Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2017, Blaðsíða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2017, Blaðsíða 46
Helgarblað 17.–20. mars 201742 Fólk Glatt á hjalla Menningarverðlaun DV voru veitt í 38. sinn í Iðnó síðastliðinn miðvikudag. Glatt var á hjalla og mikil stemning meðal gesta sem fjölmenntu á hátíðina. Eftir ræðu forsetans Guðni Th. Jóhann- esson tilkynnti um heiðursverð- launahafa DV, Kristbjörgu Kjeld, og mæltist vel. Kristbjörg hélt síðan þakkarræðu og var gríðarlega vel fagnað. myndir Sigtryggur Ari Í hátíðarskapi Silja Aðalsteinsdóttir, formaður dómnefnd- ar í leiklist, og forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson. Þrenna hjá Sjón Sjón hlaut Menningarverðlaun DV í bókmennt- um fyrir Ég er sofandi hurð. Sjón var erlendis en eiginkona hans, Ásgerður Júníusdóttir, tók við verðlaununum fyrir hans hönd. Sjón hefur unnið Menningarverðlaun DV fyrir allar bækur sínar í þríleiknum CoDex 1962. Kampakátir félagar Úlfar Þormóðsson og Jóhann Hauksson voru í hátíðarskapi. Jóhann heldur hér á blómvendi stjúpdóttur sinnar, Hildar Guðnadóttur, sem vann verðlaunin fyrir tónlist. tónlistarmenn af lífi og sál Jón Rafnsson á kontrabassa og Ómar Einarsson á gítar léku ljúfa tónlist. Stelpur sigra Ásrún Magnúsdóttir og stelpurnar í dansverkinu Grrrls sigruðu í les enda- kosningu DV og mættu stoltar upp á svið í I ðnó. Fjölmenni í iðnó Það var vel mætt á athöfnina og áhuginn skein úr and- litum gesta. mættu að sjálfsögðu með góða skapið Guðrún Ingólfsdóttir, Eiríkur Rögnvaldsson, Eyjólfur Pálsson í Epal og Ingibjörg Gunnarsdóttir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.