Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2017, Blaðsíða 26
Helgarblað 17.–20. mars 20174 Til sjávar - Kynningarblað
Spriklandi ferskur fiskur
beint á veitingastaði
Humarsalan: ávallt með fyrsta flokks humar
F
erskir þorskhnakkar og
þorskbitar eru vinsæl afurð
frá okkur, sem við sækjum
nú daglega í ferskfiskvinnslu
Skinneyjar-Þinganess í Þor-
lákshöfn. Þar veiða menn og vinna
hágæða ferskan fisk alla daga frá
bátum útgerðarinnar. Humarsalan
hóf nýlega að bjóða viðskiptavin-
um sínum upp á þessa brakandi
fersku afurð sem við dreifum dag-
lega inn á veitingastaði og mötu-
neyti um allt land,“ segir Jakob
Hermansson, sölustjóri Humar-
sölunnar.
Humarsalan sérhæfir sig í sölu
á spriklandi ferskum fiski, humri
og öðrum skelfiski fyrir verslanir,
veitingahús, veisluþjónustur og
einstaklinga. „Humarinn og fersku
þorskhnakkarnir eru langvinsæl-
astir en við erum sérfræðingar í
sjávarfangi og bjóðum aðeins upp
á hágæða hráefni,“ segir Jakob.
Humarsalan: Tákn um gæði
Humarsalan var stofnuð í janúar
2004. „Markmið okkar er ávallt
að bjóða upp á fyrsta flokks fisk
allt árið um kring og veita fyrir-
taks þjónustu,“ segir Jakob. Fljót-
lega eftir stofnun fyrirtækisins var
viðskiptavinum einnig boðið upp
á steinbíts- og skötuselskinnar,
sem njóta gríðarlegra vinsælda.
„Orðstír fyrirtækisins hef-
ur vaxið jafnt og
þétt og má með
sanni segja að
merki Humar-
sölunnar sé tákn
um gæði,“ segir
Jakob.
Íslenskt hráefni í
hæsta klassa
„Við bjóðum aðeins upp á hrá-
efni í hæsta klassa frá öflugustu
humarútgerð landsins, en það
hefur löngum loðað við Horna-
fjörð að þar sé besta humarinn að
fá,“ segir Jakob. Humarsalan selur
einnig aðrar afurðir Skinneyjar-
Þinganess. „Steinbítskinnar og létt-
saltaðar þorsklundir njóta orðið sí-
fellt aukinna vinsælda, og finnum
við fyrir miklum áhuga á íslensku
sjávarfangi jafnt hjá veitingastöð-
um og hinum almenna neytanda.“
Mikið af nýjungum í
gegnum árin
Humarsalan býður upp á mjög
mikið úrval af humri með skel og
án skeljar, og hefur skelfletti hum-
arinn orðið sífellt vinsælli. „Fólk
er farið að nota skelfletta humar-
inn í ótrúlegustu matargerð eins
og t.d. ommelettur, pítsur, samlok-
ur og margt fleira. Einnig hafa aðr-
ar íslenskar sjávarafurðir eins og
steinbítskinnar, skötuselskinnar,
léttsaltaðar þorsklundir, ásamt inn-
fluttu sjávarfangi eins og risarækju,
hörpuskel, túnfiski og fleiru, verið
mjög vinsælar. Á vörulista Humar-
sölunnar hafa verið að bætast við
nýjungar í gegnum árin og koma
viðskiptavinir Humarsölunnar
víða að. Við erum því bjartsýn og
sjáum mikið af tækifærum,“ segir
Jakob að lokum. n
Á vefverslun fyrirtækisins,
humarsalan.is, er að finna gott
yfir lit yfir vöruúrvalið. Einnig má
finna þar fjölmargar uppskriftir af
humar- og fiskréttum. Sími: 867-
6677 Netfang: humar-
salan@humar-
salan.is.
Þjónusta og gæði ásamt stöðugleika í afhendingu er okkar leiðarljós hjá Humarsölunni!
Fyrsta flokks hágæðahumar.