Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2017, Qupperneq 10
Helgarblað 17.–20. mars 201710 Fréttir
Ráðherrar draga lappirnar
n Sárafá mál komin á borð Alþingis n Tvær vikur til að leggja fram tæp 80 mál
R
áðherrar ríkisstjórnarinnar
hafa aðeins lagt fram 23
þingmál af 101 máli sem
boðað var í þingmála-
skrá, sem lögð var fram við
stefnuræðu forsætisráðherra 24. jan-
úar síðastliðinn. Ráðherrarnir hafa
tvær vikur frá og með deginum í dag
til að leggja fram boðuð þingmál
en frestur til þess rennur út 1. apríl.
Fjórir ráðherrar hafa ekki enn lagt
fram eitt einasta þingmál.
Þarf að leita afbrigða
Af þessu 101 máli var boðað að
þrjú yrðu lögð fram í apríl. Þar af er
skýrsla forsætisráðherra um fram-
kvæmd upplýsingalaga en skýrsl-
ur þurfa ekki að vera komnar fram
fyrir 1. apríl, aðeins lagafrumvörp
og þingsályktunartillögur. Hin mál-
in tvö sem um ræðir eru frumvörp
sem Þorsteinn Víglundsson, félags-
og jafnréttismálaráðherra, boðaði.
Athygli vekur að ráðherrann boði að
frumvörp komi fram eftir að frestur
til að leggja þau fram er liðinn. Til
að frumvörpin tvö, um þjónustu við
fatlað fólk og innleiðing samnings
Sameinuðu þjóðanna um réttindi
fatlaðs fólks, nái fram að ganga mun
ráðherrann því þurfa að leita af-
brigða hjá þinginu.
23 mál hefðu átt að
vera komin fram
Í þingmálaskránni er boðað að
helmingur málanna, 51 talsins, verði
lagður fram í mars mánuði. Til þess
hafa ráðherrarnir tvær vikur, svo sem
áður er sagt. Eftir stendur að 23 þing-
mál, sem hefði átt að vera búið að
leggja fram, eru óbirt í þinginu. Sam-
kvæmt starfsáætlun Alþingis á að
fresta þinghaldi 31. maí næstkom-
andi. Fram til þess tíma er gert ráð
fyrir 26 þingfundadögum auk eld-
húsdagsumræðna. Á sama tímabili
er gert ráð fyrir fjórum dögum sem
eingöngu fari í nefndarfundi. Laga-
frumvörp má ekki samþykkja nema
þrjár umræður hafi farið fram um
þau í þingsal og er venjan sú að mál
gangi þá tvisvar til nefnda. Þings-
ályktunartillögur verða þá almennt
ekki samþykktar nema eftir að tvær
umræður hafa farið fram um þær og
fjallað hefur verið um þær í nefndum
Alþingis.
Engin mál frá fjórum ráðherrum
Fjórir ráðherrar ríkisstjórnarinnar
hafa enn ekki lagt fram neitt þeirra
mála sem boðað var að lögð yrðu
fram. Heilbrigðisráðherra, Óttarr
Proppé, boðaði framlagningu fimm
þingmála og áttu þau öll að vera
lögð fram í marsmánuði. Hið sama
má segja um Þorgerði Katrínu
Gunnarsdóttur, sjávarútvegs- og
landbúnaðar ráðherra, sem boðaði
að hún hygðist leggja fram sjö frum-
vörp, sömuleiðis öll í marsmánuði.
Þorsteinn Víglundsson, félags-
og jafnréttismálaráðherra, boðaði
að hann myndi leggja fram þrett-
án þingmál, níu lagafrumvörp og
fjórar þingsályktunartillögur. Eitt
þessara þingmála átti að leggja fram
í febrúar, en hin í mars og apríl.
Kristján Þór Júlíusson, mennta-
og menningarmálaráðherra, rak svo
lestina í þessum efnum. Kristján Þór
boðaði að hann myndi leggja fram
þrjú frumvörp, öll í febrúar, en ekkert
þeirra er enn komið fram.
Mikið verk óunnið
Frammistaða annarra ráðherra er
misgóð. Bjarni Benediktsson for-
sætisráðherra hefur þegar lagt fram
eina frumvarpið sem hann boðaði.
Sigríður Á. Andersen dómsmála-
ráðherra hugðist leggja fram tíu
þingmál. Af þeim eru þrjú komin
fram en miðað við áætlun hefðu tvö
til viðbótar einnig átt að hafa litið
dagsins ljós. Benedikt Jóhannesson
boðaði sautján þingmál, sjö hafa
litið dagsins ljós. Tvö af þeim tíu sem
eftir standa hefði átt að vera búið að
leggja fram.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa-
dóttir, ferða-, iðnaðar- og nýsköp-
unarráðherra, á eftir að leggja fram
sjö af þeim níu þingmálum sem hún
boðaði. Þrjú þeirra ættu að vera fram
komin. Hið sama má segja um Jón
Gunnarsson, samgöngu- og sveitar-
stjórnarráðherra, nema í hans tilfelli
ættu fjögur mál að vera komin fram.
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis-
ráðherra hefur lagt fram fimm af tólf
boðuðum þingmálum en hefði með
réttu átt að vera búinn að leggja fram
níu að lágmarki. Björt Ólafsdóttir,
umhverfis- og auðlindaráðherra,
hugðist leggja fram þrettán mál en
aðeins þrjú hafa litið dagsins ljós.
Fjögur til viðbótar hefði Björt þegar
átt að vera búin að leggja fram. n
Ætla að standa við starfsáætlun
Unnur Brá segir aðstæður sérstakar og tafir skiljanlegar
Unnur Brá Konráðsdóttir, forseti Alþingis, segir vissulega æskilegra ef þingmál kæmu fyrr og jafnar til
kasta þingsins. Hins vegar verði að gæta þess að aðstæður séu sérstakar nú, kosið hafi verið í haust og
langan tíma hafi tekið að mynda ríkisstjórn. Þingmálaskrá hafi því komið seint fram.
En telur Unnur Brá gerlegt að klára þau mál sem ríkisstjórnin boðaði að lögð yrðu fram? „Við erum
auðvitað með þennan síðasta framlagningardag sem er viðmiðið. Það hefur alltaf tíðkast hjá ráðherrum
að koma með meirihluta mála seint og svo hefur bara verið upp og ofan hvernig hefur tekist að klára. Það
verður eiginlega bara að koma í ljós hvernig þetta mun ganga. Við ætlum hins vegar að standa við starfsáætlun þingsins
sem segir að þingi skuli frestað 31. maí,“ segir Unnur Brá og bendir á að hægt sé að bæta við þingfundardögum, ef þörf krefur, fram til þess
tíma.
Unnur Brá vonast til að næsta haust verði hægt að leggja mál fyrr fram og segir auðvitað að það væri til bóta til að hægt sé að fjalla
faglega um mál. „Það væri mjög ákjósanlegt fyrir þingið ef mál kæmu fram jafnt og þétt yfir þingveturinn. Þetta eru hins vegar svolítið
óvenjulegar aðstæður núna og skiljanlegt að ráðherrar hafi ekki verið alveg tilbúnir með mál svona daginn sem þeir settust á þing. Þeir ráð-
herrar sem náð hafa mestum árangri með stór mál í gegnum þingið eru einmitt þeir sem hafa komið þeim snemma fram og jafnt og þétt.“
„Verið að spenna bogann
alltof hátt“
Katrín segir fullkomlega óraunhæft að hægt
verði að ljúka öllum málum
Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, segir rétt að
fá mál hafi komið frá ríkisstjórninni. Þingmannamál hafi enda
verið óvenju áberandi á þessu þingi og það sem hafi komið frá
ríkisstjórninni fram til þessa hafi einkum verið EES-mál. Fullkomlega
óraunhæft sé að ætla sér að klára öll þau mál sem boðuð hafi verið í þingmálaskrá.
„Mér finnst eðlilegt að ráðherrar sem, fyrirsjáanlega, eru seint á ferð með sín mál
hafi um það samráð við minnihlutann á Alþingi. Yfirleitt hefur það verið auðsótt að fá
fram afbrigði en þegar um er að ræða efnismikil mál er mjög mikilvægt að það sé gert
með samráði,“ segir Katrín.
Spurð hvort vinnubrögð sem þessi séu tæk svarar Katrín því til að þetta sé svo
sem ekki í fyrsta skipti sem þessi staða sé uppi. „Það er mjög algengt að mál séu seint
á ferðinni en auðvitað er alveg ljóst að þessi þingmálaskrá verður ekki kláruð. Þetta
er ekki nýtt vandamál á Alþingi en auðvitað ætti þingmálaskrá að vera eitthvað nær
raunveruleikanum. Auðvitað er verið að spenna bogann allt of hátt.“
Þorsteinn Víglundsson
Mynd Sigtryggur Ari
Kristján Þór Júlíusson
Björt Ólafsdóttir
Mynd Sigtryggur Ari
ríkisstjórn í tímahraki Ráðherrar ríkisstjórnarinnar
eiga eftir að leggja fram um 80 þingmál fyrir 1. apríl.
Mynd Sigtryggur Ari
Freyr rögnvaldsson
freyr@dv.is
Eldbakaðar pizzur
hafnargata 36a, kEflavík / nálægt flugstöðinni
salur
fyrir
hópa
sími 557 1007
hamborgarar,
salöt, pasta,
kjúklingavængir
og flEira