Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2017, Page 32
Helgarblað 17.–20. mars 201728 Sport
Eru þetta næstu stjörnur
íslenska landsliðsins?
n Synir Eiðs Smára og Gumma Ben líklegir til afreka
n Gætu verið spennandi tímar fram undan
Í
slenska karlalandsliðinu í
knattspyrnu vegnar vel í dag
en fram undan gætu verið fleiri
spennandi ár enda margir efni-
legir og spennandi leikmenn að
koma upp.
Í dag fara leikmenn mjög ungir
út í atvinnumennsku enda draumur
flestra ungra knattspyrnumanna að
gera það gott úti í hinum stóra heimi.
Íslensk ungstirni gera það í raun
mjög gott á erlendri grundu, margir
eru í Hollandi og nokkrir á Englandi
auk þess sem aðrir eru í öðrum lönd-
um.
Þó að listinn yfir efnilega
knattspyrnumenn á Íslandi sé enda-
laus fékk DV nokkra góða menn til að
fara yfir hvaða leikmenn eigi mesta
möguleika á að verða stjörnur í A-
landsliðinu á komandi árum.
Erfitt var að setja saman tíu leik-
menn en nefndin komst að niður-
stöðu á endanum.
Á listanum má finna syni
nokkurra gamalla hetja en þar má
nefna syni Eiðs Smára Guðjohnsen
og Guðmundar Benediktssonar. n
Alfons Sampsted
Félag: Norrköpping
Aldur: 18 ára
Bakvörðurinn öflugi sem hefur átt góð tvö tímabil með Breiðabliki í efstu deild á Íslandi er farinn til Svíþjóðar.
Með góðan hraða og öflugur bæði í vörn og sókn. Framtíðar bakvörður í landsliðinu.
Andri Lucas Guðjohnsen
Félag: Espanyol
Aldur: 15 ára
Sonur Eiðs Smára gerir það gott með Espanyol á Spáni og hafa
menn talsverðar væntingar til hans í framtíðinni. 15 ára gamall er
Andri byrjaður að fá tækifæri með U17 ára landsliði Íslands. Virðist
hafa sömu útsjónarsemi og pabbi hans hafði en hann leikur yfirleitt
sem miðjumaður.
Ágúst Eðvald Hlynsson
Félag: Norwich
Aldur: 16 ára
Ágúst hélt til Englands í upphafi árs en hann hafði fengið smjörþefinn í
meistaraflokki hér heima með Breiðabliki. Með góða tækni en er agað-
ur leikmaður. Margir telja hann vera einn okkar efnilegasta leikmann.
Jón Dagur
Þorsteinsson
Félag: Fulham
Aldur: 18 ára
Kantmaðurinn knái úr Kópavoginum lék með HK áður
en hann hélt til Englands. Hefur gert það mjög gott hjá
Fulham og er talið að hann gæti fengið tækifæri með
aðalliði félagsins innan tíðar. Hefur mikla útsjónar-
semi, gefur góðar sendingar og er góður skotmaður.
Jónatan
Ingi
Jónsson
Félag: AZ Alkmaar
Aldur: 18 ára
Hægri kantmaðurinn
úr Hafnarfirði er góður
með báðum fótum
og ógnar sífellt með
hraða sínum og krafti.
FH-ingar telja að
þarna sé stjarna sem
muni skína skært á
næstu árum.
Júlíus Magnússon
Félag: Heerenveen
Aldur: 18 ára
Leikur á miðsvæðinu en Júlíus sem ólst upp í Víkinni og getur bæði
spilað sem kantmaður og miðjumaður. Hefur vakið talsverða athygli
í Hollandi en hjá Heerenveen hafa menn miklar væntingar til hans.
Kolbeinn Birgir
Finnsson
Félag: FC Groningen
Aldur: 17 ára
Sonur Finns Kolbeinssonar er gríðar-
legt efni, sló í gegn hjá Fylki áður en
hann hélt út. Kraftmikill og duglegur
miðjumaður, hefur gæði til að sprengja
upp varnir með útsjónarsemi.
Rúnar Alex
Rúnarsson
Félag: Nordsjælland
Aldur: 22 ára
Elstur á þessum lista en hann er
markvörður sem gerir stöðuna
öðruvísi, er byrjaður að spila talsvert
í dönsku úrvalsdeildinni og hefur
komist í æfingahóp hjá A-lands-
liðinu. Hefur allt sem til þarf til að
vera markvörður í fremstu röð.
Hörður Snævar Jónsson
hoddi@433.is
Birkir Heimisson
Félag: Heerenveen
Aldur: 17 ára
Varnarsinnaður miðjumaður frá Akureyri, hefur
verið að gera fína hluti með unglingaliðum Heeren-
veen í Hollandi. Ólst upp hjá Þór á Akureyri og vakti
athygli fyrir hæfileika sína mjög ungur.
Albert
Guðmundsson
Félag: PSV
Aldur: 19 ára
Það eru ekki mörg ár í að Albert verði
orðinn lykilmaður hjá íslenska lands-
liðinu. Slær í gegn í næstefstu deild
Hollands með varaliði PSV þessa stund-
ina og ætti að fá tækifæri með aðalliði
félagsins innan tíðar. Sóknarsinnaður
miðjumaður með gott auga fyrir marki.