Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2017, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2017, Blaðsíða 25
Vikublað 21.–23. mars 2017 Kynningarblað - Bestu pizzur bæjarins 5 fjölskyldum að búa til sínar eigin pizzur heima. Eftir að Krónan sá hvaða metnað Shake & Pizza setti í pizzusósuna, ostablönduna og pizzudeigið, þá vildi Krónan hefja sölu á allri vörulínunni, ekki bara beikonsultunni. Enda er sérstaða sósunnar, ostablöndunar og deigs- ins slík að Króna taldi þetta góðan valkost við annað sem er í boði. „Við hjá Shake & Pizza teljum ekki að vörur okkar í Krónunni veiti staðnum okkar samkeppni, enda er það allt önnur ákvörðun að vilja gera hlutina sjálfur eða fá þá gerða fyrir sig. Ef maður ætlar út að borða eða taka með sér mat heim, þá er það allt önnur ákvörðun en að ætla að elda heima. Ef maður ætlar að elda heima, þá viljum við vera einn af þeim val- kostum sem maður stendur frammi fyrir í Krónuverslunum,“ segir Sigmar. Shake-arnir eru senuþjófar Eins og nafn staðarins ber með sér, þá eru pizzur ekki það eina sem staðurinn leggur áherslu á, enda heitir staðurinn Shake & Pizza. Eins og með pizzumatseðilinn, þá er shake-matseðillinn ansi girnileg- ur og nýstárlegur. Yfir 22 tegund- ir af mismunandi shake-um af öllum gerðum. „Það var markmið okkar frá upphafi að gera shake- ana okkar að stórstjörnum á staðnum. Ef það væri til alþjóðleg mjólkurhristinga- keppni þá værum við bún- ir að skrá okkur og þá væri 4. sætið ekki langt undan,“ segir Sigmar. Líkt og með pizzurnar, þá var markmiðið að búa til algjörlega nýtt viðmið í mjólkurhristingum. Bragð, áferð og framsetning átti að verða eins og aldrei fyrr. Hráefnið er allt fyrsta flokks og hvergi er verið að stytta sér leið. Shake-ar eins og Oreo-shake, Kökudeigs-shake, Kókosbollu-shake, Tyrkisk Peber-shake, Curly Wurly- shake, PrinsPóló-shake, Hockey Pul- ver-shake, KitKat-shake, Toffee Crisp- shake eru dæmi um mjólkurhristinga sem eru settir saman úr ekta hráefni og er ekkert til sparað. Ekta rjómaís frá Emmessís er not- aður til verksins og ekta íslenskur þeyttur rjómi er settur á toppinn. „Þegar þú ætlar að fá þér shake þá viltu bara fá ekta vöru og það er enginn að fara að telja kalóríurnar. Þetta er bara eitthvað sem þú ákveð- ur að leyfa þér og þá viltu líka njóta þess til fulls,“ segir Sigmar og glottir. Áfengir shake-ar hafa líka slegið í gegn hjá þeim sem hafa aldur til. „Það er gaman að fá sér áfengan eftirrétt í upphafi djammkvöldsins eða daginn eftir gott djammkvöld,“ segir Sigmar. PinaColada-shake, White Russian-shake, Mojito-shake eru dæmi um bragðgóða mjólkur- hristinga, en það er 20 ára aldurs- takmark á þá og það er ekki hægt að panta þá í TakeAway, enda bannað að selja áfengi út úr húsi. En shake-arnir eru algjör snilld til að taka með í TakeAway, þeir hald- ast mjög vel í 30 mínútur og koma í mjög góðum um- búðum til að taka með heim. Fleiri staðir fram undan? Það er ljóst að vinsældir Shake & Pizza eru miklar, það bera allar tölur með sér. Samkvæmt mæl- ingum er Shake & Pizza orðinn næst stærsti pizzustaður lands- ins á eftir Domino's, þrátt fyrir að vera eingögnu með einn stað í Egilshöll. „Við erum gríðarlega ánægð með viðtökurnar á Shake & Pizza og höfum í sjálfu sér átt fullt í fangi með að halda utan um staðinn okkar. Það eru dagleg verkefni sem þarf að takast á við til að halda uppi gæðum í þjón- ustu. En vissu- lega finnum við fyrir miklum áhuga viðskiptavina að fá okkur nær sér, en við erum að fá viðskiptavini úr Vogun- um, Reykjanes- bæ, Hafnarfirði, Vesturbænum og víðar, sem fara fara þetta langt til þess eins að fá sér pizzu og shake hjá okkur. Það er aldrei að vita nema við skoðum tækifæri á fleiri stöðum í fram- tíðinni,“ segir Sig- mar að lok- um. n Fjórða besta pizza í heimi er á Íslandi Vegan Pizza Pizzugerðarvörurnar fást í Krónunni. Shake & Pizza þegar orðinn næststærsti pizzustaður landsins

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.