Í umfjöllun New York Times er látið að því liggja að Bogachev sé náinn æðstu valdamönnum Rússlands. Tölvuvírusinn sem hann þróaði, GameOver ZeuS, gerði honum ekki einungis kleift að hafa peninga af tug- um þúsunda einstaklinga og fyrirtækja um allan heim heldur gerði óværan honum kleift að nálgast allar upplýs- ingar í tölvum viðkomandi. Enginn framsalssamningur í gildi Talið er að þegar mest var hafi um milljón tölvur um heim allan verið sýktar af óværunni, þar á meðal tölvur ráðamanna og hátt settra embættis- manna um víða veröld. „Á sama tíma og Bogachev tæmdi bankareikn- ingana virðast rússnesk stjórnvöld hafa horft yfir öxlina á honum og leitað í þessum sömu tölvum í gögn- um og tölvupósti,“ segir í greininni. Með þessu hafi Rússar sparað sér dýrmætan tíma sem annars færi í að koma auga á og hakka sig inn í tölvur embættismanna. Óværan sem fjallað er um hér að framan, GameOver ZeuS, heyrir nú sögunni til að mestu leyti, en FBI telur að Bogachev sé hvergi nærri hættur. Þannig leiki grunur á að hann stundi tölvuárásir í skjóli rússneskra stjórnvalda. Bogachev er sem fyrr segir eftirlýstur í Bandaríkjunum en á meðan hann heldur sig í Rússlandi – og heldur sig réttum megin við lög- in – þá verður hann ekki handtekinn þar sem enginn framsalssamningur er í gildi milli landanna tveggja. n Einar Þór Sigurðsson einar@dv.is Netglæpamaðurinn sem FBI leggur allt kapp á að handsama Lifir hátt Bogachev er meðal annars sagður eiga snekkju og fjölmarga lúxusbíla. „Á sama tíma og Bogachev tæmdi bankareikningana virðast rússnes k stjórnv öld hafa horft yf ir öxl- ina á ho num og leitað í þessum sömu tölvum í gögnum og tölvu pósti. Hagnaðist mikið Talið er að Bogachev hafi hagnast um fleiri milljónir Banda- ríkjadala á glæpum sínum. Flott Föt Fyrir Flottar konur Holtasmári 1, Kópavogur / Sími: 571 5464 Sjáðu úrvalið á tiskuhus.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.