Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2017, Blaðsíða 39
Helgarblað 17.–20. mars 2017 Menning 35
PKdM arKiteKtar verðlaunaðir fyrir hátækniverksmiðju alvogen í vatnsmýri
Þessi verkefni voru einnig tilnefnd
dómnefnd: Aðalheiður Atladóttir (formaður), Laufey Agnarsdóttir og Þórarinn Malmquist.
n Fosshótel Jökulsárlón, hannað af Bjarna Snæbjörnssyni, arkitekt FAÍ
n Saxhóll, viðkomu- og útsýnisstaður hannaður af Landslag
n Fangelsið Hólmsheiði, hannað af Arkís
n Áningarstaður við Stórurð í Dyrfjöllum hannaður af Zero Impact Strategies
Vandað og fagmannlegt handverk
M
enningarverðlaun DV
í byggingarlist fara til
PKdM arkitekta fyrir
hönnun á skrifstofum
og hátækniverksmiðju
Alvogen í Vatnsmýrinni. Þetta er
annað árið í röð sem stofan hlýtur
verðlaunin, en í fyrra var hún verð-
launuð fyrir orlofshús Bandalags Há-
skólamanna í Brekkuskógi.
Í umfjöllun dómnefndar um verð-
launabygginguna segir: „Nýbygging
líftæknifyrirtækisins Alvotech er hluti
af skipulagi Vísindagarða í Vatnsmýr-
inni. Byggingin er þrískipt með inn-
dregna efstu hæð. Norðurálman hýs-
ir skrifstofur fyrir almennan rekstur.
Fyrir miðju er framleiðsluhlutinn þar
sem fer fram þróun og síðar einnig
vinnsla. Suðurálman hýsir vinnurými
fyrir rannsóknarteymin sem vinna í
framleiðsluhlutanum. Undir öllu er
kjallari með tæknirýmum og bíla-
geymslu. Anddyrið er rúmgott þriggja
hæða rými sem tengir saman öll skrif-
stofurými norðanmegin. Í millibilinu
milli norðurálmu og framleiðsluhluta
er hringstigi sem er fókuspunktur
hússins og er vel sýnilegur að utan.
Listaverk leika stórt hlutverk í
upplifun á rýmum utan sem inn-
an. Við norðurenda lóðar er lista-
verk eftir Sigurð Guðmundsson og
stórt vegglistaverk eftir Erró skreyt-
ir matsalinn á efstu hæð. Vinnurými
eru björt, opin og mjög vel skipulögð.
Efnis- og litaval er einfalt en þar sem
ólík efni eða litir mætast er gaumur
gefinn að bestu lausn hverju sinni.
Vegna starfseminnar er þó nokkuð af
lokuðum flötum á úthliðum. Mark-
visst er unnið að því að brjóta upp
skalann með opnum og lokuðum
flötum, lóðréttum og láréttum línum
í forsteyptum einingum. Það gefur
byggingunni manneskjulegan mæli-
kvarða og aðlagar hana að næsta ná-
grenni. Aðal inngangur er gerður sýni-
legri með lóðréttu líparíti. Deili, utan
og innan, eru úthugsuð og fáguð í sín-
um einfaldleika. Að mati dómnefndar
er byggingin einstaklega fallegt dæmi
um velheppnaða samvinnu og metn-
að allra þeirra aðila sem komu að
verkinu, bæði á hönnunar- og fram-
kvæmdatíma, til að skila af sér vönd-
uðu og fagmannlegu handverki.“ n
Sólveig guðMundSdóttir hlýtur
verðlaunin í leiklistarflokki
S
ólveig Guðmundsdóttir
hlýtur Menningarverðlaun
DV í leiklistarflokki fyrir leik
sinn í Illska og Sóley Rós
ræstitæknir. Í rökstuðningi
dómnefndar segir:
„Sólveig hefur verið vaxandi leik-
kona og vakti mikla athygli í verkinu
Illsku sem Óskabörn ógæfunnar unnu
úr samnefndri skáldsögu Eiríks Arnar
Norðdahl og settu upp á árinu á Litla
sviði Borgarleikhússins. Þar túlkar
Sólveig af ástríðu og næmi mótsagna-
kenndar tilfinningar persónunnar
Agnesar. Ekki vakti síður athygli upp-
færsla Sólveigar og Maríu Reyndal á
leikriti þeirra Sóleyju Rós ræstitækni
sem Kvenfélagið Garpur setti upp í
Tjarnarbíói. Þar býr Sólveig til heila
manneskju á sviðinu, með karakter
og sögu, sérstakan talsmáta, stóra og
smáa takta og kæki, vitsmuni, veik-
leika og styrkleika, djúpstæða rétt-
lætiskennd en líka djúpstæða minni-
máttarkennd og lætur áhorfendur
bæði gráta og hlæja með sér.“
Málefni sem skipta máli
„Ég var alveg hrikalega ánægð að
vera verðlaunuð fyrir þessi verk því
þetta eru tvær sjálfstæðar sýningar
og það er sérstaklega mikil vinna sem
fólst í að koma þeim á koppinn,“ segir
Sólveig um viðurkenninguna.
„Þetta er líka sérstaklega ánægju-
legt því ég tók þátt í að skrifa bæði
verkin, Sóleyju Rós vann ég með
Maríu Reyndal út frá viðtali við konu
sem býr og starfar fyrir norðan, og
tók svo þátt í að skrifa leikgerðina að
Illsku með leikhópnum Óskabörn
ógæfunnar upp úr bók Eiríks Arnar
Norðdahl. Þar af leiðandi finnst
manni maður eiga svolítið meira í
sýningunum með öllu fólkinu sem
vinnur að þeim. Mér finnst báðar
þessar sýningar fást við málefni sem
skipta miklu máli í samfélaginu og
það er frábært að taka þátt í að segja
svona stórar sögur.“
Aðspurð hvort henni hafi fundist
árið 2016 hafa verið sérstaklega gott
hjá henni segir Sólveig að það hafi
kannski bara hist svo heppilega á að
hún hafi fengið að taka að sér þessi
ólíku en áhugaverðu hlutverk á svip-
uðum tíma.
„Þetta eru náttúrlega tvö dúndur-
kvenhlutverk, en þau eru ekki á
hverju strái. Þetta eru mjög ólíkar
persónur og ólíkar sýningar. En þegar
það eru góð hlutverk í boði er auð-
veldara að standa sig vel í vinnunni
sinni. Maður verður ekki að flinkri
leikkonu á einni nóttu. Ég hef unnið
sem sjálfstætt starfandi leikkona
með hinum ýmsu leikhópum síðustu
sextán ár, manni hefur oft mistekist,
maður hefur gert mjög misgóðar sýn-
ingar en maður tekur alltaf eitthvað
með sér, lærir af mistökunum og ger-
ir betur næst. Þegar maður er lengi í
þessu kynnist maður svo mörgu fólki
– og það skiptir svo miklu máli að
vinna með rétta fólkinu.“
Að lokum hvetur hún fólk til að
mæta á sýningarnar tvær áður en
sýningum lýkur, en tvær sýningar eru
eftir af Illsku í Borgarleikhúsinu og
þrjár eftir af Sóleyju Rós ræstitækni í
Tjarnarbíói. n
Ástríðufull og næm túlkun
Þau voru einnig
tilnefnd í flokki
leiklistar
dómnefnd: Silja Aðalsteinsdóttir
(formaður), Bryndís Loftsdóttir og Silja
Björk Huldudóttir.
n Leikhópurinn Kriðpleir fyrir handrit og
uppfærslu Ævisögu einhvers
n Gréta Kristín Ómarsdóttir og leikhóp-
ur fyrir uppfærslu sína á Stertabendu
n Ólafur Egill Egilsson fyrir leikstjórn á
Broti úr hjónabandi
n Sean Mackaoui og Ólafur Ágúst
Stefánsson fyrir leikmynd og lýsingu í
Horft frá brúnni