Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2017, Blaðsíða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2017, Blaðsíða 48
Helgarblað 17.–20. mars 2017 21. tölublað 107. árgangur Leiðbeinandi verð 785 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000 Banana- bræðurnir! með Heimilispakka Símans Lifðu þig inn í Sjónvarp Símans Premium 13.500 kr./mán. Línugjald ekki innifalið. Verð frá 2.600 kr./mán. Pantaðu Heimilispakkann á siminn.is eða í síma 800 7000 Heimilispakkinn Sjónvarp Símans Premium Sjónvarp Símans Appið Sjónvarpsþjónusta Símans 11 erlendar sjónvarpsstöðvar Netið 250 GBEndalaus heimasími Spotify Premium TV IS T 10 33 6 Horfðu á allar þáttaraðirnar af Dexter þegar þér hentar. Yfir 6.000 klukkustundir af heilum þáttaröðum. Svona á sjónvarp að vera. Fimmfalt húrra n Hæstiréttur Íslands fékk enn eina ferðina á baukinn frá Mannréttindadómstól Evrópu þegar hann á fimmtudag komst að þeirri niðurstöðu að dómur- inn hefði brotið gegn tján- ingarfrelsi Steingríms Sævars Ólafssonar, þáverandi ritstjóra Pressunnar, vegna ummæla sem birtust í Pressunni um Ægi Geirdal. Erla Hlynsdóttir, sem í þrí- gang hefur unnið mál gegn ríkinu á vettvangi Mann- réttindadómstólsins, fagnar niðurstöðunni með fimmföldu húrrahrópi – enda hefur dómur- inn í fimm skipti úrskurðað að Hæstiréttur hafi brotið á tján- ingarfrelsi íslenskra blaðamanna. „Hvaða afbrotafræðihugtak yrði notað um Jón Putta ef hann væri fimm sinnum í röð dæmd- ur fyrir að stela kjötlæri í búð?“ spyr Kristinn nokkur Hrafnsson Erlu á Facebook. Hún er snögg til svars, eins og hennar er von og vísa: „Við get- um allavega orðað þetta þannig að hann fengi ekki vinnu í Bónus.“ Bræður og bananalíkjör n Bræðurnir Gústaf og Brynjar Níelssynir eru ólíkindatól hin mestu. Á Facebook bar það til tíð- inda í vikunni að Vigdís nokkur Hauksdóttir bað vini sína á sam- félagsmiðlinum að ráðleggja sér með drykkjarval fyrir lítið sam- kvæmi sem hún hugðist standa fyrir í heimahúsi. Ekki leið á löngu þar til Gústaf hóf upp raust sína: „Fjórfaldur brennivín í banana- líkjör.“ Uppástungan hlaut engar sérstakar undirtekt- ir fyrr en Brynj- ar, sem þekktur er af kímnigáfu sinni og um- deildum skoðun- um, hjó í sama knérunn: „Brenni- vín í bananalíkjör. Mesta víman fyrir minnstan pening.“ Á dögunum varð uppi fótur og fit í samfélagi Survivor-að- dáenda hérlendis þegar í ljós kom að ein af stjörnum þátt- anna, Abi-Maria Gomes, var stödd í fríi hérlendis. Einn meðlimur hópsins, Sædís Anna Jónsdóttir, próf- aði að senda henni skilaboð og spyrja hvort hún væri til í að hitta nokkrar aðdáendur hérlendis meðan á dvöl hennar stæði og það var Gomes svo sannarlega til í. Skipulagning fór á fullt og um það leyti sem DV fór í prentun settust þrjátíu aðdáendur niður með stjörnunni á Hótel Marina og horfðu á nýjasta þáttinn í 34. seríu þáttarins Survivor: Game Changers. „Hún var rosaleg tík og það gerði hana að stórskemmtilegum kepp- anda. Það sést best á því að eftir frumraun sína í 25. seríu, Survivor: Philippines þá fékk hún aftur tækifæri í 31. seríu, Survivor Cambodia, þar sem eftirminnilegir keppendur fengu annað tækifæri. Hún lenti í fimmta sæti af tuttugu keppendum í fyrri keppninni og í sjöunda sæti í þeirri síðari. Það var held ég aðallega af því að hún var svo erfið í sam- búð,“ segir Sædís og hlær. Að hennar sögn er Abi- Maria afar þekkt í samfé- lagi Survivor-aðdáenda en geti engu að síður gengið ró- leg niður Laugarveginn. Survivor-aðdáendur hér- lendis halda úti Facebook-síð- unni S01E01: Survivor Edition sem er afar lífleg. Þar eru gamlar þátt- araðir ræddar auk þess sem náið er fylgst með þeirri seríu sem er í gangi hverju sinni. Hópurinn stend- ur fyrir keppninni „Þraukar- inn“ þar sem þátttakendur veðja á sína hesta í byrjun hverrar seríu og síðan eru veitt verðlaun þeim sem reynast sannspáir. „Það bæt- ast sífellt fleiri við og flestir hafa verið aðdáendur frá fyrsta þætti. Þegar seríunum fjölgaði þá kom smá tímabil þar sem það þótti ekkert sér- staklega töff og þá fylgdust margir áfram með í laumi. Með tilkomu hópsins hafa hins vegar fjölmargir stigið fram og opinberað aðdáun sína og það er mjög skemmtilegt. Þetta eru náttúrlega bestu sjónvarps- þættir í heimi,“ segir Sædís Anna. n bjornth@dv.is „Hún var rosaleg tík“ Survivor-stjarnan Abi-Maria Gomes er vinsæl meðal íslenskra aðdáenda Sædís Anna Jónsdóttir Var afar spennt fyrir kvöldstund með Survivor-stjörnunni Abi-Maria Gomes.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.